Fréttatíminn - 30.11.2012, Blaðsíða 4
Nýr sportjeppi á hrikalega góðu verði
Dacia Duster
Kr. 3.990 þús.
GROUPE RENAULT / NISSAN BL. ehf / Sævarhöfða 2
110 Reykjavík / Sími 525 8000
www.dacia.is
Dísil 5,3L/100 km
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Vetrarsól Víðast á landinu og
frystir á ný.
HöfuðborgarsVæðið: Léttir tiL
með vægu frosti.
slagViðursrigning sV- og V-til þegar líður
á daginn. snjóar á fjallVegum.
HöfuðborgarsVæðið: versnandi veður
með sLyddu og rigningu frá hádegi.
Úrkoma, einkum sunnantil. Væg leysing
í byggð, en snjóar á fjallVegum.
HöfuðborgarsVæðið: samfeLLd úrkoma,
sLydda eða rigning.
Vetrarsól og síðan
slagviðri
Þessi líka fíni dagur um mest allt land í dag
þar sem lág sólin lætur sjá sig. um miðjan
dag á morgnun nálgast síðan skil lægðar úr
vestri. Þau verða hægfara og með þeim hlýnar
aðeins, en enginn alvöru bloti.
sa vindur og spáð er snjó víða á
fjallvegum um vestanvert landið
frá því seint á laugardag og
á sunnudag. norðaustan-
og austantil verður vindur
hægari og ekki úrkoma fyrr
en á sunnudagskvöld.
-1
-2 -5
-4
-1
3
-1 -9 -10
0
2
1 -2 -7
4
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
OYSTER PERPETUAL DATEJUST
Michelsen_255x50_C_0612.indd 1 01.06.12 07:21
u rsula Vurzer vinnur fyrir sér með því að fara út í búð fyrir fólk og kaupa í matinn. Hún auglýsir þjónustu sína á bland.is og hefur síminn hjá
henni vart stoppað frá því auglýsingin birtist. Hún fer
út í búð fyrir fólk og kaupir inn og kemur með vörurnar
heim – fyrir 800 króna þóknun.
Hún hikar ekki við að ferðst með innkaupapokana í
strætó. „Ég hef nægan tíma,” segir hún
„Það er mest mjög upptekið fólk sem hefur haft sam-
band,“ segir Ursula. Flestir eru á aldrinum 30-40 ára.
Að sögn Ursulu skýrist það líklega helst af því að það
sé sá aldurshópur sem heimsækir bland.is mest. „Ef
gamla fólkið vissi af þessari þjónustu er ég sannfærð
um að það myndi notfæra sér hana,” segir Ursula.
Aðspurð segir hún fólk ekkert hikandi við að af-
henda henni peninga og innkaupalista. „Fólk virðist
alveg treysta mér,“ segir hún. Hún fer í þá búð sem fólk
óskar eftir, oftast í Bónus.
Aðspurð segir hún flesta borða mjög hollan mat.
„Konur biðja þó um áberandi hollari vörur en karlar,”
segir Ursula.
Ursula býður einnig fram þjónustu sína við aðra
heimilishjálp, svo sem þrif og aðstoð í veislum. „Ég get
undirbúið veislur fyrir fólk og gengið frá á eftir,“ segir
hún.
Ursula er austurrísk og verður hér á landinu í fáeina
mánuði. Markmiðið er að kynnast landi og þjóð. Um
miðjan desember fer hún til Akureyrar og ætlar að
vinna þar á sveitabæ í sex vikur.
sigríður dögg auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Fleiri karlar stunda sund en konur sam-
kvæmt tilraunaverkefni í kynjaðri fjárhags-
og starfsáætlunargerð hjá Reykjavíkurborg,
samkvæmt tilkynningu.Þar kemur fram
að mestur er munurinn á aðsókn kynjanna
í Sundhöllina. 68% gesta laugarinnar eru
karlmenn. Í flestum öðrum laugum er hlut-
fallið jafnara en hjá krökkum frá 0-18 ára
eru fleiri stelpur í sundi en strákar. Í rann-
sókninni, sem Þór Steinarsson er verkefna-
stjóri yfir, var líka rannsakað hversu margir
nota vefinn Betri Reykjavík; ívið fleiri kon-
ur. Svo var athugað hvort Borgarbókasafnið
kaupi bækur eftir kyni. Þar á bæ, árið 2011,
komu út 112 titlar eftir konur og 173 eftir
karla. Keypt voru 1.960 eintök eftir konur
eða að meðaltali 17,5 eintök af hverjum titli
en 2.645 eintök eftir karla eða að meðaltali
15,2 eintök af hverjum titli. Niðurstaðan,
samkvæmt fyrrnefndri tilkynningu, var að
fjárlög og fjárhagsáætlanir mismuni ekki
kynjunum en „fjárúthlutanir eru ekki að
nýtast kynjunum jafnt og er því ekki um
kynhlutleysi að ræða heldur kynblindu.“
verslar Fyrir Fólk Fyrir 800 krónur
ursula Vurzer dó ekki ráðalaus þegar hana vantaði vinnu. hún auglýsti þjónustu á Barnalandi þar sem hún býðst til að kaupa í
matinn fyrir fólk fyrir 800 króna þóknun. hún hefur fullt að gera. Mynd Hari
Vinnur við að kaupa í matinn
ung kona vinnur fyrir sér með því að fara út í búð fyrir fólk og kaupa í matinn. mjög upptekið fólk
nýtir sér helst þjónustu hennar sem hún auglýsir á bland.is
Konur biðja þó
um áberandi
hollari vörur
en karlar.
Karlar elska
Sundhöllina
miklu fleiri karlar sækja gömlu sundhöllina en konur.
68%
gesta sundhaLLar-
innar eru karLar.
55%
sundgesta á aLdr-
inum 0-18 ára eru
stúLkur.
17,5
meðaLtaLs kaup
Bókasafna af Bóka-
titLum eftir konur.
15,2
meðaLtaLs kaup
Bókasafna af Bóka-
titLum eftir karLa.
4 fréttir helgin 30. nóvember-2. desember 2012