Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 46
B leik og blá föt á fæðinga-deild: Helst ber að nefna deilurnar frá 2007 um
bleiku og bláu fötin á fæðinga-
deildum og má segja að þær hafi
markað upphaf þeirrar opinberu
umræðu sem átt hefur sér stað um
kynjaða markaðssetningu. Kol-
brún Halldórsdóttir, þá þingkona,
sendi Guðlaugi Þór Þórðarsyni,
þáverandi heilbrigðisráðherra,
fyrirspurn um bleiku og bláu fötin
á spítölunum. Hún sagði litina
mótandi og slíka kynjaskiptingu
við fæðingu úrelta og til þess eins
fallna að ýta undir frekara mis-
rétti kynjanna seinna meir. Hún
studdist við margvíslegar rann-
sóknir um kyngervi við flutning
tillögunnar. Kolbrún var harðlega
gagnrýnd inni á þinginu og einnig
í samfélaginu öllu og töldu margir
að það væri fásinna ef alþingi
ætlaði sér að miðstýra hvernig
fólk klæddi börn sín á fæðingar-
deildum. Tillagan var felld á sínum
tíma. Í dag er hins vegar boðið
upp á bleik, blá og hvít föt fyrir
hvítvoðunga á spítalanum.
Bleikir og bláir hjálmar: Eim-
skip, í samvinnu við Kiwanis á Ís-
landi, gáfu öllum sex ára börn-
um á landinu reiðhjólahjálma.
Hjálmarnir komu í tveimur litum,
bleikum og bláum. Skipaðir voru
rýnihópar með börnum. Þar kom
í ljós að flestar stúlkurnar vildu
bleika en drengirnir bláa hjálma.
Litavalið var harðlega gagnrýnt
af femínistum með sömu rökum
og Kolbrún hafði forðum. Að slík
kynjamótun væri takmarkandi og
tengd gamaldags viðhorfum til
kynjanna.
Stelpu og strákaís: Guðný Þor-
steinsdóttir forritari vakti fyrst
athygli á ísunum á facebook-síðu
sinni. „Ætlaði að kaupa ís fyrir
krakkana og komst að því að nú
mega stelpur og strákar ekki
lengur borða sama ís. Strákar eiga
að borða vanillu en stelpur jarðar-
berja! Ó já, þannig er sko Ísland í
dag,“ sagði Guðný og viðbrögðin
létu ekki á sér standa. Myndinni
var deilt víða á samskiptamiðlum
og mikil umræða fór í gang í fjöl-
miðlum. Þótti markaðssetningin í
besta falli óheppileg. Margir skildu
þó ekki hvernig fólk nennti á annað
borð að æsa sig yfir markaðssetn-
ingu á ís. Margt þarfara baráttu-
efnið væri til í heiminum. Skemmst
er frá því að segja að ísarnir voru
teknir úr sölu.
Polla og pæju sleikjó: Önnur
mynd sem náði flugi á samskipta-
miðlum var einnig frá áhyggjufullri
móður sem þótti sælgætisfram-
leiðendurnir takmarka val barna
sinna. Líkt og áður stóð umræðan
um það hvort réttlætanlegt væri
að takmarka val barna og snúa
þeim frá því sem þau raunverulega
vildu. Aðrir vildu meina að kynin
væru í grunninn ólík og því rétt-
lætanlegt að markaðssetja þau sem
slík. Sleikibrjóstsykurinn er ennþá
hægt að nálgast í verslunum.
Bleika og Bláa bókin: Nýjasta
dæmið er líklega bækurnar sem
teknar voru úr sölu í Svíþjóð en
standa kaupendum á Íslandi ennþá
til boða.
Í bókunum, sem eru einskonar
þrautabækur, er að margra mati
mjög gróf kynjuð framsetning. Í
yfirlýsingu útgefendans, Set-
bergs, kemur fram að bókunum
sé vissulega ætlað að höfða til sitt
hvors kynsins og þær að efni til
mismunandi og ekki full sambæri-
legar. Í Bleiku bókinni minni séu
kaflar um orð, tölur og leiki, dýr,
liti og form, leikföng og loks um
að heima sé best. Í Bláu bókinni
minni eru kaflar um sveitina, villt
dýr, bíla, stór farartæki, risaeðlur
og geiminn. Bókunum er ætlað
að þjálfa börn í einbeitingu og
athygli, samkvæmt útgefanda.
