Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 36
traus
t
og gó
ð
þjónu
sta
í 16 ár
hamraborg 10, kópavogi – Sími: 554 3200 – opið: virka daga: 9:30-18, laugardaga: 11-14
Verið velkomin
Fríar
sjónmælingar
fram að jólum
Gjafabréfin okkar
eru vinsæl jólaGjöf
util if. is
THE NORTH FACE
MCMURDO
DÚNÚLPA
68.990 kr.
HENTAR SÉRLEGA VEL
FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR.
HYVENT ÖNDUNARFILMA
VEITIR GÓÐA VATNSVÖRN.
ÁR
N
AS
YN
IR
Á rið sem er að renna sitt skeið hefur heldur betur verið viðburðaríkt hjá Berg-lindi Ýri Karlsdóttur sem hefur haft í nógu að snúast eftir að hún sigraði Dans, dans, dans um þetta leyti fyrir ári. „Árið er búið að vera frábært,“ segir Berg-
lind Ýr. „Ég gifti mig í sumar og síðan er ég búin að vera í starfsnámi hjá Íslenska dans-
flokknum alla þessa önn og það er búið að vera alger draumur.“
Berglind er á þriðja ári í dansnámi við Listaháskólann og útskrifast í júní. „Það er
skylda hjá okkur að fara í skiptinám á næst síðustu önninni en við megum líka fara í
starfsnám og þegar Íslenski dansflokkurinn bauð mér að koma til sín í í starfsnám þá
tók ég því að sjálfsögðu. „Það var draumur minn að fá að dansa með þeim og þetta er
búið að vera frábært,“ segir Berglind Ýr sem hefur fengið tækifæri til þess að stíga á
svið með dansflokknum og dansar um þessar mundir í nýju verki, OG ÞÁ ALDREI
FRAMAR, eftir Steve Lorenz sem hefur einmitt slegið í gegn í Dans,
dans, dans undanfarið. Verkið er eitt af fjórum verkum sem
flokkurinn sýnir á Nýja sviði Borgarleikhússins.
Eiginmaður Berglindar er tölvunarfræðingur og dans-
ar ekki sjálfur en fylgist vel með því sem eiginkonan er
að fást við. „Hann er nú minna í því að dansa en hefur
samt rosalega gaman að þessu og styður mig alveg
100% sem er bara eins gott,“ segir Berglind og hlær.
Bróðir Berglindar, Birkir Karlsson og Helga Krist-
ín dansfélagi hans, eru komin í úrslit í Dans, dans,
dans. Berglind hefur stutt dyggilega við bakið á dans-
parinu unga en þau eru rétt orðin sextán ára.
„Ég er búin að vera að hjálpa þeim stíft og það er búið
að vera mjög gaman. Þau eru búin að vera ofboðslega
dugleg og ég er mjög bjartsýn fyrir þeirra hönd. Þau eru
búin að leggja það hart að sér og þau eru svo æðisleg að ég
veit að þau eiga alveg jafn mikla möguleika og allir aðrir á að
vinna þetta.“
Berglind ætlar að dansa í lokaþættinum á laugardags-
kvöld en auk þess ætla Steed Lord, með Svölu Björg-
vins í broddi fylkingar, að flytja nýtt lag. „Ég verð með
atriði sem er dálítið í anda atriðisins sem ég dansaði í
fyrra. Þetta er dramatískt sóló þar sem ég verð svolítið
meira á gólfinu sem er náttúrlega það sem mér finnst
skemmtilegast.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Árið sem draumar rættust
Berglind Ýr Karls-
dóttir dansaði sig
inn í hug og hjörtu
áhorfenda Dans,
dans, dans í fyrra,
sigraði og dansaði
úr keppninni einni
milljón króna ríkari.
Hún ætlar að sýna
nýtt dramatískt
sóló í Sjónvarpinu
á laugardags-
kvöld þegar keppt
verður til úrslita í
Dans, dans, dans
í annað sinn. Hún
mun síðan fylgjast
spennt með úr-
slitunum þar sem
litli bróðir hennar,
Birkir Karlsson, er
í hópi kepp-
enda.
Berglind Ýr sigraði í Dans, dans, dans í fyrra og hefur átt
frábært ár en draumur hennar um að fá að starfa með Ís-
lenska dansflokknum rættist í kjölfar sigursins. Mynd Hari
Keppendur
í úrslitum
Dans, dans, dans
Steve.
Símanúmer: 9009901
Þórey.
Símanúmer: 9009903
Birkir Örn og Helga Kristín. Símanúmer: 9009904
arnar og Steve. Símanúmer: 9009905
Hanna rún og Siggi. Símanúmer: 9009902
Denise og Þorkell. Símanúmer: 9009906
69% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent júlí-sept. 2012
34 viðtal Helgin 7.-9. desember 2012