Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.11.2012, Síða 54

Fréttatíminn - 30.11.2012, Síða 54
Þ að þyrftu allir að koma þangað, til þess að átta sig á þessu. Allir úr okkar heimi. Þá væri þetta ekki svona,“ segir Gunnar Hansson leikari um dvölina í Búrkina Fasó, þar sem hann sinnti sjálfboðastarfi fyrir UNICEF. Hann segir að ferðin hafi breytt sér til hins betra. „Ég fékk ótrúlegt menningarsjokk, samt ekki á slæman hátt. Þetta er bara svo ótrúlega ólíkt því sem maður þekkir. Maður er líka alltaf að spegla sig og sinn heim, ég er faðir og ég reyndi að sjá fyrir mér börnin mín í mörgum af þessum aðstæðum, það var mjög skrítin til- finning.“ Gunnar Hansson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands vorið 1997. Hann hóf störf hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 2000 og hefur meðal annars leikið í kvikmynd- unum, Fíaskó, Mávahlátri sem og erlendu stórmyndinni Bjólfskviðu. Hann hefur einnig komið fram í margvíslegum sjónvarpsþáttaröð- um og hefur leikið í áramótaskaup- inu um árabil. Gunnar er einn af höfundum og leikendum Sigtisins og persóna hans, Frímann ætti að vera flestum kunn. „Ég elska vinnuna mína og vegna þess hve sveigjanleg hún getur verið hugsa ég mikið um það að gera eitthvað til góðgerðar, það er mér mjög mikil- vægt og ég reyni því að taka þátt í öllu því sem ég er beðinn um. Það brennur líka alltaf á mér að gera meira um leið og ég geri eitthvað eitt. Manni líður svo svakalega vel eftir á og auðvitað á maður að sækj- ast í að gera það sem lætur manni líða vel.“ Gunnar fór og ræddi við Stefán Inga Stefánsson hjá UNICEF og sagði honum frá áhuganum um að gera eitthvað fyrir samtökin. „Ég hafði enga tengingu við UNICEF, þannig. Ég hef verið heimsfor- eldri lengi og hef unnið einhverja „sketsa“ á degi rauða nefsins en langaði að gera meira. Stefán er al- veg ótúlegur maður. Hann er á aldri við mig og dag einn tekur það upp hjá sjálfum sér að opna UNICEF á Íslandi. Þær eru ótrúlegar upphæð- irnar sem honum hefur tekist að safna, en Íslendingar eru líka svo svakalega duglegir að gefa til góð- gerðarmála. Það er í raun magnað að meira að segja í gegnum hrunið, Árlegur dagur rauða nefsins verður haldinn föstudaginn 7. desember og nær hámarki með söfnunar- og skemmtiþætti á Stöð 2. Rauða nefið er tenging við hlátur og gleði og mark- miðið því að gleðjast og gleðja aðra með léttu sprelli og koma þannig alvarlegum boðskap til skila. Yfirskrift dags rauða nefsins er því „skemmtun sem skiptir máli“. Með átakinu vill UNICEF gleðja landsmenn og vekja um leið athygli á þeirri neyð sem steðjar að milljónum barna um heim allan. Þjóðþekktir grínistar, leikarar, skemmtikraftar, tónlistarmenn og fleira hæfileikafólk eru í farar- broddi dags rauða nefsins. Allur sá stóri hópur fólks gefur vinnu sína til styrktar góðu málefni og gerir dag- inn þannig mögulegan. Við höfum það svo fínt hér á Íslandi Leikarinn Gunnar Hansson er nýkominn heim frá Búrkína Fasó þar sem hann dvaldist á vegum UNICEF. Hann segir að reynslan hafi breytt sér til hins betra og hann sé fullur af eldmóði og vilja til þess að gera meira. „Manni líður svo svakalega vel eftir á og auðvitað á maður að sækjast í að gera það sem lætur manni líða vel.“ Næsta föstudag verður árlegur dagur rauða nefsins haldinn og hægt verður að kaupa trúðanef til styrktar starfi UNICEF. Dagur rauða nefsins mörk en þar er fjöldi lítilla þorpa sem samanstanda af þyrpingu strá- og leirkofa. Í kofunum er svo ekkert rennandi vatn og ekkert rafmagn. „Þetta er mjög framandi miðað við það sem maður hefur sjálfur van- ist,“ segir Gunnar. Hann skoðaði einnig aðstæður götubarna í höfuð- borginni Oagadougou. Þar búa um fimm þúsund börn á götunni. „Ég hitti til dæmis fjórtán ára strák, sem var á götunni og tíu ára stelpu. Það var alveg ótrúlegt að sjá þessi kríli. Þau safna málmi allan daginn sem þau svo selja, til þess að eiga fyrir mat. Þegar að rökkva tekur para þau sig svo saman og sofa tvö og tvö öll svona samkrulluð, eins og ástfangin pör, af því það er örugg- ara og hlýrra. Þessi pínulitlu kríli eru bara undir berum himni og eru ótrúlega flink að redda sér. Strákur- inn gisti til að mynda oft fyrir utan raftækjaverslun því hann gat þá stundum, ef hann var heppinn, séð í sjónvarpsskjá inn um gluggann. Þegar upp er staðið eru þetta bara börn og hafa sömu langanir til þess að leika sér og horfa á sjónvarp og börn annarra landa.