Partí og co. Stelpur: Spilið inni-
heldur fjóra spurninga- og þrauta-
flokka: Fegurð, Tíska, Tómstundir
og Menning. Í leiklýsingu stendur
„Leikurinn er miðaður að stelpum
á aldrinum 8-14 ára og öll leik-
peðin eru stelpur. Krakkar sem
hafa áhuga á tísku og útliti ættu að
skemmta sér vel í spilinu og hlæja
mikið yfir því sem þau þurfa að
gera til að komast áfram á næsta
reit. Þú gætir þurft að leika hvern-
ig þú verður þegar þú færð sms frá
stráknum sem þú ert skotin í, gera
fasta fléttu í vinkonu þína eða telja
upp þrjár ilmvatnstegundir.“ Ljóst
þykir að framsetningin er ekki
boðleg þeim drengjum sem hafa
áhuga á tísku og menningu.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
RúmGott · Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) · Kópavogi · Sími 544 2121
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 · www.rumgott.is
Löggiltir dýnuframleiðendur, starfandi í 60 ár
FAGLEG RÁÐGJÖF OG
FRÍ LEGUGREINING
Komdu í heimsókn, prófaðu legugreininguna, og fáðu faglega
ráðgjöf um val á heilsudýnum, án skuldbindinga!
RúmG ott býður öllum viðskiptavinum upp á fría legugreiningu
með hinum byltingarkennda Xsensor Medical Pro búnaði.
HVENÆR ER ÞÖRF Á LEGUGREININGU?
Finnurðu fyrir eymslum í mjóbaki?
Vaknarðu oft með verki í mjöðm?
Finnurðu fyrir eymslum eða dofa í öxlunum?
Sefurðu illa vegna annara óþæginda?
· hryggskekkju
· brjósklos
· samföllnum hryggjaliðum
· spengdum hryggjaliðum
· gigt, til dæmis:
· slitgigt, veagigt eða liðagigt.
FREMSTIR Í FRAMLEIÐS LU Á HEI LSUDÝNUM
Vertu öru
gg/ur.
Komdu í
greiningu
20-
50%
AFS
LÁT
TUR
AF
ÖLL
UM
HEIL
SUR
ÚM
UM
ROYAL OG CLASSIC
rafmagnsrúm
á 30 - 40% afslætti.
6-12 mánaða vaxtalaus VISA / EURO greiðsludreifing
Smíðum
rafmagn
srúm
í öllum s
tærðum!
DRAUMARÚM
V IÐ FRAM LEIÐUM ÞITT RÚM EFTIR ÞÍNUM ÞÖRFUM
S ÉRSMÍÐUM RÚM OG DÝNUR Í Ö LLUM STÆRÐUM
RDAGA
TÖKUM GAMLA RÚMIÐ UPPÍ NÝTT!
JÓLATILBOÐ
TÖKU AMLA RÚMIÐ UPP Í NÝTT
Bleika og bláa stríðið
Í vikunni bárust fréttir um ólíka leikfangabæklinga verslunarinnar Toys ‘r us. Annars vegar í
Svíþjóð og hins vegar í nágrannalöndum. Fram hefur komið að foreldrar í Svíþjóð hafi, vegna
háværra óánægjuradda, knúið fram breytingar á svokallaðri kynjaðri framsetningu blaðanna.
Íslendingar eru alls ekki ókunnugir slíkri umræðu og Fréttatíminn ákvað að taka saman nokkur
dæmi sem valdið hafa úlfúð undanfarin misseri eða allt frá árinu 2007 þegar Kolbrún Halldórs-
dóttir mælti fyrir um breytingar á fatnaði ungbarna á fæðingadeildum.
44 úttekt Helgin 7.-9. desember 2012