Fréttatíminn - 07.12.2012, Page 8
6 fréttir Helgin 7.-9. desember 2012
ÞÚ VELUR
FJÁRHÆÐINA
þiggjandinn velur gjöfina
Finnur þú ekki réu gjöfina? Gjafakort Arion
banka er hægt að nota við kaup á vöru og
þjónustu hvar sem er. Einfaldara getur það
ekki verið.
Gjafakortið fæst í öllum
útibúum Arion banka.
arionbanki.is — 444 7000
ARD stærsta sjónvarpsstöð Þýskalands um Útkall - Goðafoss
Útkall – sonur þinn er á lí
Útkallsbókin allar um snjóóðin í Neskaupstað
fyrir jól 1974 – einn sögulegasta atburð síðustu aldar
Hraði, spenna og íslenskur raunveruleiki
Páll Baldvin Baldvinsson um
Útkallsbækurnar:
,,Hversdagshetjur sem sýna af sér
umhyggju, ást og virðingu“
Egill Helgason:
,,Feykivinsælar bækur“
Bækur fyrir bæði kyn á öllum aldri
Fræði og alm.efni 25.11-01.12
2. sæti
Óttar Sveinsson
Veitingahúsið gallery restaurant
Tilnefnt til norrænna verðlauna
Veitingahúsið Gallery Res-
taurant á Hótel Holti var fyrr
í vikunni tilnefnt til norrænu
veitingahúsaverðlaunanna „The
Nordic Prize“ en eitt veitingahús
frá hverju Norðurlandanna er
tilnefnt í keppnina á ári hverju.
Í byrjun febrúar verður skorið
úr um það hvaða veitingahús
hreppir titilinn besta veitinga-
hús Norðurlanda. Veitingahúsið
Dill hefur verið atkvæðamikið
á undanförnum fjórum árum og
hlotið þrjár tilnefningar en í ár
er það Gallery Restaurant sem
hlýtur þennan heiður fyrir Ís-
lands hönd.
Gallery Restaurant mun etja
kappi við mörg af þekktustu veit-
ingahús heimsins, til að mynda
danska veitingahúsið Noma,
sem var valið besta veitingahús
heimsins þetta árið, af tímarit-
inu Restaurant Magazine. Að
sögn Friðgeirs Inga Eiríkssonar,
yfirmatreiðslumanns á Gallery
Restaurant, er þetta gríðarlegur
heiður fyrir veitingastaðinn.
„Þetta er enn ein staðfestingin á
því að við erum á réttri leið.“ - jh
Friðgeir Ingi Eiríksson, yfirmatreiðslumað-
ur Gallery Restaurant og Geirlaug Þorvalds-
dóttir, eigandi Hótel Holts.
F oreldrar af erlendum upp-runa fá síður forræði yfir börnum sínum við skilnað
en íslenskir og hallar þar mest á
foreldra af asískum eða afrískum
uppruna, samkvæmt niðurstöðum
úr nýrri rannsókn sem unnin var í
samvinnu Fjölmenningaseturs og
Mannréttindaskrifstofu Íslands
með styrk frá velferðarráðuneyt-
inu.
Rannsóknin náði til 11 þúsund
barna foreldra sem skildu eða slitu
sambúð á árunum 2001-2010. Í ljós
kom að mun færri börn af erlendum
uppruna eru í sameiginlegri forsjá
þrátt fyrir að árið 2006 hafi verið
gerð lagabreyting þannig að sam-
eiginleg forsjá skuli vera megin-
regla við skilnað, að sögn Ara
Klængs Jónssonar, verkefnastjóra
í upplýsingamiðlun hjá Fjölmenn-
ingarsetri. Einungis helmingur
barna af asískum eða afrískum upp-
runa eru í sameiginlegri forsjá en
75 prósent barna ef báðir foreldrar
voru af íslenskum uppruna.
„Það er einnig athyglisvert að
þriðjungur barna sem á móður af
afrískum eða asískum uppruna en
íslenskan föður býr hjá föður sínum
en einungis sjö prósent barna af
íslenskum uppruna eru búsett hjá
föður,“ bendir Ari á. Þá eru börn
í sameiginlegri forsjá sex sinnum
líklegri til að eiga lögheimili hjá
föður ef móðirin er af afrískum eða
asískum uppruna en ef hún væri
íslensk.
Margrét Steinarsdóttir, formaður
Mannréttindaskrifstofu Íslands,
segir niðurstöðurnar sláandi. „Þær
kalla tvímælalaust á frekari rann-
sóknir á því hverjar skýringarnar
á þessu eru. Okkur dettur ýmis-
legt í hug, við höfum heyrt konur
af erlendum uppruna segjast hafa
verið beittar þvingunum til þess
að gefa eftir forræði barna sinna.
Einnig segja sumar konur að þær
telji betra fyrir barnið að faðirinn
sé með forræði, sé hann íslenskur,
því þannig sé aðgangur að föður-
fjölskyldu barnsins betri og konan
sjálf eigi enga fjölskyldu hér,“ segir
Margrét. Konurnar hafi einnig
nefnt fjárhagslegar ástæður, að fjár-
hagsleg staða föðursins sé betri en
þeirra.
Karlar af erlendum uppruna
fá síður forræði yfir börnunum
sínum en ef þeir væru íslenskir,
samkvæmt rannsókninni því 78
prósenta minni líkur eru á því að
barnið eigi lögheimili hjá föður ef
hann af asískum eða afrískum upp-
runa.
Að sögn Ara er skýrslan vonandi
einungis fyrsta skrefið í rannsókn-
um á þessum málum. „Við þurfum
að rannsaka ástæðurnar fyrir
þessu. Þær geta hugsanlega verið
menningarbundnar en félagsleg
staða innflytjenda hefur eflaust eitt-
hvað að segja líka,“ segir Ari. „Við
getum hins vegar ekki útilokað
það að uppruninn sjálfur sé hluti af
ástæðunni, að einhvers konar mis-
munun eigi sér stað,“ segir hann.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
„78 prósenta minni líkur eru á því að
barnið eigi lögheimili hjá föður ef hann
er af asískum eða afrískum uppruna.“
rannsókn Færri börn í sameiginlegri Forsjá
Foreldrar af erlendum
uppruna fá síður forræði
Foreldrar af erlendum uppruna
fá síður forræði yfir börnum
sínum við skilnað en íslenskir
samkvæmt nýrri rannsókn og
sameiginleg forsjá er sjaldnar
veitt sé annað foreldri af
erlendum uppruna. Börn búa
síður hjá mæðrum sínum eigi
þær íslenskan föður og móður
af erlendum uppruna en ef
báðir foreldrar væru af ís-
lenskum uppruna.
Konur af afrískum eða asískum uppruna sem eiga barn með íslenskum manni eru
síður með forræði yfir börnum sínum en mæður af íslenskum uppruna.