Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 84
„Þetta er bók sem mig hefur lengi langað til að
skrifa,“ segir Atli Sveinn Þórarinsson, kennari
og knattspyrnumaður.
Atli var að senda frá sér bókina Leiðin á
toppinn – lærðu af íþróttastjörnunum. Í bókinni
tekur hann stutt viðtöl við fjölmarga þekkta
íslenska íþróttamenn, flesta af yngri kynslóð-
inni. „Mér hefur lengi fundist vanta miðil fyrir
krakka og unglinga í íþróttum til að leita í. Það
er hægt að nálgast nóg af staðreyndum og upp-
lýsingum en það vantar oft eitthvað persónu-
legra. Börn í íþróttum í dag eru metnaðargjörn
en þurfa kannski skýrari leiðbeiningar. Þau
vilja heyra hvað hefur reynst þessu afreksfólki
vel,“ segir Atli Sveinn.
Meðal þess íþróttafólks sem rætt
er við í bókinni er Ásdís Hjálmsdóttir
spjótkastari, Aron Einar Gunnarsson
knattspyrnumaður, Gunnar Nelson
bardagamaður, Helena Sverrisdóttir
körfuboltakona, Sif Atladóttir knatt-
spyrnukona og Kári Steinn Karlsson
langhlaupari.
Auk þess að vera knattspyrnu-
maður og kennari hefur Atli
Sveinn fengist við þjálfun.
Hann hefur því mikið velt
því fyrir sér hvernig best sé
að fræða börn um íþróttir.
„Börn eru opin og það
er hægt að kenna þeim
mikið snemma. En það
er erfitt fyrir þjálfara að
lesa hug barna og leggja
þeim línurnar endalaust.
Ég held að það sé fróðlegt
fyrir krakka að lesa í þess-
ari bók um hvernig þessir
toppíþróttamenn undirbúa
sig fyrir keppni, takast á við
mótlæti og fleira.“ -hdm
Þórður Jörundsson
blandar rokkstjörnulíferni
með Retro Stefson saman
við fágun og góðan smekk í
Herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar. Ljósmynd/Hari
• Einar Már Jónsson
Örlagaborgin
— Brotabrot úr afrekasögu frjálshyggjunnar
„Ein mikilvægasta bók undanfarandi ára!“
Gauti Kristmannsson, RÚV
„… mikið verk, stútfullt af leiftrandi ritsnilld …“
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttatíminn
„Bókin er skrifuð af lærdómi og list og hún er
skemmtileg aflestrar …“
Atli Harðarson, Þjóðmál
Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur
Ránargötu 20 • 101 Reykjavík • sími 561 0055 • www.ormstunga.is
• R ichard David Precht
Hver er ég – og ef svo er,
hve margir?
— Heimspekilegt ferðalag
Íslensk þýðing: Arthúr Björgvin Bollason
Hvað get ég vitað? – Hvað ber mér að gera?
– Hvað leyfist mér að vona?
„Þegar þú hefur lesið þessa bók hefurðu stigið fyrsta
skrefið í átt að hamingjunni. … Þessi bók er hreint út
sagt ómissandi.“
Elke Heidenreich, ZDF
Metsölubók í Þýskalandi í bráðum 5 ár samfleytt
og þýdd á 34 tungumál
• Sigur jón Magnússon
Endimörk heimsins
— Frásögn hugsjónamanns
Áhrifarík og eftirminnileg skáldsaga um síðustu
daga rússnesku keisarafjölskyldunnar í Rússlandi
sumarið 1918. Einstæð frásögn um frægan viðburð
í blóði drifinni sögu síðustu aldar sem ekki á sér
hliðstæðu í íslenskum bókmenntum.
Fæst líka sem rafbók!
Fræðsla Knattspyrnumaður sKriFar bóK
Leiðarvísir fyrir
ungt íþróttafólk
Leiðin á toppinn hefur
að geyma viðtöl við ungt
afreksfólk í íþróttum.
Atli Sveinn Þórarinsson hefur
skrifað bók um íslenskt afreks-
íþróttafólk fyrir börn og unglinga.
