Fréttatíminn - 30.11.2012, Side 28
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
5
3
12
siminn.is · 8004000@siminn.is
Vertu með símkerfið
í öruggum höndum
hjá Símanum
Fyrirtæki
Fast mánaðargjald
fyrir aðgang
að IP símkerfi
Símavist hentar flestum gerðum fyrirtækja,
óháð stærð og starfsemi.
Með Símavist býðst fyrirtækjum að leigja IP símkerfi gegn
föstu mánaðargjaldi sem ræðst af fjölda starfsmanna sem nota
kerfið. Símkerfið er hýst í vélasölum Símans og fyrirtæki þurfa
ekki að fjárfesta í vélbúnaði eða stýrikerfum.
Hafðu samband við Fyrirtækjaráðgjöf
í síma 800 4000 og sérfræðingar
okkar finna hagkvæmustu lausnina
fyrir þitt fyrirtæki.
Alþjóðlegur
alnæmis
dagur Sam
einuðu
þjóð anna er
á morgun,
1.desember.
Frá því fyrsti einstak
lingur var greindur
með HIV á Íslandi árið
1983 hafa 297 greinst
með HIV veiruna og
39 hafa látist.
Samtökin HIV
Ísland (sem áður hétu
Alnæmissamtökin)
verða 25 ára á næsta
ári og á morgun halda
samtökin að venju
upp á „Dag rauða
borðans“. Boðið
verður upp á kaffi
og hnallþórur millli
klukkan 15 og 18 í
húsi samtakanna
að Hverfisgötu 69.
Tónlistarmenn og
rithöfundar koma í
heimsókn. Slagorð
dagsins er:
„Náum núllpunkti,
eyðum fordómum.“
Skrifstofa HIVÍsland
að Hverfisgötu 69
er opin milli klukkan
13 og 16 alla virka
daga. Framkvæmda
stjóri er Einar Þór
Jónsson. Símanúmer
á skrifstofu eru 552
8586 og 552 0582.
svo að hraka um haustið, minnið fór að miklu leyti
og hann var mjög veikur. Þá var hann kominn með
alnæmi á lokastigi og lést 12. júlí 1990. Það voru
þrjú ár milli Grétars og pabba hans upp á dag.
Grétar varð 48 ára og ég 42 ára ekkja. Jarðarförin
var mjög erfið en samt var þetta í fyrsta skipti sem
ég brosti í jarðarför. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson
jarðsöng en hann er frá Bíldudal eins og Grétar og
þekkti hann vel. Séra Jakob rifjaði upp skemmtileg
atvik sem þeir hefðu átt saman, Grétar og hann.
Eftir að Grétar var jarðsettur gat ég alveg sagt hvað
hefði verið að. Það var í raun mjög skrýtið að ég
skildi hafa sloppið, því við vorum jú hjón.“
Þannig að þegar hann lést gast þú ekki sagt
„blóm og kransar vinsamlega afbeðnir, en þeim
sem vilja minnast hans láti Alnæmissamtökin njóta
þess?“
,,Nei, ég þorði það ekki þá, en ég myndi gera
það núna alveg hiklaust. Þetta var svo mikið tabú,
alveg skelfilegt og enn þann dag í dag er þetta
alltof mikill feluleikur. Haustið 1990 fór ég að vinna
í efnalauginni Hvítir flibbar í Grafarvogi, og þar
hitti ég mann sem ég þekkti frá gamalli tíð og öll
hans skapbrigði þekkti ég strax. Ég hitti vinkonu
hans nokkru síðar og spurði hvað væri að frétta
af honum þegar hann fór á sjúkrahús.. Ég spurði
hvort hann væri HIV smitaður og það reyndist rétt.
Ég þekkti öll einkennin. En hann sagði mér aldrei
frá því sjálfur og lést ekki löngu síðar.“
Segið sannleikann strax
Breytti þetta þér?
„Nei, mér finnst það ekki. Ég hef alltaf verið
þannig að ég hef alltaf tekið upp hanskann fyrir þá
sem minna mega sín. Ég elskaði hann alltaf jafn
mikið. Það komu nú ekki margir vinir í jarðarför-
ina, enda þarf ég ekki á slíkum „vinum“ að halda.
Við Gunnlaugur komum fram í sjónvarpsþætti hjá
Stefáni Jóni Hafstein veturinn 1989 og ræddum um
HIV, en við vorum skyggð svo við þekktumst ekki.
Grétar vildi alveg koma fram undir nafni og láta sjá
hver hann væri. Grétar var svo reiður af því það var
alltaf talað um að þetta væri hommasjúkdómur, en
hann vissi betur. Einhvern tíma voru konur eru í
meirihluta þeirra sem greindust með HIV smit og
á síðustu árum eru það fleiri gagnkynhneigðir en
samkynhneigðir sem greinast.“
Er eitthvað sem þú getur ráðlagt fólki sem stend-
ur í sömu sporum nú og þú gerðir?
„Að segja sannleikann strax. Það var mikill léttir
þegar ég gat sagt fólki sannleikann og ég ráðlegg
fólki eindregið að gera það strax. Einn vinur okkar
hringdi til dæmis og sagði: „Ég frétti að Grétar
væri annaðhvort með krabbamein eða Aids?“ Og ég
svaraði að það væri hvorugt. Þetta var skömmu eft-
ir að ég frétti hvað væri að og var alls ekki tilbúin
að bera það á torg. Þessi maður hefur aldrei talað
við mig eftir þetta, í 23 ár. Það er alltof erfitt fyrir
eina manneskju að bera þetta eins og leyndarmál í
hjartanu. Þeir sem voru alvöru vinir komu strax og
hafa alla tíð síðan sýnt mér mikla hlýju og vináttu.
