Fréttatíminn - 07.12.2012, Qupperneq 76
70 heilsa Helgin 7.-9. desember 2012
ASÓ litArefni getA hAft áhrif á hegðun bArnA
Litarefnin fá að njóta
vafans umfram börnin
Vantar þig
jólagjöf?
Lágmúla - Laugavegi - Smáralind - Smáratorgi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Blönduósi - Hvammstanga - Skagaströnd - Sauðárkróki
Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
19
54
1
1/
12
Jólin eru tími til að gefa.
Í Lyfju finnur þú úrval af gjafavöru í pakkana til þeirra
sem þér þykir vænt um. Við erum aldrei langt undan.
Mundu eftir jólahandbók Lyfju.
Kannski er jólagjöfin í Lyfju
GEYMDU BLAÐIÐ!
SáraSmyrSl
Fæst í heilsubúðum og apótekum
www.annarosa.is
Ég var með slæmt sár í 5 mánuði eftir
skurðaðgerð og búin að reyna allskonar
krem og smyrsl. Sárasmyrslið hennar
Önnu rósu gerði kraftaverk og sárið
greri á einni viku. Svo er það líka gott á
sprungur, útbrot og þurrkubletti.
Lena Lenharðsdóttir
Merkingar Kötlu á rauðum piparkökuglassúr hafa
vakið athygli. Merkingarnar eru samkvæmt nýrri
reglugerð sem innleidd var á árinu. Ingibjörg Gunn-
arsdóttir, prófessor í næringarfræðum, segir að
notkunin ætti ekki að hafa teljandi áhrif á börn sé
hún bundin við neyslu á piparkökum, einu sinni á ári,
en bendir á að slík efni sé einnig að finna í sælgæti
og margvíslegum orkudrykkjum.
É g held að lykilspurningin í þessu öllu sam-an sé hvort rauður litur á piparkökum hafi svona ofboðslega sterkt tilfinningalegt
gildi eða hvort að hvítt sé ekki bara alveg jafn
fallegt,“ segir Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor
í næringarfræði. Hún segir rauðan matarlit
ónauðsynlegan, en segir
jafnframt að fyrir þau sem
ekki geti sleppt honum sé
það eflaust í lagi, „svona til
að gleðja augað einu sinni á
ári á nokkrum piparkökum.“
Í vikunni vöktu athygli
varúðarmerkingar á rauð-
um piparkökuglassúr frá
Kötlu. Á umbúðunum stend-
ur nú: „Getur haft neikvæð
áhrif á athafnasemi og eftir-
tekt barna“. Í tilkynningu
til fjölmiðla segir Katla að
verið sé að uppfylla kröfur á
gildandi reglugerðum sem
til eru varðandi merkingar á
matvælum. Reglugerðirnar
hafa verið til um nokkurt
skeið en lítið hefur borið á
merkingum á borð við þær
frá Kötlu. Svokölluð asó-litarefni hafa lengi verið
umdeild en samkvæmt upplýsingum Frétta-
tímans voru einhver þeirra bönnuð á Íslandi til
ársins 1997 þar sem þau geta valdið ofnæmis-
viðbrögðum. Grunur liggur á um að efnin hafi
einnig óæskileg áhrif á börn.
„Það var gerð rannsókn á breskum börnum
þar sem hópi barna var gefinn skammtur sem
samsvaraði allajafna neysluskammti breskra
barna. Þetta var nokkuð vel útfærð íhlutun og í
ljós kom að börnin sem neyttu litarefnanna áttu
erfiðara með einbeitingu.“
Samkvæmt niðurstöðum bresku rannsóknar-
innar sem framkvæmd var árið 2007 var sýnt
fram á tengsl á milli neyslu litarefnanna og
ofvirkni hjá börnum. Í kjölfar rannsóknarinnar
var unnið að reglugerðum innan Evrópusam-
bandsins og þar er nú er skylt að merkja matvæli
sem innihalda litarefnin, með varúðarorðum.
Slíkar reglur voru innleiddar hér á landi fyrr á
þessu ári.
„Ég held að margir hafi vonað að efnunum
yrði kippt úr umferð, en ákvörðun virðist hafa
verið tekin um að leyfa litnum að njóta vafans
umfram börnin. Það er svolítið skrítið,“ segir
Ingibjörg. Hún bendir á að fyrir nokkrum árum
hafi rauður litur kjötáleggsins malakoff verið
fjarlægður. „Einu sinni var boðið upp á rautt
malakoff og mörgum þótti það hræðilega vont í
smá tíma eftir að liturinn hvarf,“ segir Ingibjörg
og hlær. Hún segir notkun litarins sé því frekar
bundin við venjur og hefðir. „Það er líka mjög
fallegt að skreyta með hvítu, bara alls ekkert
síðra.“
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
Ingibjörg Gunn-
arsdóttir segir
það undarlegt að
litarefnin séu látin
njóta vafans um-
fram börnin. Það
ætti þó að vera
nokkuð hættulaust
að nota efnin einu
sinni á ári.
Asó-litarefnin má
sjá hér að neðan
Efnin sem skylt er að merkja með
varúðarmerkingu eru feitletruð.
• Tartrasín (E102)
• Kínólíngult (E 104)
• Sólsetursgult (E110)
• Ponceau 4R (E124)
• Allúrarautt (E129)
• Asórúbín (E122)
• Amarant (E123)*
• Rautt 2G (E128)*
• Briljant svart PN (E151)
• Brúnt FK (E154)
• Brúnt HT (E155)
• Litólrúbín BK (E180)*
*einungis leyfilegt í takmörkuðum
mæli í fáum tegundum matvæla.
Rauður matarlit-
ur er talinn hafa
neikvæð áhrif á
hegðun barna.
Nú er skylt að
merkja vörur
sem innihalda
efnin með
varúðarorðum.
„Það er líka mjög fallegt
að skreyta með hvítu.“