Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 11
kopavogur.is
1. desember
Molinn – ungmennahús, opið kl. 14.00–18.00
Kaffihúsið opið – jólastemning, tónlist og
leikþáttur.
Tríóið Friends4ever.
Kl. 17.30 Atriði úr Ævintýrinu um Augastein.
Gerðarsafn, opið kl. 11.00–17.00
MÆTing – Kristinn g. Harðarson.
Frásagnir af raunverulegu lífi, umhverfi
og atburðum eru kjarni verkanna.
Aðventustemning í kaffistofu.
laufabrauðsdaGurinn á Gjábakka
Kl. 13.00 Handverksmarkaður opnaður
Kl. 13.00 Laufabrauðsgerðin hefst
Kl. 14.00 Tríóið Friends4ever
Kl. 15.00 Samkór Kópavogs
Kl. 16.15 Skólahljómsveit Kópavogs
Veitingar, kaffi og súkkulaði verður afgreitt
í kaffiteríu frá kl. 13.30–16.30.
Allir eru velkomnir í ylinn á gjábakka.
aðVenTuHáTÍð
Í kÓPaVoGi
bÓkasafn kÓPaVoGs
oG náTTúrufræðisTofa
jólakötturinn verður á kreiki í safnahúsinu
milli kl. 15.00 og 16.00 og heilsar upp á krakka.
Í Kórnum í Safnahúsinu verður boðið upp á skemmti-
og fræðsluerindi um jólaköttinn í máli og myndum
fyrir 4–6 ára börn, slóð kattarins verður rakin um
húsið og lesin skemmtileg jólasaga.
Dýrin í náttúrufræðistofunni skrýðast jólabúningi.
nýjar og gamlar jólabækur eru til útláns í
bókasafninu.
lisTaMenn sýna 1. og 2. des.
listamenn í miðbæ kópavogs hafa tekið sig saman
og opna vinnustofur sínar helgina
1. og 2. desember kl. 13.00–17.00.
Komið og skoðið listmenninguna í Kópavogi, heitt
á könnunni og allir velkomnir í jólastemningu og
smitandi gott jólaskap!
glergallerí, Jónas Bragi og Catherine Dodd,
Auðbrekku 7.
Listamenn Art 11, Auðbrekku 4, 3. hæð.
gengið inn að aftanverðu.
Listamenn í norm-X húsinu, Auðbrekku 6,
2. og 3. hæð. Ath. aðeins opið 1. desember kl. 13–17.
Skruggusteinn, keramik, myndlist og skart.
Vinnustofa fimm listamanna, Auðbrekku 4, 2. hæð.
Stúdíó Subba, Hamraborg 1–3.
jólaljósin tendruð
á vinabæjartrénu
HálsaTorG kl. 16.00–17.00
Stígvélaði kötturinn og Mjallhvít sjá um að
kynna dagskrána.
Skólahljómsveit Kópavogs spilar jólalög.
Sendiherra Svíþjóðar, Anders Ljunggren,
afhendir vinabæjartréð frá norrköpping.
Forseti bæjarstjórnar, Margrét Björnsdóttir,
tekur á móti jólatrénu fyrir hönd
Kópavogsbæjar.
Samkór Kópavogs syngur jólalög.
Jólasveinar kíkja í heimsókn og taka lagið.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
34
33