Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 40

Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 40
www.syn.is dsyn@dsyn.is Sími: 566-5004 / 659 8449 Mögnuð saga frá Draumsýn Svo heitt varst þú elskaður Áhrifamikil og grípandi saga um samskipti feðga þegar líður að lífslokum föðursins eftir norska verðlaunahöfundinn Nikolaj Frobenius. inn stað. Þar sátu fyrir henni þrjár stúlkur, allar dökkhærðar, ein var í hvít-skræpóttum buxum, hvítum bol og svörtum, stuttum leðurjakka yfir. Hún var augljóslega undir áhrifum, mjög æst, og réðst á Guggu. Hinar tvær, einnig dökklæddar réðust einnig að henni með spörkum og barsmíðum. Tvær tóku í flétturnar á henni og héldu henni fastri meðan þriðja stúlkan sparkaði í hana og kýldi. Gugga reyndi árangurslaust að verja sig. „Hvað er að ykkur?“ heyrðist Gugga hrópa þegar hún reyndi að flýja grátandi undan ofbeldinu. Hún kallaði margoft á hjálp en eng- inn kom til bjargar. Gugga komst ekki langt. Stúlkurnar gripu í fléttur hennar, beygðu höfuð hennar niður og keyrðu hnéð í enni hennar og andlit og spörkuðu af öllu afli í höfuð hennar. Aftur og aftur. Hún reyndi að berja og sparka frá sér en það hafði ekk- ert að segja. Þær voru þrjár, hún var ein. Gugga féll í jörðina og lá þar í hnipri, vönkuð eftir höfuðhöggin. Stúlkurnar réðust þá á hana með spörk- um og létu þau dynja á líkama hennar, fótum, kvið, baki, höfði. Gugga reyndi að bera fyrir sig hendurnar og verja á sér höfuð og andlit. Stór hópur horfði á Í kringum stúlkurnar hafði nú safnast hópur fólks sem fylgdist með því sem fram fór. Enginn hreyfði legg né lið til hjálpar Guggu fyrr en karlmaður um tvítugt kom upp á milli árásarstúlknanna og Guggu, togaði hana á fætur og ýtti henni til vinkvenna hennar sem voru nú komnar til að athuga með hvað væri í gangi. „Farið með hana í burtu,“ hrópaði hann til þeirra. Þær höfðu séð þegar stúlkurnar réðust á Guggu og reyndu að stöðva leikinn. Þeim tókst það ekki því vinkona árásar- stúlknanna hindraði þær í því. Gugga reyndi að flýja í átt að Lækjargötunni en komust ekki langt þegar stúlkurnar réðust á hana aftur og héldu áfram að berja hana og sparka í hana. Guggu tókst loks að slíta sig frá stúlkunum og flúði lengra í átt að Lækjargötu. Hún tók stefnuna beint á lögreglubíl sem þar var á verði. Hún var í miklu uppnámi og sagði lögreglumönnunum þremur frá því að þrjár stúlkur hefðu ráðist á sig og sparkað í höfuðið á sér. Á henni voru engir sjáanlegir áverkar – hún sagðist finna til í höfðinu og buðust lögreglu- þjónarnir til þess að keyra hana heim, sem hún þáði. Hætti að anda í lögreglubílnum Í lögreglubílnum sagðist hún finna fyr- ir ógleði og kastaði stuttu síðar upp, þrisvar sinnum, missti meðvitund og hætti því næst að anda. Lögregluþjónninn, sem sat við hliðina á Guggu í aftursætinu, blés í hana og hnoðaði þangað til bíllinn var kominn á Landspítalann í Foss- vogi. Um það leyti sýndi Gugga lífsmark að nýju. Hún var þó í djúpu dái og rannsókn leiddi í ljós alvarlegar truflanir á heilastarfsemi vegna blæðingar í heila. Hún fór beint í skurðaðgerð þar sem reynt var að létta þrýst- ingi á heilann og heilastofninn og var hún í lífshættu í nokkurn tíma. Gugga var meðvitundarlaus í öndunarvél á gjör- gæsludeild í meira en mánuð en fór þá smátt og smátt að koma til. Þegar hún vaknaði til meðvitundar kom í ljós að hún hafði hlotið alvarlegar heilaskemmdir af völdum áverkanna sem stelpurnar ollu henni með bar- smíðunum og spörkunum. Hún gat ekki hreyft sig, ekki einu sinni litla putta, né heldur gat hún talað, kyngt eða andað. Björt framtíð glaðlyndrar unglingsstúlku hafði á einu augnabliki verið tekin frá henni. Ekki af slysför- um, eða vegna veikinda – heldur af mannavöldum. Þetta finnst móður hennar, Barböru Ármannsdóttur, erfiðast að yfirstíga. Að ósköpin sem dundu yfir – að fötlun dóttur hennar – sé af mannavöldum. „Það er Framhald á næstu opnu Gugga tjáði sig í átján ár með því að benda á orð á spjaldi á hjólastólaborðinu sínu. Fyrir ári byrjaði hún hins vegar að tala og getur nú með talsverðri fyrirhöfn sagt þrjú til fjögur orð í einu. Á R N A S Y N IR util if. is LEKI GÖNGUSTAFIR 9.990 kr. TRAUSTIR OG VANDAÐIR. Fyrirliðabönd Pumpur Ængahattar fyrir tækniængarnar Úrval af fótboltum Verð aðeins kr. 12.990.-Aukaængin skapar meistarann Fótboltamark!!! sjón er sögu ríkari Skemmtilegar fótboltagjar 38 viðtal Helgin 7.-9. desember 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.