Fréttatíminn - 30.11.2012, Page 66
Helgin 30. nóvember-2. desember 201262 tíska
Fyrir jólahlaðborðið
ný sending
Kjólar, bólerójakkar, pils og
toppar í miklu úrvali
20% afsl
Notuð peysa kveikjan
að barnafatamerki
Þrjár vinkonur
standa að baki
barnafatamerkinu
As we grow. Þær
fengu hugmynd-
ina að línunni frá
gamalli peysu sem
hafði þjónað sínu
hlutverki í fjölda
ára og gekk barna
á milli, jafnvel á
milli landa.
M óðir Guðrúnar handprjónaði peysu á sínum tíma. Peysan gekk á milli barna í áraraðir
jafnvel á milli landa. Þessi nýtni
var innblásturinn að merkinu,“
segir Gréta Hlöðversdóttir, einn
eigenda barnafatamerkisins As
we grow. Hún ásamt hönnuð-
unum, Maríu Ólafsdóttur og
Guðrúnu Rögnu Sigurjóns-
dóttur, hafa staðið að þróun
vörumerkisins í tvö ár. María og
Guðrún eru hönnuðir fatnaðarins
en Gréta sér um markaðsmál.
„Okkur langaði alltaf að gera eitthvað
saman, og höfðum leitað leiða við að
samtvinna tímalausa hönnun, endingu
og nýtni. Svo varð sagan af peysunni
svo mikill innblástur. Það er svo fallegt
hvernig flík getur öðlast tilfinninga-
legt gildi.“ Peysan sem gekk
barna á milli týndist á einum
tímapunkti, en fannst löngu
síðar, utandyra við sumarbústað
Guðrúnar. „Hún var að eignast sitt
annað barn svo peysan bíður bara eftir
því að litli kúturinn passi í hana. Þetta
er töfraflík.“
Gréta segir að fyrir þeim stöllum sé
mikilvægt að fötin nýtist í lengri tíma.
„Öll snið eru þannig gerð að fötin ættu
að geta stækkað með barninu. Þetta
er allt útpælt. Við framleiðum aðeins
úr alpaca ull frá Nepal því hún er mjög
mjúk og slitsterk. Vörurnar eru 100%
náttúrulegar og valda því ekki ofnæmi.“
Hægt er að nálgast vörurnar í gegn-
um vefsíðuna aswegrow.com
TILBOÐ - AÐEINS FÖSTUDAG OG LAUGARDAG
Laugavegi 178 Sími 551-3366 www.misty.is
Sundfatnaður
í D,DD,E,F,FF,G
skálum á
25% AFSLÆTTI