Fréttatíminn - 07.12.2012, Side 75
KraKKajóga Börnin læra einBeitingu
heilsa 69Helgin 7.-9. desember 2012
Opið í Fákafeni á sunnudögum
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni Hæðasmára Fákafeni
Heilsusprengja
25%
afsláttur
ekki gleyma heilsunni um jólin!
25% afsláttur af
öllum NOW bætiefnum
fimmtudag til
sunnudags
yfir 200 tegundir
!
Ti
lbo
ð g
ild
ir
fr
á
6.
-
9.
d
es
em
be
r 2
01
2
Myndbandið var unnið á Þingvöllum í sumar, einn fallegan góðviðrisdag.
Kennir börnum jóga á myndbandi
K veikjan var sú að fyrir nokkr-um árum var ég með krakka-jóga í Stundinni okkar. Síðan
hafa hrannast inn fyrirspurnir frá for-
eldrum og leikskólakennurum sem
voru ánægðir með framtakið á sínum
tíma og fannst vanta eitthvað svipað,“
segir Auður Bjarnadóttir, jógakenn-
ari og eigandi Jógasetursins. Hún,
ásamt Sigrúnu Harðardóttur mynd-
listarkonu, gefur út mynddiskinn
Krakkajóga nú um helgina. Mynd-
bandið er unnið á vegum Jógaset-
ursins og Erumenn. Að sögn Auðar
læra börnin af myndbandinu ýmsar
jógastöður og æfingar sem styrkja
jafnvægi, skerpa einbeitingu og
hjálpa þeim við slökun.
„Hugmyndin var að fá börnin til
þess að standa upp frá sjónvarpinu og
hreyfa sig. Það sem þetta gerir fyrir
börn er að þau læra fyrst og fremst
einbeitingu. Þau læra slökun og
komast í betri tengingu við líkamann
sinn.“ Hún segir að mörg dæmi séu
um að börn sem finni fyrir óöryggi
grípi til jógaæfinga. „Ég hef heyrt
sögur þar sem jógað skilaði sér afar
vel. Móðir lítillar stúlku hafði sam-
band við mig og sagði mér hvernig
dóttir hennar tókst á við ofsakvíða
fyrir sprautu með æfingunum sem
hún hafði lært í krakkajóganu.“
Hún segir að dýraríkið og nátt-
úran séu áberandi í krakkajóga
og þótt leikgleðin sé í fyrirrúmi er
myndbandið í senn bæði fræðandi og
örvandi fyrir ímyndunaraflið. Hún
bendir jafnframt á að rannsóknir
hafa sýnt að börn læra best í gegnum
hreyfingu og leik og að þeim þáttum
sé hugað í myndbandinu.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Banani
í stað eggja
Þeir sem eru með
eggjaofnæmi þurfa ekki að
örvænta yfir því að missa
af jólasmákökunum og
sætabrauðinu sem fylgja
jólahaldinu. Í stað þess að
nota egg í bakstur, er hægt
að nota banana. Banan-
arnir hafa svipaða virkni í
deiginu og gefa sætara
bragð.
Tónlistin í ræktinni
Það þarf svo sem ekki að koma á óvart
að samkvæmt margra mati er tónlistin
mikilvægasti þáttur í líkamsræktar-
innar. Fréttatíminn fór í rannsóknar-
leiðangur og spurði fólk úr öllum áttum
hvað það væri sem helst yrði fyrir
valinu við líkamsræktina. Við röðuðum
niðurstöðunum saman í einn skotheldan
líkamsræktar tón–lista.
1. Rocky Anthem: Það er fátt jafn
hvetjandi og þemalag Rocky
myndarinnar og það því vel til þess
fallið að byrja á. Það getur líka verið
fínt að hlusta á það í lok æfinga. Þá
ertu ósigrandi.
2. Black Eyed Peas – I Gotta Felling:
Að margra mati er Black Eyed Peas
ómissandi félagi í ræktina.
3. Emininem – Loose your self: Ef að
þú ert ennþá að ná þér í ræktargír-
inn eftir hin tvö ætti þetta að gera
útslagið. Yfir þessu ættir þú að
vera orðin mátulega gírug/ur fyrir
komandi átök.
4. Rammstein – Du hast: Þetta ættu
flestir að þekkja. Lagið gefur góðan
grunn og er kjörið til þess að fá útrás
yfir. Komasvo. Pumpa!
5. Prodigy – Spitfire: Þetta ætti að
halda þér við efnið.
6. Black Eyed Peas – Pump it: Titillinn
einn og sér ætti að vera nóg til þess
að hvetja örgustu sófakartöflur til
þess að hreyfa sig.
7. Gísli Pálmi – Swagalegt: Það þurfa
allir smá GP og í ræktinni er hann
mjög fínn félagi.
8. Arcade Fire – Keep the car running:
Það sem segir í titlinum. Ekki stoppa.
9. Aphex Twin - Vordhosbn: Þetta
ætti að ná þér ágætlega niður.
10. Celine Dion – Think twice: Best er
að ljúka æfingum með teygjum undir
hádramatískum tónum. Við mælum
með þessu.
Tónlistin er að margra mati lykilatriði í
líkamsræktinni og getur svo sannarlega
virkað hvetjandi, sé hún rétt valin.