Fréttatíminn - 30.11.2012, Side 86
Gríms ævintýri Hundur seGir söGu sína
Hressilegar partísögur
H ann Grímur, sá mikli höfðingi, féll frá árið 1998 og hafði þá verið hjá okkur þau ellefu ár sem hann lifði,“
segir Kristín Helga sem hefur nú loks látið
undan þrýstingi vina og kunningja og fært
ævisögu hundsins á bók.
„Grímur var fuglaveiðihundur af Sprin-
ger Spaniel-kyni og mjög litríkur persónu-
leiki, svona eins og þessir einstaklingar
sem hreiðra um sig svona nálægt manni
eru oft. Hann átti sér marga aðdáendur
í lifenda lífi og ég sló gjarnan um mig í
partíum með sögum af honum.“
Kristín Helga segist hafa ráðist í að
skrifa bókina vegna fjölda áskorana.
„Heimir Már Pétursson og Þórhildur
Þorleifsdóttir eru á meðal þeirra sem
hafa hvatt mig til að skrásetja sögurnar
af honum Grími og ég ákvað að drífa í því
áður en þær gleymast og þetta eru eigin-
lega gamlar partísögur af honum.“
Kristín Helga segir sögu Gríms í raun
vera sögu af vináttu, trygglyndi, einlægni
og kærleika og öllu því sem við glímum
við hversdagslega. „Halldór fór síðan á
flug með teikningarnar og mér finnst hann
alltaf taka textann frá mér og kasta honum
eitthvað lengra. Við höfum unnið helling
saman og erum alveg samofin í þessu og
þurfum lítið að tala saman. Verkin okkar
renna bara saman áreynslulaust. Svo er
Halldór líka hundakall þótt hann sé ekki
mikið fyrir að viðurkenna það. Hann á
hann Sóma sinn og ætti bara ekkert að
vera að tala svona illa um hann. Hann er
greindur og vel gefinn hann Sómi,“ segir
Kristín Helga með prakkaratón.
Kristín Helga segir Gríms ævintýri í
raun vera sögu fyrir alla dýravini og þótt
sögurnar af hundinum séu kostulegar og
fyndnar þá sé undirtónn í bókinni. „Ég
hef nú farið svolítið víða með sögurnar um
hann Grím og hef rekið mig á, til dæmis
í samtölum við skólakrakka og kennara,
að við tölum ekkert mikið um samskipti
manna og dýra. Við flokkum veröldina í
menn, náttúruna og dýr, aðskiljum svo allt
og flokkum í undirflokka og setjum í kassa
og hólf.“
Í bókarlok lætur Kristín Helga því fylgja
einfaldar samskiptareglur manna og mál-
leysingja. „Þessar reglur eiga í raun og
veru bara við um fólk almennt og hvernig
við eigum að koma fram hvort við annað.
Það skortir mikið á siðfræðilega umræðu,
bæði á heimilunum og í skólunum, um
samskipti tegundanna.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur og teiknarinn Halldór Baldursson hafa
átt langt og gott samstarf þar sem Halldór hefur myndskreytt barnabækur
Kristínar Helgu. Þau hafa nú sent frá sér bókina Gríms ævintýri–Ævisaga hunds
en í henni rekur Kristín Helga litríkt líf hundsins síns, hans Gríms Fífils sem
kvaddi þennan heim fyrir fjórtán árum.
Kristín Helga segist alltaf vera með hunda og nú er það hún Emilía sem veitir henni félagsskap við skriftirnar. Þær fara
stundum út að viðra sig með Halldóri og Sóma ásamt Skottu sem Kristín Helga er með í fóstri. Ljósmynd/Hari
Hann átti
sér marga
aðdáendur
í lifenda lífi
og ég sló
gjarnan
um mig í
partíum
með sögum
af honum.
tónlist Ása slær í GeGn vefnum með sæta kossa
280 þúsund smellir á Youtube
„Ég sendi þetta lag inn í Eurovision í fyrra en því var hafn-
að,“ segir Ása Sylvía Magnúsdóttir sem er búsett í Köln og
hefur heldur betur slegið í gegn á Youtube en yfir 280 þús-
und manns hafa horft á myndband hennar við eigið lag,
Sætir kossar (Big kisses á ensku), og segir Ása að lagið
hefði að sjálfsögðu getað farið alla leið í Eurovision
Ása titlar sig íslenska söngkonu, XXL fyrirsætu og
er frægðarpersóna á internetinu. Hún borgar stundum
leiguna með því að vinna ýmis skrifstofustörf og svo hefur
hún einnig verið dugleg að skemmta í hinum ýmsu barna-
sjónvarpsþáttum í Þýskalandi.
„Í dag er ég með krosslagða fingur um að ég fái boð
um að troða upp á karnivalinu hér í Köln og syngja þetta
vinsæla lag á íslensku,“ segir Ása en karnivalið er þekkt
um allan heim.
Lag Ásu kom á vefinn í febrúar. Fljótlega fékk Ása
65.000 smelli og í sumar tók lagið svo annan kipp og
skaust upp í 130 þúsund smelli og nú í haust hefur það
tekið enn einn kippinn og er komið vel yfir 280 þúsund en
leitun er að öðru eins áhorfi. Sjálf hikar Ása ekki við að
kalla myndbandið Gangman Style myndbandið en hún á
það sameiginlegt með suður-kóreska skemmtikraftinum
að bæði eru þau með frumsaminn dans. Ása krossleggur
fingur og vonar að sjálfsögðu að hennar myndband slái
jafn rækilega í gegn og Gangman Style þegar fram líða
stundir.
Hægt er að finna lag og myndband Ásu á Youtube með
því að skrifa Sætir kossar/Big Kisses í leitarvél Youtube.
Ása Sylvía Magnúsdóttir hefur slegið í gegn á internetinu.
Mikael
Torfason
mikaeltorfason@
frettatiminn.is
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
SKÍÐAPAKKAR
20% AFSLÁTTUR
ÞEGAR KEYPT ERU
SKÍÐI, BINDINGAR
OG SKÍÐASKÓR.
Hættur í Of Monsters and Men
„Hann vildi fara aftur í skóla og gera ýmislegt annað,“ segir Heather Kolker, umboðs-
maður hljómsveitarinnar Of Monsters and Men.
Árni Guðjónsson, hljómborðsleikari Of Monsters and Men, hefur sagt skilið við
sveitina. Hann er ekki með sveitinni á tónleikaferðalagi um Bandaríkin um þessar
mundir. Steingrímur Karl Teague, hljómborðsleikari Moses Hightower, hefur hlaupið
í skarðið að undanförnu.
Heather Kolker segir að brotthvarf Árna úr sveitinni hafi verið á góðum nótum og
hann og meðlimir Of Monsters And Men séu enn bestu vinir. „Það kemur enginn í
stað hans í sveitina,“ segir Kolker þegar hún er spurð hvort skarð Árna verði fyllt.
Of Monsters and Men hefur notið mikilla vinsælda um heim allan síðan fyrsta plata
sveitarinnar kom út snemma á árinu. Í september greindi Morgunblaðið frá því að
platan, My Head Is an Animal, hefði alls selst í ríflega sex hundruð þúsund eintökum.
-hdm
Of Monsters and Men er á tónleikaferðalagi um Bandaríkin. Árni Guðjónsson
hljómborðsleikari, annar frá vinstri á myndinni, er hættur í sveitinni. Mynd:
NordicPhotos/Getty
82 dægurmál Helgin 30. nóvember-2. desember 2012