Fréttatíminn


Fréttatíminn - 25.10.2013, Síða 4

Fréttatíminn - 25.10.2013, Síða 4
LÉTT OG LAKTÓSAFRÍ SÚRMJÓLK H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Hurðaskellir og Stúfur undirbúa jólin veður Föstudagur laugardagur sunnudagur N-átt og él verða Na-laNdS, eN léttSkýjað Syðra. HöfuðborgarSvæðið: Léttskýjað og N kuL. Hiti að degiNum, eN Næturfrost. ÚrkomulauSt að Heita má um meSt allt laNd og víða StjörNubjart. HöfuðborgarSvæðið: Bjartviðri og stiLLa eða a goLa. geNgur í allHvaSSa N-átt með SNjómuggu eða éljum NorðaNlaNdS. HöfuðborgarSvæðið: strekkiNgsviNdur af N og þurrt. aðgerðarlítið, en N-átt á sunnudag það er ekki víst að allir átti sig á hvað tíðin hefur verið sérstök að undanförnu. október er einn úrkomusamasti mánuður ársins, en nú stefnir í það að rigningar- leysi suðvestanlands reykjavík slái öll met og áfram verður þurrt um helgina. Bjart um mest allt land á morgun laugardag og sums staðar smá strekk- ingur. snýst í allhvassa N-átt á sunnudag og þá má gera ráð fyrir snjókomu eða éljum á Norðurlandi og vestfjörðum. 3 1 0 1 4 1 0 -1 -2 2 1 -1 0 -1 2 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is þótt tveir mánuðir séu til jóla eru Hurðaskellir og stúfur farnir að undir- búa komu sína í bæinn. færri alvarleg hraðakstursbrot alvarleg hraðakstursbrot eru færri í ár en í fyrra. þetta má lesa úr bráðabirgðatölum um hraðakstur frá ríkislögreglustjóra. Árið 2012 voru alvarleg hraðakstursbrot, sem geta varðað sviptingu ökuréttinda, 296 talsins en á þessu ári er fjöldi brota kominn upp í 224. Hraðakstur getur leitt til sviptingar ökuréttinda ökumanns ef hann hefur orðið sekur um mjög vítaverðan akstur ökutækis. flest brot sem varða sviptingu eiga sér stað á þjóðvegum lands- ins þar sem hámarkshraðinn er víðast hvar 90 kílómetrar á klukkustund. ef ökumaður ekur á 141 kílómetra hraða eða meira er hann sviptur ökuréttindum. flest slík brot áttu sér stað í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar á eftir lög- reglunnar á suðurnesjum, svo Hvolsvelli, snæfellsnesi, selfossi og akureyri. „You are in Control“ í sjötta sinn alþjóðlega ráðstefnan „You are in Control“ verður haldin í reykjavík í sjötta sinn dagana 28.-30 október í Bíó Paradís. Breiður hópur fagfólks heldur fyrirlestra og vinnusmiðjur um hönnun, tónlist, bók- menntir, tölvutækni, kvikmyndagerð og myndlist. einn lykilfyrirlesara ráðstefnunn- ar er oliver Luckett sem rekur fyrirtækið „the audience“ og stýrir efni á samfélags- miðlum fyrir rúmlega 300 einstaklinga og fyrirtæki. dæmi um fyrirlesara eru teemu suviala, grafískur hönnuður og stofnandi eins fremsta hönnunarfyrirtækis í finnlandi, kokoromoi, timo santala, sem skipuleggur fjölbreytta viðburði sem hafa það að markmiði að lífvæða og hressa almenningsrými í Helsinki. Íslensku fyrir- lesararnir á ráðstefnunni eru kristín maría hönnuður sem hefur verið að ryðja sér til rúms í matar- og upplifunarhönnun og ingi rafn sigurðsson, stofnandi karolina fund, sem er fyrsta og eina hópfjár- mögnunarsíðan sem stofnuð hefur verið hér á landi. Nánari upplýsingar má finna á youareincontrol.is. konur meirihluti stjórnar- manna sa í lífeyrissjóðum samtök atvinnulífsins hafa á undanförnum misserum unnið markvisst að því að jafna kynjahlutföll fulltrúa sa í stjórnum lífeyris- sjóða. af 27 aðalmönnum sem sa skipa í stjórnir níu sjóða eru nú 15 konur en 12 karlar. að loknum aðalfundum sjóðanna vorið 2012 skipuðu konur 46% sæta sem sa skipuðu í en nú er hlutfallið orðið 56% eftir að nýir stjórnarmenn voru skipaðir, að því er fram kemur á síðu sa. verkalýðs- hreyfingin tilnefnir einnig 27 