Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 30
TIL LEIGU
1500 FERMETRA STÓRGLÆSILEGT
VERSLUNARHÚSNÆÐI Á DALVEGI 10-14
Uppl. Pétur 660-1771 eða petur@klettas.is
Fyrirliðabönd
Pumpur
Ængahattar
fyrir tækniængarnar
Úrval af
fótboltum
Verð aðeins
kr. 12.990.-Aukaængin skapar meistarann
Fótboltamark!!!
sjón er sögu ríkari
Skemmtilegar fótboltagjar
1974 – Föstudagur 20. desemb-
er, klukkan 18.30 – Innarlega í
Neskaupstað, á svæði Fisk-
vinnslustöðvarinnar:
„Hjálp, hjálp, heyrir einhver í mér?
Ég er hérna – hjálp,“ hrópar Árni
Þorsteinsson, nítján ára, hásri
röddu. Hann er innilokaður í afar
þröngu þróarrými og sér ekki
handa sinna skil –
þetta er algjört svart-
hol. Árni er slasaður
og hefur líklega verið
meðvitundarlaus í um
tvær klukkustundir.
Hann telur líklegast
að hann hafi lent í
miklu snjóf lóði en
hefur ekki hugmynd
um hvar hann geti
verið staddur. Enginn
leitarmanna hefur
minnstu möguleika á
að heyra hróp hans.
Engum dettur heldur
í hug að leita hans
þar sem hann er, en
þykkur steinveggur
er yfir höfði Árna og
þar ofan á um fimm
metra lag af snjó og
braki, tugir tonna.
Pilturinn á afar þungt
um andardrátt – loft-
ið er þrungið daunillu
ammoníaki – og í þessu óhugnan-
lega svartholi veltir Árni fyrir sér
hvort hann sé orðinn blindur. Sokk-
ar og skór eru
holdvotir. Í kolsvörtu myrkrinu
heyrir Árni vatn seytla. Er ég í rek-
aldi úti í sjó, hugsar hann? Ef meiri
sjór eða vatn kemur hingað inn hlýt
ég að drukkna. Piltinum finnst hann
aleinn í heiminum. Óvissan er al-
gjör.
Í skímu leitarljósanna, um eitt
hundrað metrum ofar, fetar hóp-
ur barna sig áfram ógreinilega
slóð, uppi á snjóflóðinu í fylgd for-
eldra sinna. Það er verið að flýja
með börnin úr bænum því að fleiri
snjóflóð geta fallið.
Leitarmenn stinga
bambusstöngum
niður í snjóinn þar
sem þeir ganga í
skipulegri röð –
enginn mælir orð.
Hér er einnig leit-
að þriggja annarra
manna sem hafa
grafist undir mis-
kunnarlausu ham-
faraf lóði sem fór
á örskotshraða í
gegnum Frystihús-
ið í Neskaupstað.
Leitarmenn þurfa að
vera með gasgrímur
vegna ammoníaks-
leka en þær eru af
skornum skammti.
Rétt áður var far-
ið með börnin yfir
annað snjóflóð – í því
lentu þrettán manns
– þar af þrjár kon-
ur og þrjú börn. Það flóð náði um
400 metra út á fjörðinn. Og þá veltu
menn meðal annars fyrir sér: „Eru
Ólafur og Sveinn fundnir, eru synir
Þórstínu og Sigga á lífi – hvernig
reiddi drengjunum af eftir að komið
var með þá á sjúkrahúsið? Hvað með
Elsu og Þórstínu? Hvernig – hvar
eru? Ótal spurningar hafa vaknað
og enn er fátt um svör. Þegar farið
er með börnin innar, í átt að sveit-
inni, blasir við sjón sem þau gleyma
aldrei. Síldarbræðslan hefur sópast
burt – þar er ekkert eftir nema brak
og samanþjappaður snjór. Hluti af
hundraða tonna svartolíutanki ligg-
ur eins og niðursuðudós ofan á aðal-
byggingunni. Reykháfar, sem settu
svip á þetta stærsta byggðarlag
Austurlands, eru nú skakkir eins
og eftir loftárás. Mjölskemman er
hreinlega farin. Hér í Bræðslunni
voru fjórir menn að vinna. Þeir eru
ófundnir – þar á meðal eru ættingjar
barnanna og vinnufélagar eða vinir
foreldranna. Faðir ellefu ára drengs,
sem fetar nú snjóslóðina rétt á hæla
móður sinnar, var að vinna hér í
Bræðslunni í morgun. Fyrir ein-
skæra tilviljun var hann sendur út
í bæ og var þar þegar hamfarirnar
riðu yfir.
