Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 47
Virðuleg hjón í þrívídd
F
Flatskjáir voru hálfgert skammaryrði
– ef ekki bannyrði eftir hrunið. Þeir
voru meðal helstu tákna bólunnar sem
sprakk svo eftirminnilega framan í
okkur haustið 2008. Á þeim tíma voru
menn ekki með mönnum nema þeir
endurnýjuðu fasteignina, helst með
kaupum á stórri þakíbúð, splæstu í
eitthvað veglegt til að sitja í, einkum
og sérílagi frá Arne heitnum Jacobsen
og renndu úr hlaði umboðs á sóma-
samlegum jeppa eða þýskum hrað-
brautavagni á gengisláni – nema hvort
tveggja væri. Ónefndir eru þá flatská-
irnir. Þá mátti nálgast á verðtryggðum
raðgreiðslum.
Svo bað Geir guð að blessa Ísland,
icesave vort land – og allt það. Jepp-
arnir hættu að seljast og nýir hrað-
brautavagnar sáust aðeins á myndum
frá útlöndum. Svörtu fyrirhruns
Reinsróverarnir voru að hluta seldir til
Noregs þar sem olíufurstar vita ekki
hvað samdráttur er, hvað þá kreppa.
Hinir sem eftir sátu voru brúkaðir
sparlega. Bensínið hækkaði upp úr
öllu valdi og þetta eru engir sparakst-
ursbílar. Verra var þó að híað var á
þá sem sýndu sig á þeim svörtu, að
minnsta kosti þar til áhrif búsáhalda-
byltingarinnar fjöruðu út.
Eitthvað er þetta að breytast, ef
marka má hagtölur. Þjóðin er að vísu
skuldug upp fyrir haus en það fer svo-
lítið eftir það hvernig þær skuldir eru
reiknaðar. Bílar eru farnir að seljast
á nýjan leik, jafnvel jeppar. Einhvers
staðar kom fram að 250 manns hefðu
splæst í Landkrúser það sem af er ári.
Enn fara menn sér hægt þegar kemur
að Reinsanum. Hans tími mun þó
koma, ef að líkum lætur.
Svo er það hitt velmegunartáknið,
ef ekki bólutáknið, sjálfur flatskjárinn.
Þrátt fyrir allt er auðveldara að fjár-
magna kaup á flatskjá en jeppa – og
ekki vantar flottheitin þegar kemur
að nýjustu tegundum flatskjáa. Miðað
við auglýsingar um skerpu þeirra og
tækninýjungar gera þeir nánast hvað
sem er nema ef til vill að tala við nýja
eigendur. Þess verður eflaust ekki
langt að bíða að þeir geri það, miðað
við öra tækniþróun og samþættingu
snjallsíma, spjaldtölva og flatskjáa.
Gott ef ekki þarf vélskólamenntaða
menn eða jafnvel verkfræðinga til að
skilja það sem í boði er og kunna að
nota sér það allt saman.
Mín góða kona hefur nefnt það
stöku sinnum að endurnýjunar sé
þörf á sjónvarpstæki heimilisins.
Fram séu komnir skjáir með miklum
myndgæðum sem henti vel fólki
á virðulegum aldri. Af íhaldssemi
minni hef ég haldið fram kostum
gamla sjónvarpsins og þeirri mikil-
vægu staðreynd að á undangengnum
árum höfum við lært þokkalega á fjar-
stýringu þess. Konan, sem stendur
mér framar í tæknikunnáttu, blæs
á þessi rök. Við hljótum að geta
lært á svona tól eins og aðrir. Hún
hefur staðnæmst við ákveðna gerð og
nefndi í því sambandi orð sem voru
mér ansi framandi, 3D (þrí dí – sam-
kvæmt útlendum framburði), Smart
og Led.
