Fréttatíminn


Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 100

Fréttatíminn - 07.12.2012, Síða 100
Þ essi tegund af vinnustofu hefur alltaf verið til við skólann og hér höfum við verið að fást við módernismann og þá helst Chekhov eða Gorkí,“ segir Egill Heiðar. „Á þessu ári ákváðum við bara að fara til Norðurlanda og prufa Strindberg. Þennan geðveika snilling sem er svo mikil ráðgáta.“ Vinnustofan er einnig nemendaleik- hús og þegar vinnu Egils Heiðars og útskriftarnemanna lýkur stendur til að sýna samsuðu tveggja verka Strind- bergs, Fröken Júlíu og Leikið að eldi. „Það er svo gaman þegar maður er með ungt fólk, sem er að læra þetta, að kynna þau fyrir þessum mönnum sem mótuðu þá tegund af leikhúsi sem við búum við í dag. Og fara inn í þennan heim Strind- bergs sem er svo magnaður.“ Fröken Júlía er eitt þekktasta verk Strinbergs. Það gerist á Jónsmessunótt og endar með skelfingu eftir að greifa- dóttirinn Júlía táldregur vinnumann- inn Jean. Egill Heiðar segir hitt verkið, Leikið að eldi, oft talið til kómedíu en sjálfur hafi Strindberg lýst því sem tragikómedíu. Leikurinn gerst á einum morgni sem endar með ósköpum þegar spennan milli hjónanna Knúts og Krist- ínar og Axels, sem er gestur á heimili þeirra, nær hámarki. „Þetta eru svo miklir umbrotatímar í Evrópu og það blása svo miklir frelsis- vindar um alla álfuna. Alls konar hug- myndir um frelsi; stéttafrelsi, kvenfrelsi og persónufrelsi og frelsi til sjálfssköp- unar. Strinberg verður mjög fljótt gagn- rýninn á þetta nýfengna frelsi. Ekki það að hann vilji það ekki en hann bendir á að þegar allir eigi að hafa algert pers- ónufrelsi hljóti að verða árekstrar. Hann er að benda samtímanum á komandi vandamál.“ Egill Heiðar segir útskriftarárganginn feikilega sterkan og áhugi krakkanna sé brennandi. „Það er líka svo skemmtilegt að leiða þetta unga fólk inn í það djöful- lega helvíti sem mannleg samskipti eru í verkum Strindbergs.“ Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  LeikList sterkur útskriftarárgangur Ungt fólk í samskiptavíti Strindbergs Egill Heiðar Anton Pálsson leiðir um þessar mundir útskriftarnema í leiklist við LHÍ í gegnum þær hremmingar sem sænska leikskáld- ið August Strindberg setti pers- ónur sínar í þegar bylgja frelsis og kvenréttinda fór um Evrópu. Egill Heiðar segir það tilviljun að ákveðið hafi verið að takast á við „þennan geðveika snilling“ núna, þegar 100 ár eru liðin frá því að hann lést. Persónur og leikendur Elma Stefanía - Kristín „Hún er komin með ógeð á jarðarberjum og rjóma.“ Þorleifur - Knútur „Lítill kall í stórum jakkafötum.“ Þór - Jean „Hann þjáist ef minnimáttarkennd.“ Salóme - Júlía „Greifadóttir sem er alin upp sem strákur vegna þess að mamma hennar vildi sanna að kynin væru jöfn. “ Thelma - Kristín „Hún er rotin yfirstétt- arfrú sem leitar að fyll- ingu í hjartatómið.“ Arnar Dan - Axel „Ástfanginn maður sem gerir sér þó grein fyrir því að hatrið er ekki langt undan.“ Arnmundur - Jean „Honum leiðist fólk sem á hunda vegna þess að það kann ekki að bíta frá sér sjálft.“ Hafdís Helga - Júlía „Af hverju vill enginn leika við hana?“ Hildur Berglind - Júlía „Hún er klikkuð.“ Oddur - Jean „Útblásinn lítill kall. Skemmtilegar þversagnir í því.“ Danskur prestur í Norræna húsinu Á sunnudag klukkan 20 í Norræna húsinu mun danski presturinn, rithöf- undurinn og fyrirlesarinn Johannes Møllehave flytja Íslendingum pistilinn „At være eller ikke være“ sem er þá bein tilvitnun í Hamlet Shakespeare. Johannes hefur lengi verið prestur í veldi Dana en er fyrst og síðast þekktur fyrir fyrirlestra sína sem spanna hin margvíslegustu efni, svo sem gleði og sorg, og fjölda skálda, rithöfunda og heimspekinga, þ.m.t. Shakespeare, Søren Kirkegård, Grundtvig, H.C. Andersen og Storm P. Með Jóhannesi í Norræna húsinu verður enginn annar en Eysteinn Pétursson, vísna- söngvari og gítarleikari, en hann hóf þá iðkun samhliða námi í eðlisfræði í Kaup- mannahöfn á 7. áratug síðustu aldar. Þetta dútl hans hefur þó ekki farið hátt, uns hann lét tilleiðast að gefa út plötu í lok síðasta árs. Plötunni hefur verið vel tekið af áhuga- mönnum tónlistar og gagnrýnendum, og hefur Eysteinn komið fram nokkrum sinnum á árinu, nú síðast á Restaurant Reykjavík á Airwaves hátíðinni („off venue“). Dagskráin hefst sem fyrr segir klukkan 20 í Norræna húsinu á sunnudag og er á vegum Dansk-íslenska félagsins. Danskri prestur- inn Johannes Møllehave er einn vinsælasti fyrirlesari Danmerkur. Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Uppboð á listaverkasafni Gallerí Fold 1992–2012 sunnudaginn 9. desember kl. 16 og mánudaginn 10. desember kl. 18 Sérstakt uppboð á listaverkum úr búi Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis verður haldið í Gallerí Fold. Verkin verða sýnd föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–15 og mánudag 10–17. Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Silfur- og speglauppboð 1. – 12. desember Myndlistaruppboð 8. – 17. desember G unnlaugur Blöndal 94 menning Helgin 7.-9. desember 2012
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.