Íslenska þjóðin er þrumu lostin
og fréttir af náttúruhamförunum
hafa borist út í heim. Íbúar Nes-
kaupstaðar eru sem lamaðir – snjó-
bíllinn kemst ekki yfir Oddskarð
og flug liggur niðri vegna veðurs.
Björgunarsveitir frá öðrum fjörðum
komast aðeins sjóleiðina og því er
ekki von á aðstoð til bæjarins fyrr
en í nótt.
Flæðarmálið við Strandgötuna
– Á kafi í krapasjó
Undir margra metra snjófargi barst
Alfreð Alfreðsson út í jökulkald-
an sjóinn á mikilli ferð. Á leiðinni
þangað fór flóðið að breytast í þykk-
an snjókrapa. Alfreð barst með því
um 30 metra frá landi. Þegar hann
stöðvaðist var hann á um tíu metra
dýpi, sem samsvarar hæð þrílyfts
húss. Þrýstingurinn, kuldinn og ótt-
inn heltóku Alfreð:
„Þetta var hryllingur þegar ég
gerði mér grein fyrir hvert ég var
kominn. Ég hafði haldið niðri í mér
andanum allan tímann og var því
að springa af súrefnisskorti – gerði
mér enga von um að lifa þetta af.
Ósjálfrátt vildi ég samt ná andanum.
Nú var ekki um annað að ræða en
að koma sér upp úr þessu skelfing-
ar krapadíki. Það var að losna um
Hvar eru konan þín og börnin?
Snjóflóðin í Neskaupstað eru einn sögulegasti atburður síðustu aldar. Í bókinni Útkall – sonur þinn
er á lífi, eftir Óttar Sveinsson, er í fyrsta skipti greint frá því á heildstæðan hátt hvað raunverulega
gerðist í þessu stærsta byggðarlagi Austurlands rétt fyrir jól 1974. Tólf fórust í tveimur flóðum
en margir björguðust með ævintýralegum hætti. Meðal þeirra sem segja frá er Árni Þorsteins-
son sem var 19 ára. Hann lokaðist inni í þröngu þróarrými í 20 klukkustundir og var af mörgum
talinn af. Alfreð Alfreðsson fór tugi metra út í sjó og sökk á um 10 metra dýpi þar sem hann fékk
hjartaáfall. Valur Pálsson var nær dauða en lífi er hann var grafinn upp, líkamshitinn einungis 24
gráður og lýsir hann komu sinni til himnaríkis. Á þessum tíma þekktist ekki áfallahjálp. Hér á eftir
fara kaflar úr nýútkominni bók Óttars frá þessum ógnartíma í sögu Neskaupstaðar.
176
Rósa Sigursteinsdóttir með Sigrúnu Evu – við svefnherbergisgluggann
þeirra.
q Skjala- og myndasafn Norðfjarðar
Mánahús í Neskaupstað. Hér er Rósa Margrét Sigursteinsdóttir, 19 ára, með eins árs
dóttur sína, Sigrúnu Evu. Þær sváfu í risíbúðinni en komust af eftir að síðara flóðið
kubbaði húsið í sundur. Tvær konur og tvö börn, sem voru á aðalhæðinni, fórust. Sú
hæð nánast hvarf því flóðið fór í gegnum húsið. Risið barst tugi metra niður hlíðina.
Ljósmynd/Skjala- og myndasafn Norðfjarðar
Óttar Sveinsson rithöfundur.
Útkallsbækur Óttars Sveinsson-
ar eru eitt vinsælasta lesefni
Íslendinga. „Maður kemst í
samband við hversdagsmenn
sem sýna af sér umhyggju, ást
og virðingu,“ segir Páll Baldvin
Baldvinsson. Útkall – sonur
þinn er á lífi, sem greinir frá
snjóflóðunum í Neskaupstað
1974 er 19. Útkallsbók höf-
undar.
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
30 bókarkafli Helgin 30. nóvember-2. desember 2012