Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.12.2012, Qupperneq 22

Fréttatíminn - 07.12.2012, Qupperneq 22
Verkefnið vonlausa Mér finnst illa komið fyrir Alþingi Íslendinga. Mér finnst sorglegt í hvaða stöðu við erum komin. Við ráðum ekki við hlutverk okkar og við höfum brugðist þeim sem kusu okkur. Það er enginn sem að getur breytt Alþingi nema við. Margrét Tryggvadóttir, þingkona Hreyfingarinnar, er orðin leið á málþófi og skætingi í vinnunni. Rómantíkin getur verið súr Kannski hefði ég ekki átt að vera svona róman- tískur, heldur hafa vaðið fyrir neðan mig. Kínverski auðmaðurinn og ljóðskáldið Huang Nubo er reiður og sendi Íslendingum tóninn í viðtali við Bloomberg en hann telur yfirvöld hafa dregið sig á asnaeyrunum í landakaupa- málum. Skilinn út undan Já mér var haldið utan við þetta. Mjög mörgum hlutum í Mile- stone var haldið frá mér. Steingrímur Wernersson fékk ekki að vera með í Vafnings- fléttunni með Karli, bróður sínum, og fleiri og gerði grein fyrir þeim leiðindum fyrir héraðsdómi. Hvar er ég? Veistu ég er nú ekki mættur hingað í einhverja opinbera yfirheyrslu er það? Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, bar vitni í Vafnings-málinu fyrir héraðsdómi og þótti fréttamaður Sjónvarpsins spyrja sig af ákefð saksóknara út í málið. En Illugi talaði í klukkutíma! Ég gefst upp á þessum þingmanni. Það er ekki hægt að fá hér eina eða tvær mínútur til að ræða um störf þingsins og þurfa endalaust að svara spurn- ingum utan úr sal. Þetta er ekki boðlegt. Álfheiður Ingadóttir fékk sig fullsadda af frammíköllum Ragnheiðar Elínar Árnadóttur Sjálfstæðisflokki sem greip fram í fyrir henni.  Vikan sem Var Jólaævintýramatseðill 2012 með piparrótarfrauði og rauðrófumauki Léttsteiktur hörpudiskur með sætumkartöflum, mangómauki og rauðvínssoði Kastaníuhnetufyllt kalkúnabringa Val á milli 3 aðalrétta: kremuð með reyktum humri Vatnakarsa- og blaðlauks súpa 4 rétta: með beikon kartöflum, seljurótarmauki og jarðsveppaolíu Lambafilet Wellington með fíkjum, eplum og rauðkáli Andabringur er eftirréttur með ís og ítölskum marengs með Grand-Marnier sæteggjaköku, flamberaður með koníaki eða rommi Bakaður Alaska Verð 8.990.- kr. restaurant Aðalstræti 16 | 101 Reykjavík | Sími 514 6060 | fjalakotturinn@fjalakotturinn.is | www.fjalakotturinn.is 25% afsláttur er af jólaseðlinum sunnudaga – miðvikudaga! G etur verið að umræð-an um stöðu barna sem búa á tveimur heimilum sé einhæf? Algengt er að efnaminni foreldrar í þessari stöðu standi höllum fæti í samfélaginu. Mikil streita fylgir því að takast á við það fyrirkomulag að ala barn upp á tveimur heimilum. Hinsvegar er einnig áhuga- vert að umræða um hvernig auka má líkur á að börn alist upp á einu heimili með báð- um foreldrum heyrist varla. Hér á eftir verður fjallað um hvernig auka má til muna líkurnar á að börn alist upp með báðum foreldrum við barnvæn skilyrði. Þetta verður best gert með því að nýrri þekk- ingu sé beitt til að styrkja unga foreldra í uppeldishlutverkinu. Félag um foreldrajafnrétti efndi til ráðstefnu í febrúar síðastliðnum. Fyrsti ræðumaður á ráðstefnunni var Magnús Orri Schram þingmaður sem talaði um breytta tíma og sagði m.a. frá því að þegar stjúpdóttir hans hóf grunnskólagöngu voru fimmtán börn af tuttugu og fjórum í hennar bekk ekki alin upp af báðum kyn- foreldrum sínum. Þingmaðurinn nefndi einnig að mikilvægt verkefni þeirra sem standa að löggjöfinni, sem og fulltrúum framkvæmdavaldsins, er að gefa fagfólki á hverju sviði sem allra bestu verkfærin til að ná árangri í störfum sínum. