Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.11.2012, Síða 62

Fréttatíminn - 30.11.2012, Síða 62
58 bílar Helgin 30. nóvember-2. desember 2012  Bandalag íslenskra BílaBlaðamanna Mercedes-Benz A valinn Bíll ársins  reynsluakstur toyota gt 86 – skemmtilegt leikfang n ýja vinkonan mín malar eins og köttur í hæga- gangi en urrar eins og ljón þegar ég stíg fast á bensíngjöfina. Hún heitir Toyota GT 86 og er leikfang fyrir konur sem þurfa ekki lengur að skutla börnum á milli staða. Hún er bíll fyrir töffara – eins og ég verð eftir 15 ár (búin að reikna þetta út... þá verður yngsta barnið búið í menntó). Fyrrverandi tengdamamma mín í Suður-Englandi er löngu búin að upp- götva gleðina við að keyra sportbíl og er í góðum tengslum við töffarann í sér. Hún fékk sér BMW sportbíl um leið og börnin fluttu að heiman og síðan Porsche 911 sem hún endurnýjaði fyrir stuttu. Af því að hún getur það. Þó svo að það sé næstum því ekki pólitískt rétt að segjast hafa gaman af því að keyra góðan bíl í dag (skuldastaða heimilanna, sjálfbær þróun o.s.frv.), þá bara get ég ekki orða bundist (svo er það kannski dálítið öðruvísi að vera kona og aka sportbíl. Það einhvern veginn má). Þegar ég settist inn í bílinn gat ég ekki annað en brosað. Og brosið fór ekki af. Þetta er alvörubíll fyrir alvöruökumenn – án þess þó að fara yfir strikið. Hann öskrar ekkert: „Sjáðu mig!“ Hann hvíslar það. Ég geri aðrar kröfur til sportbíla en fjölskyldubíla enda er hann valinn á öðrum forsendum. Sportbílar eru þyngri í stýri, svo þeir séu stöðugri á mikilli ferð, bremsurnar eru annars konar og hollningin öll. Þó svo að ég mæli með þessum bíl fyrir ömmur verða þær að vera nokkuð liprar og léttar á sér til þess að geta komist inn í bílinn og út úr honum aftur hjálparlaust því ökumaðurinn situr svo neðarlega. En það er einmitt það sem er svo töffaralegt. Mér leið að minnsta kosti eins og Bond, Jamesínu Bond. Þau sem vita meira um sportbíla en ég, elska þennan bíl. Uppáhaldsbílaþáttur- inn minn, Top Gear, gefur honum topp- einkunn. Ég gat að sjálfsögðu ekki keyrt hann hraðar en leyfilegur hámarkshraði kveður á um og því fékk ég ekki tækifæri til að fullreyna kraft vélarinnar en mikið naut ég þess að gefa aðeins í þegar græna ljósið kom á gatnamót- um borgarinnar. Það var heldur ekki leiðin- legt að taka fram úr, mér leið pínulítið eins og þegar ég var á vespunni minni sem ég ferð- aðist um á í London forðum daga, þar sem ég vippaði mér á milli bíla sem sátu fastir í umferðarflækju. Ég var bara á allt öðrum forsendum í umferðinni en aðrir ökumenn. Hið sama á við um vinkonu mína, Toyotu GT 86. Hún er bara í öðrum leik en hinir bílarnir. Verst fyrir þá. Ég heiti Bond, Jamesína Bond Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@ frettatiminn.is Hann öskrar ekkert: „Sjáðu mig!“ Hann hvíslar það. Plúsar + Fallegur + Kraftmikill + Skemmtilegur í akstri Mínusar ÷ Enginn Helstu upplýsingar Verð: Frá 8.090.000 kr Eyðsla: 7,1* Hámarksafl: 200** Breidd: 177,5cm *lítrar/100km í blönduðum akstri **hestöfl Toyota GT 86 er leikfang fyrir konur sem þurfa ekki lengur að skutla börnum milli staða. Í þessum sportbíl kemst maður í sam- band við innri töffara sinn. Hann er alvörubíll fyrir alvöruökumenn. Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, tekur við Stálstýrinu úr hendi Guð- jóns Guðmundssonar, formanns BÍBB. Mercedes-Benz A er Bíll ársins 2013 á Íslandi. Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, stendur að valinu. 38 bílar voru tilnefndir að þessu sinni í þremur flokkum; fólksbílaflokki, jeppum og jeppling- um og loks vistvænum bílum. Fram kemur í tilkynningu að eftir prófanir hafi níu bílar staðið eftir sem komust í úrslit. Í fólksbílaflokki voru það Mercedes-Benz A, Volvo V40 og Audi A6. Í jeppa- og jepplingaflokki Hyundai Santa Fe, Range Rover Evoque og Audi Q3. Í flokki vistvænna bíla komust í úrslit Peugeot 508 RXH, Opel Ampera og Lexus GS 450h. Dómnefnd tók þessa níu bíla til kost- anna með prófunum. Þar var meðal annars tekið mið af hönnun, öryggi, aksturseiginleikum og verði. Niðurstaða dómnefndar var sú að nýr Mercedes- Benz A væri þess verðugur að teljast bíll ársins á Íslandi. Um er að ræða gerbreyttan og í raun alveg nýja gerð af minnsta fólksbíl Mercedes-Benz. Bíllinn er vel búinn í grunninn og státar af einstaklega fín- stilltum aksturseiginleikum. Verð á honum er frá 4,6 milljónum króna. Í öðru sæti var Volvo V40 og Audi A6 í þriðja sæti. Sigurvegari í flokki jeppa- og jepplinga var ný kyn- slóð Hyundai Santa Fe. Range Rover Evoque var númer 2 og og Audi Q3 númer 3. Í flokki vistvænna bíla stóð Lexus GS 450h tvinnbílinn uppi sem sigur- vegari. Val Bandalags íslenskra bílablaðamanna endurspeglar faglegt mat á nýjum bílum sem hafa komið á markað hérlendis síðastliðna tólf mánuði og skara fram úr á sviði hönnunar, notkunar, rýmis, aksturseiginleika, öryggis og verðs. Frumherji er styrktaraðili valsins Nýr Mercedes-Benz A Class. Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM 12 volt díóðuljós 12v 1,3w12v 1,3w 12v 2,5w 12v 1,66w 12v 1,66w 12v 1,0w 12v 1,2w 12v 1,0w Tilvalið fyrir sumarbústaði með sólarorku Eyða allt að 90% minni orku en halogen 12v 3,0w Brautarholti 16 S.562 2104 www.kistufell.is GOTT VERÐ GÆÐI Í 60 ÁR Tímagír í bílinn þinn
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.