Fréttatíminn - 30.11.2012, Qupperneq 36
Ég þagði yfir
ofbeldinu því
ég vissi ekki að
ég ætti að segja
mömmu og
pabba frá því.
Heimilistæki,
ljós og símar
í miklu úrvali.
Komdu í heimsókn til
okkar á aðventunni
og gerðu góð kaup.
Fjöldi tækja á séstöku
jólaverði.
Nóatúni 4 Sími 520 3000
www.sminor.is
Sjón er sögu ríkari.
Jólaverð:
7.880 kr. stgr.
Símtæki
Gigaset
Jólaverð:
2.300 kr. stgr.
Eldhúsvogir
Adler
Jólaverð:
114.900 kr. stgr.
Þvottavél
SIEMENS
Jólaverð:
119.900 kr. stgr.
Þurrkari
SIEMENS
Jólaverð:
23.900 kr. stgr.
Skaftryksuga
BOSCH
Jólaverð:
Handþeytari
BOSCH
5.200 kr. stgr.
Jólaverð:
Borðlampar
VENDELA
8.900 kr. stgr.
G
uðrún Bergmann ætlar enn að stunda
jóga þegar hún verður hundrað ára.
Hún ætlar sér að vera „ung á öllum
aldri“ eins og nýja bókin hennar heitir
og segist vera í betra formi, andlega og
líkamlega, nú á sjötugsaldri, en hún hefur nokkru
sinni verið. Bókinni er ætlað að vera innblástur fólks
sem komið er á miðjan aldur og vill eiga heilsuhraust
efri ár. „Það er svo mikilvægt að byrja strax. Það sem
við gerum í dag ræður því hvernig okkur líður eftir
fimm, tíu eða fimmtán ár. Það er mitt hjartans mál
að vekja fólk til umhugsunar í tæka tíð og fá það til
að breyta lífsháttum sínum strax í dag svo það geti
notið efri áranna. Lífaldur okkar er sífellt að lengjast
en heilsa okkar hefur ekki batnað í samræmi við
það. Við getum breytt því,“ segir Guðrún.
Hún segist hafa tvo málshætti til viðmiðunar: „Ef
þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag – hefur þú
ekki heilsu fyrir tímann á morgun,“ segir hún. Og
hitt: „Við eyðum fyrri hluta ævinnar í að afla tekna
og tapa heilsunni og síðari hluta ævinnar í að nota
tekjunnar til að ná heilsunni aftur. Því það er dýrt
að verða veikur,“ bætir hún við, „og dýrt að ná upp
heilsu aftur. Því er svo mikilvægt að byrja strax.
Það er alltaf hægt að finna tíma, þetta er alltaf val.
Okkur finnst við ódrepandi þegar við erum ung, að
ekkert geti skaðað okkur og við getum allt. Ég var
ekkert öðruvísi. En svo verðum við hissa þegar við
veikjumst. Jafnvel þótt við séum búin að sjá merkin í
dálítið langan tíma og jafnvel ekkert gert í því,“ segir
Guðrún.
Guðrún hefur lifað og hrærst í heilsu og andlegum
málefnum frá því hún var táningur, byrjaði 18 ára að
stunda jóga, sú eina úr vinkvennahópnum, og hefur
gert það æ síðan. Síðastliðna áratugi hefur hún gert
ýmsar tilraunir með mataræði sitt því hún varð fyrir
áfalli í æsku sem varð til þess að hún var komin með
magasár tíu ára og hefur átt við vandamál í melting-
arfærum að stríða alla tíð.
Nauðgað sjö ára
„Ég varð fyrir kynferðislegri misnotkun þegar ég var
barn, tæplega sjö ára gömul. Ég þagði yfir ofbeld-
inu því ég vissi ekki að ég ætti að segja mömmu og
pabba frá því,“ segir Guðrún. „Ég missti á vissan
hátt málið því ég gat ekki einu sinni æpt á meðan
nauðguninni stóð.“ Guðrún lokaði hryllinginn svo
djúpt í undirvitundinni að það opnaðist ekki á hann
fyrr en hún stóð á fertugu. „Ég gróf þetta svo djúpt í
gleymskunnar dá að ég get ekki rifjað upp, þegar ég
hugsa til baka yfir líf mitt, að ég hafi nokkurn tím-
ann munað eftir þessu. Ástæðan fyrir því að ég segi
frá þessu í bókinni er sú að líkamleg vandamál mín
tengjast mörg þessu atviki þótt ég gerði mér ekki
grein fyrir því fyrr en miklu seinna á lífsleiðinni,“
segir Guðrún, „og ég held að fleiri séu í sömu stöðu
og geti lært af minni reynslu.“
Hún þróaði með sér alvarlega kvíðaröskun, fékk
kvíðaköst og niðurgang af minnsta tilefni, varð fíkin
Ætlar að stunda jóga 100 ára
Guðrún Bergmann segir ellinni stríð á hendur,
ætlar að vera ung á öllum aldri og stunda jóga
hundrað ára. Hún segir að fólk þurfi að huga
að heilsunni snemma á ævinni ætli það að
vera heilsuhraust gamalmenni. Hún varð fyrir
misnotkun sjö ára sem olli heilsufarstjóni fyrir
lífstíð, andlegu sem líkamlegu.
