Fréttatíminn - 07.12.2012, Side 40
www.syn.is dsyn@dsyn.is Sími: 566-5004 / 659 8449
Mögnuð saga frá Draumsýn
Svo heitt varst þú elskaður
Áhrifamikil og grípandi saga
um samskipti feðga þegar
líður að lífslokum föðursins
eftir norska
verðlaunahöfundinn
Nikolaj Frobenius.
inn stað. Þar sátu fyrir henni þrjár stúlkur,
allar dökkhærðar, ein var í hvít-skræpóttum
buxum, hvítum bol og svörtum, stuttum
leðurjakka yfir. Hún var augljóslega undir
áhrifum, mjög æst, og réðst á Guggu. Hinar
tvær, einnig dökklæddar réðust einnig að
henni með spörkum og barsmíðum. Tvær
tóku í flétturnar á henni og héldu henni fastri
meðan þriðja stúlkan sparkaði í hana og
kýldi. Gugga reyndi árangurslaust að verja
sig.
„Hvað er að ykkur?“ heyrðist Gugga hrópa
þegar hún reyndi að flýja grátandi undan
ofbeldinu. Hún kallaði margoft á hjálp en eng-
inn kom til bjargar. Gugga komst ekki langt.
Stúlkurnar gripu í fléttur hennar, beygðu höfuð
hennar niður og keyrðu hnéð í enni hennar og andlit
og spörkuðu af öllu afli í höfuð hennar. Aftur og aftur.
Hún reyndi að berja og sparka frá sér en það hafði ekk-
ert að segja. Þær voru þrjár, hún var ein.
Gugga féll í jörðina og lá þar í hnipri, vönkuð eftir
höfuðhöggin. Stúlkurnar réðust þá á hana með spörk-
um og létu þau dynja á líkama hennar, fótum, kvið,
baki, höfði. Gugga reyndi að bera fyrir sig hendurnar
og verja á sér höfuð og andlit.
Stór hópur horfði á
Í kringum stúlkurnar hafði nú safnast hópur fólks sem
fylgdist með því sem fram fór. Enginn hreyfði legg né
lið til hjálpar Guggu fyrr en karlmaður um tvítugt kom
upp á milli árásarstúlknanna og Guggu, togaði hana
á fætur og ýtti henni til vinkvenna hennar sem voru
nú komnar til að athuga með hvað væri í gangi. „Farið
með hana í burtu,“ hrópaði hann til þeirra. Þær höfðu
séð þegar stúlkurnar réðust á Guggu og reyndu að
stöðva leikinn. Þeim tókst það ekki því vinkona árásar-
stúlknanna hindraði þær í því.
Gugga reyndi að flýja í átt að Lækjargötunni en
komust ekki langt þegar stúlkurnar réðust á hana aftur
og héldu áfram að berja hana og sparka í hana. Guggu
tókst loks að slíta sig frá stúlkunum og
flúði lengra í átt að Lækjargötu. Hún
tók stefnuna beint á lögreglubíl sem þar
var á verði. Hún var í miklu uppnámi og
sagði lögreglumönnunum þremur frá
því að þrjár stúlkur hefðu ráðist á sig og
sparkað í höfuðið á sér. Á henni voru
engir sjáanlegir áverkar – hún sagðist
finna til í höfðinu og buðust lögreglu-
þjónarnir til þess að keyra hana heim,
sem hún þáði.
Hætti að anda í lögreglubílnum
Í lögreglubílnum sagðist hún finna fyr-
ir ógleði og kastaði stuttu síðar upp,
þrisvar sinnum, missti meðvitund og
hætti því næst að anda. Lögregluþjónninn, sem sat við
hliðina á Guggu í aftursætinu, blés í hana og hnoðaði
þangað til bíllinn var kominn á Landspítalann í Foss-
vogi. Um það leyti sýndi Gugga lífsmark að nýju. Hún
var þó í djúpu dái og rannsókn leiddi í ljós alvarlegar
truflanir á heilastarfsemi vegna blæðingar í heila. Hún
fór beint í skurðaðgerð þar sem reynt var að létta þrýst-
ingi á heilann og heilastofninn og var hún í lífshættu í
nokkurn tíma.
Gugga var meðvitundarlaus í öndunarvél á gjör-
gæsludeild í meira en mánuð en fór þá smátt og smátt
að koma til. Þegar hún vaknaði til meðvitundar kom
í ljós að hún hafði hlotið alvarlegar heilaskemmdir af
völdum áverkanna sem stelpurnar ollu henni með bar-
smíðunum og spörkunum.
Hún gat ekki hreyft sig, ekki einu sinni litla putta, né
heldur gat hún talað, kyngt eða andað.
Björt framtíð glaðlyndrar unglingsstúlku hafði á
einu augnabliki verið tekin frá henni. Ekki af slysför-
um, eða vegna veikinda – heldur af mannavöldum.
Þetta finnst móður hennar, Barböru Ármannsdóttur,
erfiðast að yfirstíga. Að ósköpin sem dundu yfir – að
fötlun dóttur hennar – sé af mannavöldum. „Það er
Framhald á næstu opnu
Gugga tjáði sig í átján ár með því að benda á
orð á spjaldi á hjólastólaborðinu sínu. Fyrir
ári byrjaði hún hins vegar að tala og getur nú
með talsverðri fyrirhöfn sagt þrjú til fjögur
orð í einu.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
LEKI
GÖNGUSTAFIR
9.990 kr.
TRAUSTIR OG VANDAÐIR.
Fyrirliðabönd
Pumpur
Ængahattar
fyrir tækniængarnar
Úrval af
fótboltum
Verð aðeins
kr. 12.990.-Aukaængin skapar meistarann
Fótboltamark!!!
sjón er sögu ríkari
Skemmtilegar fótboltagjar
38 viðtal Helgin 7.-9. desember 2012