Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.11.2012, Page 8

Fréttatíminn - 30.11.2012, Page 8
Ljósin tendruð á Oslóartrénu 7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum. www.kia.is ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi. Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 2- 20 30 Við kynnum nýjan Kia cee’d Sportswagon – stærri og rúmbetri útgáfu af hinum vinsæla Kia cee'd. Hann er vel búinn og kraftmikill en samt sparneytinn, eyðir frá aðeins 4,4 l/100 km í blönduðum akstri. Komdu við í sýningarsal Öskju að Krókhálsi 11 eða hjá umboðsmönnum okkar og kynntu þér þennan stórglæsilega bíl. Við tökum vel á móti þér. Þér er boðið að reynsluaka nýjum Kia cee’d Sportswagon Verð frá 3.590.777 kr. Kia cee’d Sportswagon dísil *M.v. 50% útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti. Árleg hlutfallstala kostnaðar 11,06 %. Aðeins 30.777 kr. á mánuði í 84 mánuði* Kaupau ki: Vetrar - dekk Ljósin verða tendruð á Oslóartrénu á Austurvelli á sunnudaginn, 2. desember, klukkan 16. Jón Gnarr borgarstjóri tók þátt í að fella tréð í Sol- emskogen við Grefsen í Osló í byrjun mánaðarins en það var flutt frá Fredrikstad til Reykjavíkur. Íbúar Oslóar hafa í yfir sextíu ár fært Íslending- um grenitré að gjöf og hefur það ætíð verið sett upp á Austurvelli. Dagskráin á sunnudag hefst með leik Lúðrasveitar Reykjavíkur klukkan 15.30. Eftir ávörp sendiherra Noregs, borgarstjóra og fleiri mun hinn sex ára norsk-íslenski Jörundur Ísak Stefánsson tendra ljósin á trénu. -hdm Jólakaffi Hringsins Jólakaffi Hringsins í ár verður haldið 2. desember á Broadway við Ármúla. Það hefst klukkan 13.30. Jólakaffi Hringsins sem árlega er haldið fyrsta sunnudag í desember er löngu orðin hefð og er einn af hátíðisdögum Hringsins. Salurinn á Broadway er hátíðlega skreyttur, veitingar að hætti Hringskvenna eru á borðum og ljúfir tónar hljóma meðan gestir ganga í salinn. Og skemmtikraftar bíða eftir að stíga á svið og leika listir sínar. Jólahappdrættið vekur jafnan mikla eftirvæntingu, sérstaklega meðal barnanna. Vinningarnir eru allir gefnir af velunnurum Hringsins, fjölda fyrirtækja og einstaklinga. Læknar og starfsfólk af Barnaspítala Hringsins aðstoða Hringskonur á þessum degi ásamt Ísbirninum Hringi sem er góður vinur barnanna á barnaspítalanum. Jólakort Hringsins sem eru mikilvæg fjáröflun verða til sölu. Allir sem þátt taka í þessari miklu hátíð gefa framlag sitt og ágóðinn rennur óskiptur í Barnaspítalasjóð Hringsins. Alþjóðleg öryggisvottun staðfest hjá Nýherja British Standard Institute (BSI) hefur staðfest vottun stjórnkerfis upplýs- ingaöryggis Nýherja samkvæmt alþjóðlegum staðli, að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins. Rek- starþjónusta Nýherja hlaut fyrst staðfesta vottun á þessu sviði árið 2004. „Vottunin hefur mikla þýðingu fyrir Nýherja og við- skiptavini, enda staðfestir hún að unnið sé eftir ströngum öryggisreglum í allri meðferð upplýsingagagna. Þetta er ekki síst mikil- vægt fyrir þá aðila sem eru eftirlitsskyldir af FME, en þetta uppfyllir m.a. kröfur þeirra til hýsingaraðila upplýsingakerfa, sem þeim er gert að fylgja, sem úthýsa sinn rekstur,“ segir á síðunni. Í niðurstöðum úttektar BSI segir meðal annars að