Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.12.2012, Page 36

Fréttatíminn - 07.12.2012, Page 36
traus t og gó ð þjónu sta í 16 ár hamraborg 10, kópavogi – Sími: 554 3200 – opið: virka daga: 9:30-18, laugardaga: 11-14 Verið velkomin Fríar sjónmælingar fram að jólum Gjafabréfin okkar eru vinsæl jólaGjöf util if. is THE NORTH FACE MCMURDO DÚNÚLPA 68.990 kr. HENTAR SÉRLEGA VEL FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR. HYVENT ÖNDUNARFILMA VEITIR GÓÐA VATNSVÖRN. ÁR N AS YN IR Á rið sem er að renna sitt skeið hefur heldur betur verið viðburðaríkt hjá Berg-lindi Ýri Karlsdóttur sem hefur haft í nógu að snúast eftir að hún sigraði Dans, dans, dans um þetta leyti fyrir ári. „Árið er búið að vera frábært,“ segir Berg- lind Ýr. „Ég gifti mig í sumar og síðan er ég búin að vera í starfsnámi hjá Íslenska dans- flokknum alla þessa önn og það er búið að vera alger draumur.“ Berglind er á þriðja ári í dansnámi við Listaháskólann og útskrifast í júní. „Það er skylda hjá okkur að fara í skiptinám á næst síðustu önninni en við megum líka fara í starfsnám og þegar Íslenski dansflokkurinn bauð mér að koma til sín í í starfsnám þá tók ég því að sjálfsögðu. „Það var draumur minn að fá að dansa með þeim og þetta er búið að vera frábært,“ segir Berglind Ýr sem hefur fengið tækifæri til þess að stíga á svið með dansflokknum og dansar um þessar mundir í nýju verki, OG ÞÁ ALDREI FRAMAR, eftir Steve Lorenz sem hefur einmitt slegið í gegn í Dans, dans, dans undanfarið. Verkið er eitt af fjórum verkum sem flokkurinn sýnir á Nýja sviði Borgarleikhússins. Eiginmaður Berglindar er tölvunarfræðingur og dans- ar ekki sjálfur en fylgist vel með því sem eiginkonan er að fást við. „Hann er nú minna í því að dansa en hefur samt rosalega gaman að þessu og styður mig alveg 100% sem er bara eins gott,“ segir Berglind og hlær. Bróðir Berglindar, Birkir Karlsson og Helga Krist- ín dansfélagi hans, eru komin í úrslit í Dans, dans, dans. Berglind hefur stutt dyggilega við bakið á dans- parinu unga en þau eru rétt orðin sextán ára. „Ég er búin að vera að hjálpa þeim stíft og það er búið að vera mjög gaman. Þau eru búin að vera ofboðslega dugleg og ég er mjög bjartsýn fyrir þeirra hönd. Þau eru búin að leggja það hart að sér og þau eru svo æðisleg að ég veit að þau eiga alveg jafn mikla möguleika og allir aðrir á að vinna þetta.“ Berglind ætlar að dansa í lokaþættinum á laugardags- kvöld en auk þess ætla Steed Lord, með Svölu Björg- vins í broddi fylkingar, að flytja nýtt lag. „Ég verð með atriði sem er dálítið í anda atriðisins sem ég dansaði í fyrra. Þetta er dramatískt sóló þar sem ég verð svolítið meira á gólfinu sem er náttúrlega það sem mér finnst skemmtilegast.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is Árið sem draumar rættust Berglind Ýr Karls- dóttir dansaði sig inn í hug og hjörtu áhorfenda Dans, dans, dans í fyrra, sigraði og dansaði úr keppninni einni milljón króna ríkari. Hún ætlar að sýna nýtt dramatískt sóló í Sjónvarpinu á laugardags- kvöld þegar keppt verður til úrslita í Dans, dans, dans í annað sinn. Hún mun síðan fylgjast spennt með úr- slitunum þar sem litli bróðir hennar, Birkir Karlsson, er í hópi kepp- enda. Berglind Ýr sigraði í Dans, dans, dans í fyrra og hefur átt frábært ár en draumur hennar um að fá að starfa með Ís- lenska dansflokknum rættist í kjölfar sigursins. Mynd Hari Keppendur í úrslitum Dans, dans, dans Steve. Símanúmer: 9009901 Þórey. Símanúmer: 9009903 Birkir Örn og Helga Kristín. Símanúmer: 9009904 arnar og Steve. Símanúmer: 9009905 Hanna rún og Siggi. Símanúmer: 9009902 Denise og Þorkell. Símanúmer: 9009906 69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent júlí-sept. 2012 34 viðtal Helgin 7.-9. desember 2012
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.