„Þrí dí,“ át ég upp eftir henni. „Þýðir
það að við hjónakornin sitjum saman
á síðkvöldum og horfum á amerískar
læknasápur og skandinavíska glæpa-
þætti með þrívíddargleraugu á nef-
inu?“ „Já, mér skilst það,“ sagði konan,
eins og ekkert væri sjálfsagðara en
að virðuleg hjón í vesturbæ Kópavogs
sætu fyrir framan sjónvarpið heima
hjá sér útbúin eins og bólugrafnir
unglingar á hasarbíói.
„Hvað ef einhver kemur í heimsókn,
foreldrar, systkini eða börnin okkar?“
spurði ég. „Nú, þá tökum við gleraug-
un niður, maður. Það er ekki eins og
þau séu gróin við andlitið á okkur.“
„Veist þú hvað HDMI tæki eru?“
spurði ég konuna nokkru síðar. Þá
hafði ég kynnt mér möguleika hins
nýja snjallsjónvarps. Hún viðurkenndi
undanbragðalaust að hún hefði enga
hugmynd um það. „Það er nefnilega
hægt að stýra öðrum HDMI tengdum
tækjum með einni fjarstýringu,“
sagði ég, án þess þó að hafa hugmynd
hvað HDMI tengd tæki væru. „Getur
þú hlaðið niður fjölda appa í tækið?“
hélt ég áfram í þeirri fullvissu að hún
hefði, ekkert frekar en ég, hugmynd
um öpp þessi. „Nei,“ viðurkenndi
minn betri helmingur. App var ekki í
hennar orðabók.
„Ég legg málið í dóm,“ sagði ég
undir áhrifum ótal réttarfarsþátta úr
sjónvarpinu og taldi ástæðulaust að
nefna aðrar tækninýjungar þessa gáf-
aða sjónvarps sem ég hafði lesið mér
til um, svo sem netvafra með minni,
utanumhald tækisins um alla kvik-
myndir okkar og þætti, að það leitaði
á netinu og í gagnageymslu heim-
ilisins að því sem við vildum finna.
Ég hafði heldur ekki orð á því að í
apparatinu væri að finna Facebook,
Twitter og fleira auk þess sem hægt
væri að fara á Skype með innbyggðri
myndavél og hljóðnema. Óþarft var
enn fremur að nefna að flatskjár þessi
er með fulla HD lausn, sjálfvirka
stýringu á skerpu í þrívídd, spilar
bíómyndir af USB lykli og tekur upp
á slíkan lykil. Sama gildir um hljóð-
kerfið í þrívídd og að skjárinn breytir
myndum í þrívídd og öfugt, allt eftir
óskum notenda.
Ég íhugaði að vísu að nefna það við
frúna, í þessu sambandi, að tækið
lagar lélega útsendingu auk þess sem
Clear Motion Rate 800 Hz tæknin
hreinsar skjáinn 800 sinnum á sek-
úndu – en sleppti því.
Þegar þarna var komið taldi ég að
öll vopn væru slegin úr höndum kon-
unnar – þar til hún benti mér góðfús-
lega á að tækið væri ógeðslega töff,
örþunnt og nánast rammalaust. „I rest
my case,“ sagði hún – og vísaði líka til
réttarfarsþáttanna í sjónvarpinu.
Það þurfti engan kviðdóm til að
segja mér að málið væri tapað.
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
DEUTER FUTURA
Bakpokar
MARGVERÐLAUNAÐIR
BAKPOKAR,
ÝMSAR STÆRÐIR.
FRÁ 18.990 kr.
Múlatorg óamarkaður
Fellsmúli 28 www.mulatorg.is
Barnaföt - Föt - Antík - Búshöld - Vefnaðarvara
Opnunartími:
mmtudaga og föstudaga 12-18
Laugardaga 12-17
Á laugardögum
Spákona– Lottó – Ka – Kakó - Trúbador og Vöur
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
MIKIÐ ÚRVAL
SPORTBAKPOKAR
FRÁ 4.990 kr.
MARGIR LITIR.
Helgin 30. nóvember-2. desember 2012