vitund og þekking á öryggisreglum og öryggisstefnu sé mikil hjá Nýherja og því sé úttektin án athugasemda. Þá sé stjórnkerfi upplýsingaöryggis í stöðugri þróun hjá félaginu og sterk hefð sé fyrir notkun kerfisins, sem byggir á sterkum eftirlitsþáttum. - jh  Kristínarhús 22 Konur og 8 börn hafa dvalið í Kristínarhúsi á rúmu ári Íslensku konurnar koma oft úr ansi langri og harðri neyslu. Þriðja barnið að fæðast í vændisathvarfinu Frá því að Stígamót opnuðu vændisathvarfið Kristínarhús fyrir rúmu ári hafa 22 konur dvalist í húsinu og átta ung börn. Tvö þeirra fæddust þar og hið þriðja er á leiðinni. Helmingur kvennanna er íslenskur og koma flestar úr mikilli neyslu og erfiðum aðstæðum. a lls hafa 22 konur, helmingur þeirra íslenskar, og átta börn nýtt sér þjónustu vændisathvarfsins Kristínarhúss frá opnun þess í september á síð- asta ári. Tvö börn hafa fæðst í Kristínarhúsi og búa þar enn og þriðja er væntanlegt í heiminn í lok desember. Að sögn Steinunnar Gyðu- og Guðjónsdóttur, for- stöðukonu Kristínarhúss, koma konur í misgóðu ástandi í athvarfið. „Íslensku konurnar koma oft úr ansi langri og harðri neyslu en eru yfirleitt edrú þegar þær koma til okkar. Það hefur ýmislegt gengið á í lífi þeirra og þær eru oft illa staddar. Erlendu konurnar koma oft til okkar fljótlega eftir að þær koma til landsins en hafa verið neyddar til að stunda vændi í Evrópu,“ segir Stein- unn. Þrjár nígerískar konur sem búa í Kristínarhúsi sögðu sögu sína í viðtali í Kastljósi í vikunni. Þar kom fram að þær hefðu þurft að sinna allt frá tíu og upp í tuttugu viðskiptavinum í dag í götuvændi á Ítalíu. Þær voru allar barnshafandi við komuna til landsins, allt frá því að vera gengnar tvo mánuði upp í átta mánuði. Tvær þeirra eignuðust börn sín í Kristínarhúsi og sú þriðja á von á sér í desember. Þær hafa ýmist flúið erfiðar að- stæður í heimalandi sínu eða einfaldlega verið hnepptar í þrældóm. „Við vitum ekki hvort þessar konur hafa stundað vændi hér á landi, sögurnar þeirra eru ekki alveg skýr- ar. Það er mjög erfitt að vinna traust þessara kvenna, þær segja manni stundum eitthvað sem gerðist fyrir þó nokkru og eru jafnvel ekki tilbúnar að segja frá því sem er nýliðið af ótta við að upplýsa um eitthvað sem þær mega ekki upplýsa,“ segir Steinunn. Að sögn Steinunnar búa konurnar í Kristínarhúsi mislengi í vændisathvarfinu. „Þær sem hafa þegið hjálp og gengur ágætlega hafa verið í að minnsta kosti hálft ár hjá okkur,“ segir hún. Konurnar eru allt frá 18 ára og upp í tæplega sextugt, að sögn Steinunnar, en flestar á þrítugsaldri. „Þær konur sem koma til okkar og segjast ekki hafa stundað vændi eru að flýja annars konar ofbeldisað- stæður, oft skipulagða glæpastarfsemi á borð við hand- rukkun og þess háttar,“ segir Steinunn. Margar eru í misjafnlegu líkamlegu ástandi og koma jafnvel slasaðar í athvarfið. Þær fá aðhlynningu eftir þörfum og koma þá í athvarfið eftir að vera búnar að ná sér á spítala. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Tvö ungbörn búa nú í Kristínarhúsi ásamt mæðrum sínum og þriðja barnið er væntanlegt í heiminn í desember. Ljósmynd/NordicPhotos/GettyImages 8 fréttir Helgin 30. nóvember-2. desember 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.