Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 50
9.000
Fjöldi gesta á Eldborgarhátíðinni um
verslunarmannahelgina 2001. Þrátt fyrir
mikla öryggisgæslu og eftirlit fór hátíðin
úr böndunum. Tíu stúlkur leituðu til Stíga-
móta sem voru með aðstöðu á svæðinu
vegna nauðgana eða nauðgunartilrauna.
Orðið smjörsýra komst á hvers manns varir
í kjölfar hátíðarinnar, en nokkurt magn af
þessu bragðlausa svæfingarlyfi sem veldur
minnisleysi var í umferð á Eldborg.
47.000.000
Upphæð sektar sem Hæstiréttur dæmdi
Sölufélag garðyrkjumanna og fyrirtækin
Ágæti/Bananar og Mata til að greiða í hinu
svokallaða grænmetissamráðsmáli, sem
upp kom árið 2001.
5 Fjöldi manndrápa árið 2002, jafn mörg og árið 2000. Aldrei höfðu jafn mörg manndráp verið framin á
einu ári hér á landi á síðari tímum.
6 Fjöldi mánaða sem Gunnar Örn Örlygsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, var dæmdur til að afplána fyrir bókhaldsbrot og kvótasvindl. Þar af voru þrír
óskilorðsbundnir. Málið komst upp árið
2000, áður en Gunnar Örn var kjörinn á
þing, þegar hann upplýsti sjálfur um brot
sín í fjölmiðlum. Kvaðst hann hafa landað
fiski framhjá vigt til að benda á brotalamir
í fiskveiðistjórnarkerfinu. Dómur féll í mál-
inu árið 2002. Gunnar komst á þing vorið
2003 og sat inni þegar Alþingi kom saman
um haustið – en slíkt var einsdæmi.
120 Fjöldi brota sem Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni
prófessor var stefnt fyrir að hafa drýgt
í fyrsta bindi ævisögu hans um Halldór
Laxness, með því að aðgreina ekki eigin
texta frá texta Nóbelsskáldsins. Hannes
varði í fyrstu vinnubrögð sín en játaði
síðar á sig mistök. Hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu að í tveimur þriðju tilfella
hefði Hannes brotið á gegn höfundarrétti
á verkum Halldórs og dæmdi hann til að
greiða Auði Sveinsdóttur, ekkju skáldsins,
1,5 milljónir króna í bætur.
300.000.000
Upphæðin sem Davíð Oddsson sagði að
Hreinn Loftsson hefði látið að því liggja að
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs,
væri reiðubúinn til að borga Davíð fyrir að
láta af andstöðu sinni við Baug. Frá þessu
sagði Davíð í morgunþætti Ríkisútvarps-
ins 3. mars 2003 og varð þetta einn af
vendipunktunum í Baugsmálinu.
30.000
Fjöldi undirskrifta á skjali þar sem skorað
var á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Ís-
lands, að synja frumvarpi ríkisstjórnar-
innar um ný fjölmiðlalög staðfestingar,
sumarið 2004. Sem kunnugt er varð
forsetinn við þeirri bón og breytti þar
með eðli embættisins og ásýnd þess til
frambúðar.
11,9 m
Lengd heimsins lengstu pylsu í brauði, sem
Sláturfélag Suðurlands og Myllan settu
upp í Kringlunni í nóvember 2004. Pylsan
var búin til í tilefni af 50 ára afmælisút-
gáfu Heimsmetabókar Guinness. Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra tók fyrsta
bitann og hvatti börn til að borða pylsur,
því þá yrðu þau sterk.
150.000
Fjöldi atkvæða sem greidd voru í
símakosningu í fyrsta úrslitaþætti Idol-
stjörnuleitar Stöðvar 2 í janúar 2004. Karl
Bjarni Guðmundsson, 28 ára sjómaður úr
Grindavík, sigraði með yfirburðum og fékk
um 49 prósent atkvæða.
20.204
Fjöldi áhorfenda á Laugardalsvelli 18. ágúst
2004 þegar karlalandslið Íslands í fótbolta
mætti Ítalíu í vináttulandsleik. 36 ára
gamalt aðsóknarmet var þar með bætt um
liðlega 2.000 manns. Ísland sigraði með
tveimur mörkum gegn engu. Eiður Smári
Guðjohnsen og Gylfi Einarsson skoruðu.
700.000
Fjöldi einstaklinga sem skráðir voru í
gagnagrunninn Íslendingabók, sem settur
var á netið árið 2003. Þetta var fyrsti ætt-
fræðigrunnurinn í öllum heiminum sem
náði til heillar þjóðar.
1797
Fjöldi hjónavígslna á Íslandi árið 2007.
Aldrei áður höfðu jafn mörg pör látið pússa
sig saman á einu ári.
31.000
Seld eintök af plötum Páls Óskars Hjálm-
týssonar, Allt fyrir ástina og Silfursafnið
2007 og 2008.
2000
Fjöldi undirskrifta á lista á netinu þar
sem brottrekstri Randvers Þorlákssonar
úr Spaugstofunni síðla sumars 2007 var
mótmælt.
10Fjöldi daga sem það tók kærustu sonar Jónínu Bjartmarz, þingmanns Framsóknarflokksins og
umhverfisráðherra, að fá íslenskan ríkis-
borgararétt í mars 2007.