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands er hæsta tíðni sambandsslita hjá pörum þegar börn þeirra eru á aldrinum 0-3 ára. Meira en helmingur þeirra tutt- ugu og tvö þúsund barna sem ekki búa með báðum foreldrum voru á leikskóla- aldri og yngri þegar foreldrar þeirra slitu samvistum. Alltof mörg þessara barna eiga í framhaldinu ekki sterk til- finningaleg tengsl við föður sinn. Árið 1957 kom út rannsókn eftir félagsfræðinginn E.E. LeMasters sem sýndi að 83% para upplifðu minni ánægju í sambandinu eftir fæðingu barns. Fjöldi rannsókna hafa síðan staðfest að þetta er upplifun meirihluta para. Í hópnum sem upplifir minni ánægju er tíðni skilnaða helmingi hærri. Dr. Sigrún Júlíusdóttir félagsráðgjafi sem var einnig meðal frummælenda á fyrrnefndri ráð- stefnu Félags um foreldrajafnrétti, fjallaði þar um sérlega góðan árangur af nám- skeiðum hjónasérfræðinganna John og Julie Gottman fyrir verðandi foreldra og foreldra ungbarna. Gottman hjónin voru í júní síðastliðnum með tveggja daga nám- skeið fyrir fagfólk sem 90 manns sóttu, og einnig fyrirlestur í Hörpu fyrir almenning þar sem um 450 manns mættu. Yfir 200 pör hér á landi hafa sótt tólf klukkustunda námskeið Gottman- hjónanna frá árinu 2008. Námskeiðinu er ætlað að hjálpa væntanlegum foreldrum að viðhalda og efla parasambandið sam- hliða því að takast á við foreldrahlut- verkið. Úttekt Velferðarsviðs Reykjavíkur- borgar bendir til þess að þátttakendur á námskeiðinu séu almennt mjög ánægðir með námskeiðið en þeir gáfu því meðal- einkunnina 4,4 af 5 mögulegum. Jafnrétt- isráð kynnti sér á árinu 2009 námskeið Gottman hjónanna og mælir með því sem árangursríkri leið. Rannsókn á árangri af námskeiði Gott- manhjónanna sem birt var á árinu 2007 sýndi að af þeim hjónum/pörum sem sóttu námskeiðið upplifa aðeins 22,5% að gæði parasambandsins minnki eftir fæð- ingu barns. Önnur jákvæð niðurstaða er að bæði feður og mæður sem sóttu nám- skeiðið voru næmari fyrir þörfum barna sinna og brugðust betur við þeim. Þetta átti sérstaklega við um feðurna. Börn þessa hóps sýndu einnig merki um minni streitu og brostu meira. Háttvirtur þingmaður Magnús Orri Schram tiltók á fyrrnefndri ráðstefnu að verkefni þeirra sem standa að lög- gjöfinni sé að gefa fagfólkinu sem allra bestu og fjölbreyttustu verkfærin til að ná árangri í störfum. Því eggja ég hann hér lögeggjan að kynna sér og leggja sitt af mörkum til að efla forvarnir sem hjálpa verðandi feðrum og mæðrum að aðlagast foreldrahlutverkinu. Þannig má koma í veg fyrir þann mannlega harmleik sem gerist allt of oft við sambúðarslit. Þar með einnig minnka útgjöld foreldra vegna lög- fræðideilna, minnka útgjöld samfélagsins vegna þúsunda barnaverndarmála, geð- vandamála og ofbeldis af öllum gerðum. Síðan má ekki gleyma því að ónæmiskerfi barna sem alast upp við traustar aðstæður verður sterkara, þeim vegnar betur í námi og þau verða síður fyrir einelti. Ég á mér þá von að fram komi á Alþingi okkar Íslendinga forystumenn sem átta sig á að kannski er það mikilvægasta fyrir samfélagið að vinna með hagkvæmum og skilvirkum aðferðum að því verkefni að efla fjölskyldulíf ungra foreldra. Þannig geta alþingismenn gert sitt til að sem flest leikskólabörn geti á hverjum degi leikið heima hjá sér – bæði við mömmu og pabba! Efling fjölskyldulífs ungra foreldra Leikskólabörn leiki við mömmu og pabba Ólafur Grétar Gunnarsson fjölskyldu- og hjóna- ráðgjafi 20 viðhorf Helgin 7.-9. desember 2012
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.