Mesta stuðninginn fékk ég þó frá börnunum mín-
um. Gulli sonur minn og Elísabet, þáverandi kona,
hans bjuggu heima hjá mér og þau voru mér allt.
Ég sótti styrk í trúna eins og ég held að flestir gera
þegar erfiðleikar steðja að. Ég fer alltaf með bænir
og leita til Guðs.
Það hjálpaði mér mikið eftir dauða Grétars að
hann átti lítinn bróðurson sem ég fékk að hafa mik-
ið um helgar. Ég fór með honum og mömmu hans
til Portúgals og fólk skildi ekkert í því að hann
kallaði mig ömmu og mömmu sína mömmu, en hún
er sex árum yngri en ég! Hann er alltaf að rukka
mig um að ferðina til Portúgals sem ég ætlaði að
bjóða honum í þegar ég ynni í Lottóinu. Nú er hann
24 ára og ég hef ekki enn unnið í Lottóinu en við
eigum vonandi eftir eina Portúgalsferð.“
Fjölhæfur og skemmtilegur félagsskapur
Saknaðirðu Grétars?
„Já ég gerði það mjög lengi. Það var svo oft
gaman hjá okkur. Hann var svo listrænn, málaði,
var í hljómsveit með Jóni Kr. Ólafssyni á Bíldudal,
fjölhæfur að öllu leyti og var skemmtilegur félags-
skapur. Alltaf rólegur og yfirvegaður, aldrei vesen
og ég minnist hans með mikilli hlýju. Það var líka
sérstakt við Grétar að þegar hann kom úr vinnunni
fór hann strax úr vinnugallanum og í stífpressaðar
buxur og skyrtu. Reiðin kom ekki út fyrr en eftir á.
Ef ég fór út að skemmta mér og karlmenn komu að
tala við mig fann ég að öllu. Þau voru í óburstuðum
skóm, ógreiddir og ég veit ekki hvað og hvað, og
ég þurfti náttúrlega endilega að segja þeim frá því!
Það var vegna þess að Grétar, þessi snyrtipinni, var
mér svo ofarlega í huga.“
Gunnlaugur Ingivaldur, sonur Grétars og Ingi-
bjargar, er greinilega líkur móður sinni því hann
hellti sér fljótlega út í að starfa fyrir Alnæmissam-
tökin, sem nú heita HIV Ísland.
„Já, Gunnlaugur Ingivaldur fór í stjórn Alnæmis-
samtakanna, sat í stjórn í sjö ár og var formaður
þar af í þrjú ár. Hann á tvö börn með fyrri konu
sinni Elísabetu, þá Grétar Inga sem er tvítugur og
skírður í höfuðið á okkur Grétari, og Arnar Gauta
sem er þrettán ára og á að fermast í vor. Gulli minn
og núverandi kona hans, Þórdís, eiga tvö börn,
Friðmeyju Heklu sem er fjögurra ára og Mar-
inó Geir sem er að verða tveggja ára. Mér finnst
svo gott hversu gott samband er á milli Gulla og
Elísabetar og nýju makanna þeirra. Gunnlaugur
og Þórdís fóru til dæmis nýlega til Belgíu þar sem
Elísabet býr nú og bjuggu hjá henni og hennar
manni í viku. Grétar Ingi minnir mig mjög oft á afa
sinn og nafna, einkum hvað hann er listrænn.“
Hjartað í húsi Geðhjálpar
En það hefur enginn stungið upp á því að þú skild-
ir við Grétar þegar hann greindist?
„Jú, jú, elskan mín, það voru nokkrir sem skildu
ekkert í því að ég skildi ekki við Grétar, þegar þeir
vissu hvaða sjúkdóm hann var með. Ég er mjög
þolinmóð að upplagi og hef yfirleitt ekkert látið æsa
mig upp, en mér finnst ég einhvern veginn vera að
breytast núna, er farin að hvessa mig þegar mér
finnst óréttlæti ætla að ná yfirhöndinni. En ég á
yndislegan sambýlismann núna, Guðmund Aðal-
steinsson, sem er líkur Grétari að því leyti að hann
er rólegur og algjörlega vesenslaus maður; mikill
friðarsinni,“ segir hún.
Ingibjörg starfar sem ráðskona í húsi Geðhjálpar
við Túngötu og eftir að hafa setið með henni dags-
stund skil ég mætavel að hún sé kölluð „hjarta
hússins“ af þeim sem þangað sækja. Þótt umræðu-
efnið hafi verið erfitt, náum við að fá eitt hressi-
legt hláturskast í lokin þegar ég segi henni að ég
hafi farið inn á Wikipedia og slegið inn leitarorðið
„alnæmisdagurinn“ og fengið svarið: „Varstu að
leita að Landnámsmaðurinn? Já hún er hláturmild
og kát hún Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, sem vinir
hennar kalla Imbu Gull og þann titil þarf ekkert að
útskýra...
Anna Kristine
ritstjorn@frettatiminn.is
28 viðtal Helgin 30. nóvember-2. desember 2012