Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.11.2012, Síða 20

Fréttatíminn - 30.11.2012, Síða 20
www.netto.is Mjódd · Salavegur · Hverafold Höfn · Grindavík · Reykjanesbær Borgarnes · Egilsstaðir Selfoss · Akureyri bækur Ævintýrabækur Yndislegar bækur Til bo ði n gi ld a m eð an b irg ði r e nd as t. | Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r o g m yn da ví xl | V ör uú rv al g et ur ve rið b re yt ile gt m illi ve rs la na . Tilboðin gilda 29. nóv - 2. desember Risabókin um Risa 3.244 kR dRekaR og RiddaRaR eða ævintýRalandið 2.679 kR litla bókasafnið mitt 890 kRpk 890 kRstk fyir börn á aldrinum 4 - 8 fyrir yngstu kynslóðina eða Jólasveina! dýRin hvolpaR S enn líður að því að aðvent-an gangi í garð. Tími sem margir hlakka til. Tími þar sem fjölskyldan fer í jólagjafaleiðangur og sest inn á kaffi- hús og fær sér heitt kakó. Gleðin ein ríkir á þessum tíma hjá flestum, en því miður ekki öllum, hvorki fólki né dýrum. Stjórn Kattavinafélags Íslands hefur verulegar áhyggjur af öllum þeim kisum sem við höfum fundið á vergangi og á þessu ári höfum við aldrei fengið jafn marga ketti í þetta eina dýraat- hvarf Íslands. Mig langar því að beina orð- um mínum til allra sem láta sér hag dýra varða. Biðja ykkur að hafa augun opin fyrir því hvort þið sjáið kisur sem greinilega eiga ekki heimili, gefa þeim mat og athuga aftur daginn eftir og daginn þar á eftir og svo fram- vegis ef tök eru á. Kisur sem eiga hvergi heima leita alltaf aftur á þann stað sem þær hafa fengið mat á. Ég bið ykkur að til- kynna strax í Kattholt, sími 567 2909 eða í neyðarsímann 699 40 30, þar sem er svarað eftir lokun Kattholts frá kl. 17-22 á kvöldin og frá kl. 13 og fram eftir degi á laugardögum og sunnudögum. Að öðrum kosti að hringja í lög- regluna á því svæði sem kisa finnst. Ef hún er slösuð, hringja strax á lögreglu sem kemur henni undir læknis- hendur og ekki hafa áhyggjur af að kostn- aður lendi á ykkur. Hér koma nokkrir staðir sem við höf- um mikið orðið vör við kisur á flakki, margar horaðar, sumar slasaðar: Miðbær og við Laugaveg og þar í kring, á Teigunum, við Sundahöfn og Fiskislóð. Mikils- vert er einnig að hafa augun opin fyrir kisum við Hrafnistuhraun og Hvaleyrar- holt í Hafnarfirði. Hestafólk fær sér oft kisur til að hafa í hesthúsum og er það gott og vel. Hins vegar má ekki gleyma því að gefa þeim mat og vatn eins og heimilis- köttum. Við höfum orðið vör við ketti í Almannadal (Fjárborgir), Reykjavík þar sem er fjöldi katta og hafa læður sést með litla kett- linga húkandi undir timburstöfl- um og gámum. Á svæði Sörla í Hafnarfirði er aragrúi katta, hungraðir og illa til reika, og þeir leita mikið í nálægar mannabyggðir og fá misjafnar móttökur þar. Svæði Gusts í Kópavogi: Hestamenn sögðu okkur að þar væri mikið um ketti, sumir veikir og ekki væri verið að sinna þeim sérstaklega og þeir fjölguðu sér takmarkalaust. Í Hesthúsahverfinu við Akur- eyri, Breiðholti, er urmull katta, margir hverjir illa á sig komnir og margir heimiliskettir sem hent hefur verið út. Slíkt á sjálfsagt við um fleiri hesthúsa- hverfi. Kattavinafélag Íslands treystir á að samborgarar þessa lands hjálpi til við að koma þessum kisum í skjól, gefa þeim mat nokkra daga í röð og láta Katt- holt eða lögreglu vita. Nú er frost dag eftir dag og það er sorglegt að sjá þessa litlu mál- leysingja ráfa um götur og sund í leit að æti. Stöndum saman og virðum rétt þeirra til góðs lífs, heimilis og matar. Í 9. gr.núverandi dýralaga stendur: „Verði maður var við að dýr sé sjúkt, lemstrað eða bjargarlaust að öðru leyti ber honum að veita því umönnun eftir föngum. Gera skal lögreglu eða dýralækni við- vart eins fljótt og unnt er.“ Þessi grein segir einfaldlega að við erum öll ábyrg. Sam- félagsleg ábyrgð þarf að komast til skila svo kisur jafnt sem aðrir eigi gleðileg jól. Það að bjarga varnarlausu dýri, gefur manni svo mikið að þannig finnur maður hinn sanna jólaanda; því get ég lofað ykkur. Kattavinafélagið treystir á ykkur og óskar ykkur gleði- legrar aðventu og gleðiríkrar jólahátíðar. F.h. stjórnar Kattavinafélags Íslands Samábyrgð á hugruðum köttum á vergangi Það eiga ekki allir gleðileg jól Anna Kristine Magnúsdóttir formaður Kattavinafé- lags Íslands Kamilla og vinir hennar þurfa að kljást við kexvitlausan vísindamann, fluggáfaðan úlf og sína eigin foreldra í þessari þrælfyndnu bók. Sérlegir sérfræðingar í barn a- og unglingabókum Rækilega fyndin og spennandi! „frábær húmor ...einstaklega vönduð“ Edda Björgvins leikkona fyrir ára 7-12 „Bull- fyndin bók“ Rökkvi 10 ára Vorið 2012 hlaut Bókabeitan Vorvinda IBBY fyrir framlag sitt til barnamenningar 6. sæti yfir mest seldu barna- og unglingabækur* * M et sö lu lis ti E ym un ds so n vi k un a 1 4 .-2 1 . nó v. 20 viðhorf Helgin 30. nóvember-2. desember 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.