Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.11.2012, Side 82

Fréttatíminn - 30.11.2012, Side 82
Kauptúni og Kringlunni | S. 566 7070 | www.habitat.is Opið laugardag kl. 11–17 og sunnudag kl. 13–17. JÓLAVÖRURNAR 2012 KOMNAR 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM KeRTUM Og JÓLASeRíUM 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM KeRTUM MiKið úRVAL AF FALLegU JÓLSKRAUTi Og gJÖFUM 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM JÓLASeRíUM tilboðið gildir til sunnudagsins 2. desember Fyrsta plata hljómsveitar- innar Grasasna, Til í tuskið, er komin út. Sveitina skipa þeir Steinar Berg Ísleifs- son sem spilar á kassagítar, Sigurþór Kristjánsson sem trommar og leikur á slagverk, Gunnar Ringsted sem spilar á kassagítar og rafmagnsgítar og Halldór Hólm Kristjánsson bassaleikari. Allir syngja þeir að auki. Lögin á plötunni eru flest erlend og koma frá ýmsum tímum. Þau elstu eru meira en aldargömul og þau nýjustu eru frumsamin. Textarnir eru flestir eftir Steinar Berg en Bjartmar Hannesson kemur einnig að liði ásamt því að sótt er í ljóðasafn Steins Steinarrs. Fjölmargir gestasöngvarar og aðrir hljóðfæraleikarar lögðu Grasösnum lið við upp- tökur á plötunni. Þar á meðal eru Bjartmar Guðlaugsson, Kristjana Stefánsdóttir, Mar- grét Eir Hjartardóttir og Helgi Pétursson. Grasasnar gefa út plötu Grasasnar klárir í slaginn í vinnu- skyrtum í Land Rovernum.  Útgáfa Ylja með lifandi þjóðlagapopp Það skapast margfalt meiri fílingur við að taka upp „live“. Eða allsber! Það er eina vitið. f yrst prófuðum eina upptökuað-ferð en hentum henni svo í ruslið. Svo ákváðum að taka plötuna upp „live“, enda erum við öll sammála um að hinn lifandi þátt- ur tónlistarinnar verður að skína í gegn í upp- tökum,“ segir Bjartey Sveinsdóttir í hljóm- sveitinni Ylju. Auk henn- ar skipa sveitina Guðný Gígja Skjaldardóttir og Smári Tarfur Jóseps- son. Stelpurnar spila á gítar og syngja en Smári leikur á slidegítar. Guðný Gígja segir að lögin hafi að mestu verið tilbúin þegar upp- tökur hófust en þau hafi þróast aðeins í upptöku- ferlinu. Smári Tarfur er sáttur við að platan hafi verið tekin upp „live“: „Okkur fannst viss tengsl tapast meðlima á milli við það að taka upp í sitt hvoru lagi. Það skapast margfalt meiri fílingur við að taka upp „live“. Eða allsber! Það er eina vitið.“ 78 tónlist Helgin 30. nóvember-2. desember 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.