í sætindi og fór að kasta upp þeim mat sem hún
borðaði, jafnt að nóttu sem degi. Þegar hún hafði
strítt við þessi veikindi í þrjú ár var hún lögð inn
með magasár – tíu ára gömul. „Meltingarstarf-
semin hefur alltaf verið til vandræða hjá mér,“
segir Guðrún, „og auðvitað alls kyns tengd vanda-
mál, svo sem bjúgur, höfuðverkir og mígreni.
Vestræn læknisfræði var bara ekki með svörin við
þessu og ég var stimpluð ímyndunarveik 18 ára.
Ég var ekki sátt við það og fór sjálf að leita lausna.
Stundum verður maður að fara á botn sársaukans
til þess að fara að leita. Ég féll tiltölulega fljótt á
minn sársaukabotn þótt ég fyndi ekki lausnir fyrr
en miklu síðar.“
Kynntist ástinni 17 ára
Guðrún fór að stunda jóga og lesa sér til um and-
leg mál og fór að gera tilraunir með mataræðið.
Hún var fíkin í sykur og komst að því síðar að
sykurneyslan var ein af orsökum vanlíðaninnar.
Á þessum tíma hafði hún kynnst ástinni í lífinu
sínu, Guðlaugi Bergmann. Árið 1968, þegar Guð-
rún var sautján ára, hitti hún Guðlaug á skrif-
stofu hans, en þá rak hann Karnabæ, sem var
aðaltískubúð þessa ára, því hún hafði verið hvött
til að sækja um starf hjá honum, þótt hún væri í
raun komin með sumarstarf. „Það gerðist eitthvað
þegar við hittumst. Við horfðumst í augu og það
varð samstundis einhver tenging. Við fundum það
bæði. Það má segja að það hafi verið upphafið að
kynnum okkar,“ segir hún.
Guðrún verður ögn hlédræg þegar talið berst
að Gulla, eins og hún kallar hann. Hann er ástin í
lífi hennar – þótt samband þeirra hafi ekki verið
hefðbundið framan af. Hann var kvæntur og átti
börn með eiginkonu sinni, lifði tveimur aðgreind-
um lífum í mörg ár – átti tvær fjölskyldur. Guðrún
eignaðist með honum tvo drengi á meðan hann
var enn í hinu hjónabandinu, Guðjón árið 1972 og
Guðlaug yngri árið 1979.
Líf Guðrúnar og Guðlaugs fór fram í felum.
„Hvernig gat ég sætt mig við þetta?“ spyr Guðrún
og hlær. „Það er von að þú spyrjir. Það fór ekki á
milli mála að okkur þótti gífurlega vænt um hvort
annað. Það var mikil ást í þessu sambandi og við
áttum erfitt með að slíta okkur hvort frá öðru.
Ég trúði því alltaf að hann ætlaði að fara að gera
breytingar á sínum högum og því var sífellt verið
að lengja sambandið út frá því. Ég get ekki skýrt
það öðruvísi en að kannski þurfti ég að fara í
gegnum allt þetta ferli til að finna út hver ég er.“
Af þessum sökum var Guðrún félagslega ein-
angruð í sambandinu við Gulla í meira en áratug.
Það var raunar ekki nýtt fyrir hana. „Þegar maður
verður fyrir nauðgun einangrast maður einhvern
veginn inn í sér og þess vegna fannst mér kannski
allt í lagi að vera félagslega einangruð þegar ég
var ung kona.“ Hún segir að sjálfsmynd sín hafi
að auki verið sködduð – hún hafi ekki haft neinar
varnir. „Varnirnar mínar voru brotnar þegar ég
var barn og kannski er það ein ástæða þess að
ég fór inn í framhjáhaldssamband með kvæntum
manni.“
Framhald á næstu opnu
Guðrún Bergmann: „Eftir
langa og stranga leið hef
ég loks náð þeim áfanga í
lífinu að vera virkilega sátt
og ánægð í eigin skinni,
laus við drauga fortíðar
og sannfærð um að ég geti
verið ung á öllum aldri eins
lengi og ég er tilbúin að
leggja mig fram um það.“
Ljósmyndir/Hari
36 viðtal Helgin 30. nóvember-2. desember 2012