Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.11.2012, Page 73

Fréttatíminn - 30.11.2012, Page 73
Málfarsbloggarinn Eiður Guðnason hefur verið vægast sagt gagnrýninn á helgardagskrá Ríkis- sjónvarpsins í skrifum sínum og gagnrýnt valið á þeim kvikmyndum sem valdar eru til sýninga í Efstaleitinu. Eiður bendir á að fæstar þeirra nái meðaleinkunn hjá kvikmyndagagnabankanum imdb.com og að hjá Ríkisútvarpinu virðist fólk ekki meðvitað um að kvikmyndagerð hófst fyrir árið 1990. Hvort sem umvandanir Eiðs hafa náð til þeirra sem raða saman dagskránni skal ósagt látið en kvikmyndir helgarinnar benda eindregið til þess að mannskapurinn hafi hysjað upp um sig bræk- urnar. Á föstudagskvöld sýnir Sjónvarpið meistara- verk Davids Lean um Arabíu-Lárens sem samein- aði Araba gegn Tyrkjum á árunum 1916-1918. Lawrence of Arabia hlaut sjö óskarsverðlaun árið 1963, meðal annars fyrir leikstjórn, kvik- myndatöku, klippingu, tónlist og sem besta myndin. Einkunn myndarinnar á imdb.com er 8.5. Myndin er býsna löng og þeir sem ætla að njóta hennar þurfa að vaka til klukkan 03.15. Í sunnudagsbíói Sjónvarpsins er boðið upp á Ho- dejegerne eða Hausaveiðarana, sérdeilis prýðilega norska glæpamynd sem byggð er á samnefndri bók Jo Nesbø. Nesbø hefur aflað sér mikilla vinsælda víða um heim með bókum sínum um fyllibyttuna Harry Hole sem leysir flókin sakamál í Osló en hér er hann í allt öðrum gír og býður upp á spennandi, fyndna og flotta sögu sem er í raun ósköp einföld en kemur samt ítrekað á óvart og tekur nokkrar óvæntar beygjur. Nikolaj Coster-Waldau, einn aðal vondi kallinn í Game of Thrones, fer hamförum í hlutverki ískalds skúrks sem gerir klaufalegum flottræfli lífið verulega leitt. 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun STÖÐ 2 07:00 Villingarnir / Strumparnir / Hello Kitty / Algjör Sveppi / Latibær / Jóla- dagatal Skoppu og Skrítlu / Waybuloo / Lína langsokkur / Tasmanía / Tommi og Jenni / Kalli kanína og félagar / Kalli kanína og félagar 11:10 iCarly (22/25) 11:35 Victorious 12:00 Nágrannar 13:45 The X-Factor (21/27) 14:35 Dallas (8/10) 15:25 Týnda kynslóðin (13/24) 15:55 Eldsnöggt með Jóa Fel 16:35 MasterChef Ísland (2/9) 17:25 60 mínútur 18:15 Jóladagatal Skoppu og Skrítlu (1 og 2/24) 18:30 Fréttir Stöðvar 2 18:55 Um land allt 19:25 Frasier (11/24) 19:50 Sjálfstætt fólk 20:30 The Mentalist (2/22) 21:20 Homeland (9/12) 22:15 Boardwalk Empire (4/12) 23:15 60 mínútur 00:05 The Daily Show: Global Edition 00:30 Fairly Legal (13/13) 01:15 The Newsroom (8/10) 02:15 The Crimson Petal and the White 05:25 The Mentalist (2/22) 06:10 Fréttir 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 08:25 Tvöfaldur skolli 09:00 Nedbank Golf Challenge 2012 14:30 Spænski boltinn 16:10 Kiel - Atl. Madrid 17:50 Montpellier - Flensburg 19:30 Nedbank Golf Challenge 2012 01:00 Spænski boltinn 02:40 24/7 Pacquiao - Marquez 4 5 6 allt fyrir áskrifendur fréttir, fræðsla, sport og skemmtun 09:05 WBA - Stoke 10:45 West Ham - Chelsea 12:25 Reading - Man. Utd. 14:05 Liverpool - Southampton 15:45 Norwich - Sunderland 18:00 Sunnudagsmessan 19:15 Man. City - Everton 20:55 Sunnudagsmessan 22:10 Norwich - Sunderland 23:50 Sunnudagsmessan 01:05 Fulham - Tottenham 02:45 Sunnudagsmessan SkjárGolf 06:00 ESPN America 06:45 World Challenge 2012 (3:4) 11:45 Golfing World 12:35 World Challenge 2012 (3:4) 17:35 Ollie´s Ryder Cup (1:1) 18:00 World Challenge 2012 (4:4) 23:00 Golfing World 23:50 ESPN America 2. desember sjónvarp 69Helgin 30. nóvember-2. desember 2012  Dagskráin góð helgi á rÚV Eyðimerkurperla og norskur krimmi Peter O´Toole er magnaður í hlutverki T.E. Lawrence en Omar Shariff gerir tilraun til að stela senunni.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.