119.000
Fjöldi bíógesta sem sáu kvikmyndina
Mama Mia! árið 2008. Enginn mynd hefur
fengið meiri aðsókn hér á landi fyrir utan
Titanic. Sérstakar söngsýningar, þar sem
áhorfendum var boðið að syngja með,
nutu mikilla vinsælda.
40
Fjöldi starfs-
manna Impregilo
sem veiktust
heiftarlega
af völdum
matareitrunar í vinnu við aðrennslisgöng
á Kárahnjúkum í apríl 2007. Heilbrigðis-
fulltrúar töldu eitrunina mega rekja til
óvistlegra aðstæðna. Verkamenn sögðust
búa við ómanneskjulegar aðstæður; dag-
inn fyrir veikindin hefðu þeir verið djúpt
niðri í jörðu í tólf tíma án þess að fá vott né
þurrt og þurft að sleikja hellisveggina til að
svala sárasta þorstanum.
75.000
Fjöldi Íslendinga sem skráðir voru á sam-
skiptavefinn Facebook í nóvember 2008.
10.000
Fjöldi hamborgara sem McDonalds seldi
á hverjum degi síðustu dagana fyrir lokun
staðarins í nóvember 2009. Eins og nærri
getur var ástæðan lokunarinnar ekki lítil
eftirspurn heldur gengishrun, sem gerði
innkaup á erlendu hráefni óhagstæð.
150.000
Fjöldi þeirra sem höfðu látið bólusetja sig
gegn svínaflensu í mars 2010. Talið er að 17
prósent Íslendinga hafi smitast af flensunni
frá því að fyrstu tilfellin greindust hér á
landi í maí 2009. Um 180 manns þurftu að
leggjast inn á spítala vegna hennar og að
minnsta kosti tveir létust.
8 Fjöldi vikna sem lagið Jungle Drum með Emilíönu Torrini tróndi í efsta sæti vinsældalistans í Þýskalandi
sumarið 2009.
190 kíló
Magn af hassi sem tollgæslan á Seyðis-
firði fann í húsbíl sem kom hingað til
lands með ferjunni Norrænu í júní 2008.
Þetta var langstærsti fíkniefnafundur
hér á landi fyrr og síðar. Tveir menn
hlutu dóm fyrir. Árið eftir voru sex
manns handteknir í Papeyjarmálinu svo-
nefnda, þar sem þeir reyndu að smygla
110 kílóum af fíkniefnum, þar af um 55
kílóum af amfetamíni, til landsins með
skútu.
5
Fjöldi mánaða sem liðu
frá því að Borgarahreyf-
ingin fékk fjóra þingmenn
kjörna í Alþingis-
kosningunum 2009, þar
til flokkurinn stóð uppi
þingmannalaus.
140.000.000 m3
Gjóskumagn sem talið var að fallið hefði
úr Eyjafjallajökli í gosinu 2010. Inn í þeirri
tölu var ekki gjóska sem fallið hafði í hafið
eða í öðrum löndum. Leita þurfti aftur til
Kötlugoss 1918 eða Heklugoss 1947 eftir
viðlíka gjóskumagni.
600.000
Fjöldi skipta sem landkynningarmyndbandi
í tengslum við markaðsátakið Inspired by
Iceland var hlaðið niður 7. júní 2010.
250 Fjöldi land-námshænsna sem drápust í eldsvoða í úti-
húsi á bænum Tjörn á Vaðnesi í mars 2010.
Fjórir kettir urðu líka eldinum að bráð.
15% Hlutfall reyk-ingamanna á aldrinum 15 til
89 ára, samkvæmt könnun Capacent fyrir
Lýðheilsustöð árið 2010. Reykingamenn á
Íslandi höfðu samkvæmt þessi aldrei verið
færri og fækkað hlutfallslega um helming
síðan 1991.
10.000.000.000.000
(10.000 milljarðar)
Beint fjárhagstjón vegna bankahrunsins
að mati Sigurðar Þórðarsonar, fyrrverandi
ríkisendurskoðanda, sem hélt erindi á
fundi Félags viðskipta og hagfræðinga
í júní 2010. Það var að tæplega sjöföld
þjóðarframleiðsla ársins 2008 og svaraði
til 43 ára útflutningsverðmætis sjávarút-
vegsins.
Fyrsti áratugur 21. aldarinnar er rakinn í máli og myndum í bókinni Ísland í aldanna rás 2001-
2010 sem kom út fyrir skemmstu. Óhætt er að segja að bókin sé skemmtileg lesning enda var
þetta tímabil í meira lagi viðburðaríkt. Höfundar bókarinnar eru blaðamennirnir Bergsteinn
Sigurðsson og Björn Þór Sigbjörnsson. Fréttatíminn fékk góðfúslegt leyfi þeirra og Forlagsins
til að stikla á stóru í þeim atburðum sem raktir eru í bókinni.
Fyrsti áratugurinn í tölum
Gos í Eyjafjallajökli árið 2010. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Svokallaðar söngsýningar á kvikmynd-
inni Mamma Mia! nutu mikilla vinsælda
árið 2008. Mynd: Morgunblaðið/Guðmundur
Rúnar Guðmundsson
Eldborgarhátíðin
2001. Mynd: Morgun-
blaðið/Ragnar Axelsson
Guðni Ágústsson
landbúnarráðherra
tók fyrsta bitann af
lengstu pylsu heims í
brauði. Mynd: Morgun-
blaðið/Árni Torfason
48 úttekt Helgin 7.-9. desember 2012