Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 20
Sími 570 2400 · oryggi.is
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Vefverslun með öryggisvörur á oryggi.is
Kertaljós og skreytingar þarf
að umgangast með varúð
Tryggið eldvarnir heimilisins, reykskynjarar, slökkvitæki
og eldvarnarpakkar í miklu úrvali.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
23
24
7
Eldvarnarpakki 1
Tilboðsverð í vefverslun
14.668 kr.
Listaverð 22.741 kr.
Tilvalið í bílinn eða
ferðavagninn
Eldvarnarpakki 2
Tilboðsverð í vefverslun
20.937 kr.
Listaverð 32.460 kr.
Eldvarnarpakki 3
Tilboðsverð í vefverslun
13.398 kr.
Listaverð 20.772 kr.
Eldvarnarpakki 4
Tilboðsverð í vefverslun
7.205 kr.
Listaverð 11.171 kr.
Eldvarnarpakki 5
Tilboðsverð í vefverslun
14.177 kr.
Listaverð 21.980 kr.
Börn sem foreldrarnir eyðileggja
Björgum börnunum frá foreldrum sínum
F yrst varð ég reið – svo reið – yfir því sem tvær unglings-stúlkur gátu gert annarri
í miðbæ Reykjavíkur fyrir nítján
árum. Ég varð stúlkunum reið. Þær
stálu af henni framtíðinni. Með því
að sparka ítrekað í höf-
uðið á henni svo hún varð
örkumla á eftir, líkt og ég
segi frá í viðtali mínu við
Guðrúnu Jónu Jónsdóttur
hér í blaðinu.
Þær rændu hana ekki líf-
inu – því hún lifði af, naum-
lega – en þær rændu hana
þróttinum, getunni til tjá-
skipta, möguleikunum á að
eignast fjölskyldu, frelsinu
til að lifa sjálfstæðu lífi.
Hver gerir svona lagað?
Tvær unglingsstúlkur 16
og 14 ára, alvarlega brengl-
aðar vegna neyslu vímu-
efna.
Saga þeirra er athyglisverð og
vekur mann til umhugsunar. Sú 16
ára fékk þriggja ára fangelsisdóm,
sat inni í Kvennafangelsinu þar sem
hún forhertist í neyslu. Hún endaði
sjálf líf sitt eftir stutta hörmungaævi
– átti ef til vill aldrei séns. Hún hafði
eignast tvö börn sem voru tekin af
henni vegna vímuefnaneyslu. Þeim
var vonandi bjargað í tæka tíð. Henni
hafði sjálfri ekki verið bjargað.
Hún hafði alist upp á heimili þar
sem foreldrarnir voru vímuefnaneyt-
endur og „dílerar“. Þegar hún leidd-
ist sjálf út í neyslu var enginn til að
hjálpa henni. Foreldrarnir gátu það
ekki – og enginn annar gerði það.
Hún átti ef til vill aldrei séns.
Þegar ég hafði kynnt mér sögu
þeirra og talað við yngri stúlkuna,
sem núna er orðin fullorðin kona,
þriggja barna móðir, og barnsföður
eldri stúlkunnar hætti ég að vera
reið stúlkunum. Ég varð reið samfé-
laginu. Samfélaginu, sem lætur það
viðgangast að barn þurfi að alast upp
á heimili hjá foreldrum sem eru gjör-
samlega ófærir um að sinna foreldra-
hlutverki sínu sökum neyslu. Svo al-
gjörlega óhæfir foreldrar að þeir gera
illt verra, þeir skemma barnið sitt.
Því yngri stúlkan hafði breyst.
Hún var svo heppin, að eigin sögn,
að hún átti fjölskyldu sem gat gripið
í taumana, sem gat varnað því að hún
ynni fleiri voðaverk. Þetta eina var
nóg. Miklu meira en nóg. Hún hefur
varið ævinni í að reyna að bæta fyrir
það sem hún gerði – en það er ekki
hægt. Guðrún Jóna fær aldrei aftur
máttinn. Hún fær aldrei frelsið á ný.
En eldri stúlkan var ekki svona
heppin. Hún átti engan að sem gat
hjálpað henni.
Einn dómaranna í árásarmáli Guð-
rúnar Jónu hafði varað við þessu.
Hann óttaðist að fangelsisvist gæti
gert út um eldri stúlkuna – hún
þyrfti annars konar hjálp en betrun-
arvist. Ef til vill hafði hann rétt fyrir
sér. Það munum við aldrei fá að vita.
Hið eina sem við vitum fyrir víst
er að fangelsisvistin varð stúlkunni
ekki til betrunar. Líf hennar var ein
hörmungarsaga. Árið 2009 varð hún
völd að því að önnur manneskja ör-
kumlaðist. Hún ók undir áhrifum
vímuefna framan á annan bíl með
þeim afleiðingum að ökumaður hins
bílsins fékk alvarleg höfuðmeiðsl og
heilaskaða.
Til eru þeir sem vilja loka þá inni
að eilífu sem vinna voðaverk sem
þessi. Ég skil þau sjónarmið vel. Ég á
sjálf 15 ára dóttur og get því reynt að
setja mig í spor foreldris sem missir
barn með þessum hætti. Því auðvi-
tað er þetta missir. Þótt barnið látist
ekki eru draumarnir og vonirnar um
framtíð barnsins dánir.
Í mínum huga snýst þetta um ann-
að.
Þetta snýst um rétt barna til að lifa
mannsæmandi lífi. Um rétt barnanna
til að hljóta ástríkt og heilbrigt upp-
eldi þar sem þörfum þeirra, andleg-
um og líkamlegum, er sinnt.
Fyrir fáeinum vikum kom 14 ára
stúlka fram á fundi forvarnar- og
fræðsluhóps um velferð barna og
unglinga, Náum áttum, og sagði frá
reynslu sinni af því að alast upp á
heimili með áfengissjúkum foreldr-
um. Hún var tekin af heimili sínu 11
ára en hefði viljað að barnaverndar-
yfirvöld hefðu gripið í taumana mun
fyrr.
Henni var bjargað og lifir nú heil-
brigðu lífi.
Hvað með hin börnin þrjú hundruð
sem barnaverndaryfirvöld fá til-
kynningu um að séu vanrækt vegna
áfengis- og vímuefnaneyslu foreldra
árlega? Er þeim öllum bjargað? Erum
við að gera nóg fyrir þessi börn?
Ég er hrædd um að svo sé ekki.
Sigríður
Dögg
Auðunsdóttir
sigridur@
frettatiminn.is
sjónarhóll
VikAn í tölum
140
málverk úr búi SPRON verða boðin upp hjá Gallerí Fold næsta
sunnudag og mánudag. Á meðal verkanna eru tvö stór sjómannaverk
Gunnlaugs Scheving og nokkur verk eftir Jóhannes Kjarval.
254
hjúkrunarfræðingar á
Landspítalanum hafa
sagt starfi sínu lausu
vegna óánægju með
kjör sín. Alls starfa
1.348 hjúkrunarfræð-
ingar á spítalanum.
20
ár eru síðan fyrsta
sms-ið var sent.600
milljónum króna er áætlað að gestir
Þjóðhátíðar síðasta sumar hafi eytt
á hátíðinni. Að meðaltali eyddi hver
gestur 22.700 krónum dag hvern.
19,3
prósent meiri velta var
á fasteignamarkaði í
nóvember heldur en í
mánuðinum á undan.
326
milljóna króna tap var
á rekstri Latabæjar ehf.
í fyrra.
18 fréttir Helgin 7.-9. desember 2012 vikunnar