Ljósmynd/Hari
Staðalbúnaður
Dags daglega reyni ég að vera snyrtilegur og
ég fæ mér dálítið af fötum hérna í búðinni.
Annars byggist fatastíllinn minn mikið upp á
fallegum skyrtum, sem ég er hrifinn af, og svo
kannski hlýrri og góðri peysu. Síðan hef ég
gaman af skóm, eins og flestir, og skósafnið er
alltaf að stækka. Ég er nýbúinn að fatta að það
er betra að kaupa dýrari skó sem endast vel
heldur en ódýrari sem skemmast. Núna er ég í
skóm frá Sebago by Filson. Þegar ég spila með
hljómsveitinni reyni ég að vera í þægilegum,
hlutlausum fötum. En síðan er ég að vissu leyti
íþróttapervert líka, ég er fyrir Nike-skó og
Nike-geimfatnað, svona hlaupaföt. En ég get
eiginlega bara verið í þessu um helgar ef ég fer
að hlaupa.
Hugbúnaður
Það breytist í hverjum mánuði hvert ég fer
þegar ég fer út að skemmta mér. Mér finnst
alltaf næs að fara á Hemma og Valda og maður
fær alltaf góðar móttökur á Faktorý. Síðan
er ég alltaf á leiðinni á Micro bar. Uppáhalds
kaffihúsin mín eru Kaffismiðjan og Tíu dropar.
Besta expressóinn í bænum fæ ég hins vegar
heima hjá Benna Hemm Hemm, mági mínum.
Mér finnst rosa gott að fara í sund og fer oftast
í Neslaugina eða Sundhöllina. Ég er svolítið
fyrir útivist, ég hef gaman af stangveiði og
hlakka mikið til þegar það fer að snjóa svo ég
geti farið á skíði. Ég hef verið á horfa á The
Newsroom og finnst það geðveikir þætti. Það
er uppbyggilegt sjónvarpsefni, ólíkt mörgu
öðru. Ég fer stundum í bíó en kannski ekki
nógu oft. Ég átti átta miða kort á RIFF en tókst
ekki að fara á eina einustu sýningu. Sem er
alveg glatað.
Vélbúnaður
Ég á Macbook Pro og iPhone. Ég er næstum
ekkert á Facebook lengur eftir að ég fékk iP-
hone. Nú er ég bara á Instagram og hef minnk-
að tölvuhangs mikið. Ég er reyndar alltaf að fá
mér einhver tilgangslaus öpp, eins og Oldbo-
oth sem er beisik og alltaf jafn fyndið. Sú græja
sem ég get samt alls ekki verið án er Kindle.
Við ferðumst svo mikið að það er frábært að
geta verið með fleira en eina bók í gangi. Ég
les allt frá einhverjum sjálfshjálparbókum upp í
nördalegar ævintýrabækur á Kindlinum.
Aukabúnaður
Ég nota ekki mikið af snyrtivörum, eiginlega
bara svitalyktareyði. Ég fæ reyndar greiðslu
á hverjum degi hjá rakaranum í búðinni og
verð honum ævinlega þakklátur fyrir. Ég er
matmaður og uppáhaldsstaðurinn minn er
Friðrik V. Ég borða þar alltaf í hádeginu því
þar er hægt að fá ótrúlega góðan mat á lágu
verði. Í febrúar ákvað ég að kaupa mér bíl, Su-
zuki Vitara 96 módel, og fékk mér svo bílpróf í
kjölfarið. Fram að því hafði ég labbað allt sem
ég fór. Mér finnst rosa gaman að keyra þennan
bíl. Í sumar fór ég til dæmis upp á Langjökul á
honum og það var mjög gaman.
Í taKt við tÍmann Þórður Jörundsson
Keyrir um á 16 ára gömlum Suzuki Vitara
Þórður Jörundsson er 22 ára gítarleikari í hljómsveitinni Retro Stefson og innanbúðardrengur í Herrafataverslun
Kormáks og Skjaldar. Auk þess að gefa út þriðju plötu sína með sveitinni bar það til tíðinda hjá Þórði að hann
keypti sér bíl og tók bílpróf.
80 dægurmál Helgin 30. nóvember-2. desember 2012