“ En fyllist maður ekki reiði og sorg við að upplifa þessar bágbornu aðstæður? „Ég velti því lengi fyrir mér hvernig mér mundi líða, hvort mér mundu fallast hendur. Ég er mjög tilfinningaríkur maður. Ég get ekki horft á krakkana mína koma fram neinstaðar án þess að tárast svo og ég átti alveg eins von á því að verða sorgmæddur og reiður yfir órétt- lætinu. En það varð ekki þannig. Þvert á móti þá fylltist ég eldmóði og sá þó að hægt gangi, þá þokast þetta. Það sem við gerum hefur raunverulega áhrif. Ég get hjálpað og það geta allir.“ Vandi Íslendinga lúxusvandi Gunnar segir að hættulegasta dýrið í Afríku sé án efa moskító- flugan sem beri með sér malaríu. „Ég komst að því að ljónin eru ekki það hættulegasta. Það eru þessar agnarsmáu flugur. Lausnirnar eru svo einfaldar, dreifing á flugnanet- um og smá fræðsla.“ Gunnar skoð- aði einnig spítala og heilsugæslu- stöðvar sem hann segist ekki óska neinum að lenda á „Ég kom inn á spítala sem þykir bara fínn á þeirra mælikvarða. Þar voru tæki og tól öll ryðguð vegna rakans og hrein- læti mjög ábótavant. En þau voru ótrúlega sátt þar sem þau sýndu manni um. Þarna var einhvers- konar fæðingabekkur sem leit út eins og eitthvað í sláturhúsi og á litlu heilsugæslunum í þorpunum er ekki einu sinni rafmagn. Bara gasískápar til þess að kæla bóluefni og lyf.“ Hann segir að hægt sé að bera saman Ísland fyrir hundrað árum við ástandið í Búrkína Fasó. „Það er mjög gott til samanburðar, en hér var þróun mjög aftarlega. Menntun lítil og barnadauði verulegur. Það að við séum komin svona langt gefur manni svo mikla von um að hægt sé að breyta ástandinu. Það er alls ekki ómögulegt.“ Í síðustu viku voru í umræðunni ummæli þingkonunnar Vigdísar Hauksdóttur, en hún sagði Íslend- inga borga of mikið í þróunaraðstoð og kallaði þau gæluverkefni ríkis- stjórnarflokkanna. Gunnar segir ummælin vanhugsuð og byggð á miklum misskilningi. „Ég var mjög hissa þegar ég las þetta. Ég vil ekki gera henni upp neinn illvilja en þetta var augljóslega vanhugsað hjá henni og svolítið eins og hún hafi ekki alveg kynnt sér það sem hún var að segja. Íslenska ríkið er ekki að greiða nema 0,22 prósent lands- framleiðslunnar til þróunarmála. Það er mun minna en flest önnur vestræn ríki. Hún hefði kannski bara gott af því að kíkja aðeins þarna út og skoða aðstæður.“ Gunnar segir að vandamál Ís- lendinga séu lúxusvandamál í stóra samhenginu. „Ég vil ekki gera lítið úr fátækt hér á landi eða aðstæðum fólks, en í samhenginu við önnur lönd höfum við það bara mjög fínt.“ María Lilja Þrastardóttir marialilja@frettatiminn.is þá minnkuðu frjáls framlög frá ein- staklingum ekki teljanlega.“ Börn með sömu langanir og önnur Búrkína Fasó er eitt af fátækustu löndum heims og núna ríkir þar ófremdarástand vegna uppskeru- brests. Landið er að mestu eyði- Í Búrkína Fasó ríkir nú gullæði og þar þykir eðlilegt að ung börn stundi vinnu ofan í námum sem grafnar eru tugi metra ofan í eyðimerkursandinn. „Landið er orðið allt sundurgrafið. Á yfirborðinu er ótrúlegur hiti sem svo margfaldast ofan í jörðinni. Þarna eru börn heilu dagana með stjaka við hörmulegar aðstæður.“ Ljósmyndir/ Arnar Þór Þórisson gunnar Hansson er nýkominn frá Búrkína Fasó. Þar dvaldist hann á vegum UNICEF og skoðaði aðstæður barna í einu af fátækustu ríkjum heims. 50 viðtal Helgin 30. nóvember-2. desember 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.