Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.11.2012, Page 78

Fréttatíminn - 30.11.2012, Page 78
•   Einar Már Jónsson Örlagaborgin — Brotabrot úr afrekasögu frjálshyggjunnar „Ein mikilvægasta bók undanfarandi ára!“ Gauti Kristmannsson, RÚV  „… mikið verk, stútfullt af leiftrandi ritsnilld …“ Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttatíminn „Bókin er skrifuð af lærdómi og list og hún er skemmtileg aflestrar …“ Atli Harðarson, Þjóðmál Vandaðar bækur fyrir vandláta lesendur Ránargötu 20  •  101 Reykjavík  •  sími 561 0055  •  www.ormstunga.is •  R ichard David Precht Hver er ég – og ef svo er, hve margir? — Heimspekilegt ferðalag Íslensk þýðing: Arthúr Björgvin Bollason Hvað get ég vitað? – Hvað ber mér að gera? – Hvað leyfist mér að vona? „Þegar þú hefur lesið þessa bók hefurðu stigið fyrsta skrefið í átt að hamingjunni. … Þessi bók er hreint út sagt ómissandi.“ Elke Heidenreich, ZDF Metsölubók í Þýskalandi í bráðum 5 ár samfleytt og þýdd á 34 tungumál •   Sigur jón Magnússon Endimörk heimsins — Frásögn hugsjónamanns Áhrifarík og eftirminnileg skáldsaga um síðustu daga rússnesku keisarafjölskyldunnar í Rússlandi sumarið 1918. Einstæð frásögn um frægan viðburð í blóði drifinni sögu síðustu aldar sem ekki á sér hliðstæðu í íslenskum bókmenntum. Fæst líka sem rafbók!  S ýningin hefur gengið þokka-lega og það var frábært að fá þessa Grýlu-athygli núna,“ segir Þrándur sem málaði Grýlu fyrir sýningu árið 2009 en myndin fór allt í einu á fleygiferð á netinu um síðustu helgi og vakti athygli út fyrir landsteinanna en 620 þúsund manns sáu hana á einum sólarhring á tenglavefnum reddit. Þrándur segist láta eftir sér af og til að mála hryllilegar myndir inn á milli en þarf hann ekki að bregðast við athyglinni? „Það er aldrei að vita nema maður leggi þetta fyrir sig. Að gera einhverjar svona ljótar Grýlu- myndir,“ segir málarinn sem dró hvergi af sér þegar hann dró Grýlu skuggalegum dráttum. „Ef Grýla er bara sett fram með stórt kart- öflunef verður hún einhvern veg- inn bara hallærisleg og fyndin.“ Þrándur segir Grýlu-myndina ekki hafa verið lýsandi fyrir verk sín á sýningunni 2009 og þar hafi hún skorið sig nokkuð úr. „Ég hef kannski gert nokkrar svona „splat- termyndir“ og mig hefur lengi langað að gera einhverja svona jólaseríu með tilheyrandi hryll- ingi en það hefur aldrei orðið neitt af því. Ég veit nú líka ekki hver myndi vilja kaupa þannig myndir. Það er nú kannski bara almennt þannig með þessar ljótu myndir að það er voðalega gaman að mála þær en síðan situr maður bara uppi með þær sjálfur þannig að ég þarf nú að gera eitthvað annað líka.“ Þrándur sagði skilið við Listahá- skólann eftir að myndum hans var tekið fálega þar. „Ætli ég hafi ekki hætt vegna þess að ég lærði ekkert þar. Mér var sagt að svona myndir gæti ég bara málað heima og eitt- hvað þannig. Þetta ætti ekkert er- indi þarna þannig að ég ákvað bara að hætta. Ég fór síðan að læra hjá honum Odd Nerdrum, þegar hann var hérna, sem var miklu lærdóms- ríkara.“ Þráinn segist hafa lært hjá Odd í eitthvað í kringum fjögur ár. „Það var stórkostlega lærdómsríkt og skemmtilegt. Hann er stórfurðu- legur en ógurlega skemmtilegur karl og ég veit að ég hefði ekki getað fengið betri kennara. Það gerir enginn þetta sem hann gerir betur en hann sjálfur.“ Þrándur fer um víðan völl í list- sköpun sinni og verk hans kallast á við ýmsa strauma og stefnur í listasögunni. „Í íslenska myndlist- arsögu vantar alveg svona fyrstu fimm aldirnar þannig að það má al- veg reyna að bæta þeim inn og öllu því sem við höfum farið á mis við. Ég heillast kannski mest af tím- anum frá endurreisninni og að 20. öldinni. Á því tímabili eru margar heillandi stefnur og tímabil. “ Þrándur sýnir verk sín, sem mörg hver eru máluð upp úr Snorra-Eddu, í Gamla Bíó í Ingólfs- stræti 2a. Sýningin er opin alla daga frá 12 – 18 til 1. desember. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  Grýla Gamla Ekki dauð úr öllum æðum Grýla er hallærisleg með kartöflunef Þrándur Þórarinsson leyfir sér stundum að mála hryllilegar myndir og dregur þá hvergi af sér enda segir hann fólk nú til dags ýmsu vant og því þurfi stöðugt að hækka „sjokk-mörkin.“ Ljósmynd/Hari Myndlistarmaðurinn Þrándur Þórarinsson ákvað að hætta í Listaháskólanum eftir að honum var tjáð að stíll hans og myndir ættu ekkert erindi á þeim bænum. Hann fór í læri hjá norska ólíkindatólinu Odd Nerdrum. Hryllingsmynd Þrándar af Grýlu frá árinu 2009 vakti mikla athygli um síðustu helgi sem listamaðurinn er ákaflega ánægður með enda með sýningu í gangi og þiggur glaður hjálp við kynninguna á henni frá hinum forna barnahrelli. Á R N A S Y N IR util if. is BOLTAR FRÁ 1.990 kr. HANDBOLTAR, KÖRFUBOLTAR, FÓTBOLTAR. 69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent júlí-sept. 2012 74 menning Helgin 30. nóvember-2. desember 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.