Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 78
• Einar Már Jónsson
Örlagaborgin
— Brotabrot úr afrekasögu frjálshyggjunnar
„Ein mikilvægasta bók undanfarandi ára!“
Gauti Kristmannsson, RÚV
„… mikið verk, stútfullt af leiftrandi ritsnilld …“
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttatíminn
„Bókin er skrifuð af lærdómi og list og hún er
skemmtileg aflestrar …“
Atli Harðarson, Þjóðmál
Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur
Ránargötu 20 • 101 Reykjavík • sími 561 0055 • www.ormstunga.is
• R ichard David Precht
Hver er ég – og ef svo er,
hve margir?
— Heimspekilegt ferðalag
Íslensk þýðing: Arthúr Björgvin Bollason
Hvað get ég vitað? – Hvað ber mér að gera?
– Hvað leyfist mér að vona?
„Þegar þú hefur lesið þessa bók hefurðu stigið fyrsta
skrefið í átt að hamingjunni. … Þessi bók er hreint út
sagt ómissandi.“
Elke Heidenreich, ZDF
Metsölubók í Þýskalandi í bráðum 5 ár samfleytt
og þýdd á 34 tungumál
• Sigur jón Magnússon
Endimörk heimsins
— Frásögn hugsjónamanns
Áhrifarík og eftirminnileg skáldsaga um síðustu
daga rússnesku keisarafjölskyldunnar í Rússlandi
sumarið 1918. Einstæð frásögn um frægan viðburð
í blóði drifinni sögu síðustu aldar sem ekki á sér
hliðstæðu í íslenskum bókmenntum.
Fæst líka sem rafbók!
S ýningin hefur gengið þokka-lega og það var frábært að fá þessa Grýlu-athygli núna,“
segir Þrándur sem málaði Grýlu
fyrir sýningu árið 2009 en myndin
fór allt í einu á fleygiferð á netinu
um síðustu helgi og vakti athygli
út fyrir landsteinanna en 620
þúsund manns sáu hana á einum
sólarhring á tenglavefnum reddit.
Þrándur segist láta eftir sér af
og til að mála hryllilegar myndir
inn á milli en þarf hann ekki að
bregðast við athyglinni?
„Það er aldrei að vita nema
maður leggi þetta fyrir sig. Að
gera einhverjar svona ljótar Grýlu-
myndir,“ segir málarinn sem dró
hvergi af sér þegar hann dró Grýlu
skuggalegum dráttum. „Ef Grýla
er bara sett fram með stórt kart-
öflunef verður hún einhvern veg-
inn bara hallærisleg og fyndin.“
Þrándur segir Grýlu-myndina
ekki hafa verið lýsandi fyrir verk
sín á sýningunni 2009 og þar hafi
hún skorið sig nokkuð úr. „Ég hef
kannski gert nokkrar svona „splat-
termyndir“ og mig hefur lengi
langað að gera einhverja svona
jólaseríu með tilheyrandi hryll-
ingi en það hefur aldrei orðið neitt
af því. Ég veit nú líka ekki hver
myndi vilja kaupa þannig myndir.
Það er nú kannski bara almennt
þannig með þessar ljótu myndir
að það er voðalega gaman að mála
þær en síðan situr maður bara uppi
með þær sjálfur þannig að ég þarf
nú að gera eitthvað annað líka.“
Þrándur sagði skilið við Listahá-
skólann eftir að myndum hans var
tekið fálega þar. „Ætli ég hafi ekki
hætt vegna þess að ég lærði ekkert
þar. Mér var sagt að svona myndir
gæti ég bara málað heima og eitt-
hvað þannig. Þetta ætti ekkert er-
indi þarna þannig að ég ákvað bara
að hætta. Ég fór síðan að læra hjá
honum Odd Nerdrum, þegar hann
var hérna, sem var miklu lærdóms-
ríkara.“
Þráinn segist hafa lært hjá Odd í
eitthvað í kringum fjögur ár. „Það
var stórkostlega lærdómsríkt og
skemmtilegt. Hann er stórfurðu-
legur en ógurlega skemmtilegur
karl og ég veit að ég hefði ekki
getað fengið betri kennara. Það
gerir enginn þetta sem hann gerir
betur en hann sjálfur.“
Þrándur fer um víðan völl í list-
sköpun sinni og verk hans kallast
á við ýmsa strauma og stefnur í
listasögunni. „Í íslenska myndlist-
arsögu vantar alveg svona fyrstu
fimm aldirnar þannig að það má al-
veg reyna að bæta þeim inn og öllu
því sem við höfum farið á mis við.
Ég heillast kannski mest af tím-
anum frá endurreisninni og að 20.
öldinni. Á því tímabili eru margar
heillandi stefnur og tímabil. “
Þrándur sýnir verk sín, sem
mörg hver eru máluð upp úr
Snorra-Eddu, í Gamla Bíó í Ingólfs-
stræti 2a.
Sýningin er opin alla daga frá 12
– 18 til 1. desember.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Grýla Gamla Ekki dauð úr öllum æðum
Grýla er
hallærisleg
með kartöflunef
Þrándur Þórarinsson
leyfir sér stundum að
mála hryllilegar myndir
og dregur þá hvergi af
sér enda segir hann fólk
nú til dags ýmsu vant
og því þurfi stöðugt að
hækka „sjokk-mörkin.“
Ljósmynd/Hari
Myndlistarmaðurinn Þrándur Þórarinsson ákvað að hætta
í Listaháskólanum eftir að honum var tjáð að stíll hans og
myndir ættu ekkert erindi á þeim bænum. Hann fór í læri hjá
norska ólíkindatólinu Odd Nerdrum. Hryllingsmynd Þrándar af
Grýlu frá árinu 2009 vakti mikla athygli um síðustu helgi sem
listamaðurinn er ákaflega ánægður með enda með sýningu í
gangi og þiggur glaður hjálp við kynninguna á henni frá hinum
forna barnahrelli.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
BOLTAR
FRÁ 1.990 kr.
HANDBOLTAR,
KÖRFUBOLTAR,
FÓTBOLTAR.
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
74 menning Helgin 30. nóvember-2. desember 2012