aðalmenn í stjórnir sjóðanna. þann 1. september síðastliðinn tóku gildi lög sem kveða á um að hlutfall hvors kyns verði aldrei lægra en 40% í stjórnum lífeyrissjóða. - jh jólin nálgast óð- fluga og jólasvein- arnir Hurðaskellir og stúfur eru að undirbúa komu sína í bæinn til að gleðja alla með söng, gríni og gleði. þeir bræður eru með harmonikkuna sína með sér og syngja og tralla fyrir þá sem vilja fá þá í heimsókn. þó að þeir séu að verða 700 ára gamlir láta þeir ekki deigan síga og hlakka mikið til jólanna, eins og allir landsmenn. það er magnús Ólafs- son leikari sem mun taka á móti þeim og leiðbeina þeim við komuna í bæinn – en stúfur ku tengjast hinum góðkunna útvarpsmanni þor- geiri Ástvaldssyni fjölskylduböndum. F ramkvæmdir eru hafnar við gerð gjaldskyldra bílastæða í Guðrún-artúni, áður Sætúni, í Reykjavík. Á næstu vikum og mánuðum fjölgar gjald- skyldum stæðum á svæðinu um ríflega 200 vegna óska frá bæði íbúum og fyrir- tækjum á svæðinu. Er þar ýmist um að ræða gjaldsvæði 2 eða 3 eins og sést á meðfylgjandi korti. Ódýrast er að leggja í stæði á gjaldsvæði 3 þegar til lengri tíma er litið. „Ástæðan er mikil þörf fyrir bílastæði á þessu svæði og mesta þörfin er fyrir við- skiptavini sem eiga þarna leið um og fá ekki stæði. Þarna hefur atvinnustarfsemi aukist mikið, starfsmönnum fjölgar en bílastæðum fækkar,“ segir Kolbrún Jónat- ansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæða- sjóðs Reykjavíkur. Tilgangurinn er einnig að skapa aukið svigrúm fyrir bíla íbúa á svæðinu. Íbúar með lögheimili við götu þar sem bílastæði eru gjaldskyld eiga þess kost að fá bílastæðakort íbúa. Þau heimila ótakmörkuð not af bílastæðum fyrir einn bíl innan viðkomandi íbúasvæð- is fyrir 6 þúsund krónur á ári. Kaffitár á Höfðatorgi við Borgartún er eitt þeirra fyrirtækja sem stendur við götu þar sem bílastæði verða brátt gjald- skyld. „Þetta kemur sér ekki illa fyrir starfsfólk okkar sem flest notar Strætó,“ segir Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs, en kaffihúsið er í göngufjar- lægð frá Hlemmi. „Hins vegar óttast ég að stæðin eigi ekki eftir að nýtast sem skyldi ef margir eru með bílastæðakort og eru í stæðinu allan daginn. Það er þó mjög erfitt fyrir að fá stæði hér. Hugmynda- fræðin á bak við þetta er fín. Við þurfum að þétta byggð og nýta meira almennings- samgöngur. Það kemur svo í bara í ljós hvernig þetta gengur,“ segir hún. Að sögn Kolbrúnar hafa forsvarsmenn Höfðatorgs óskað eftir gjaldskyldu fyrir utan bygginguna, en þegar er gjaldskylda á hluta af einkareknum bílastæðakjall- ara undir Höfðatorgi. Reykjavíkurborg er meðal þeirra sem eru með skrifstofur í byggingunni og verður gjaldskylda 2 í stæðin þar fyrir utan. „Reykjavíkurborg tekur á móti fjölda íbúa á degi hverjum en stæðin eru yfirleitt full frá klukkan 8 á morgnana til 4 síðdegis. Verslanir þarna hafa einnig átt erfitt uppdráttar því við- skiptavinir fundu ekki bílastæði,“ segir Kolbrún. Ekki er ljóst hvenær umrætt svæði verður að fullu gjaldskylt en gjald- skyldan verður smátt og smátt tekin þar upp á næstu vikum og mánuðum. erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Stæðin eru yfir- leitt full frá klukkan 8 á morgn- ana til 4 síðdegis.  samgöngumál gjaldskylda viðbrögð við bílastæðavanda Yfir 200 bílastæði gerð gjaldskyld gjaldskylda verður tekin upp í áföngum á næstu vikum og mánuðum í nágrenni Höfðatorgs. um er að ræða ríflega 200 bílastæði sem ýmist verða felld undir gjaldskyldu 2 eða 3. Fjöldi fyrir- tækja er á svæðinu og mikill bílastæðavandi hefur verið þar um hríð. gjaldtökunni er ætlað að koma bæði til móts við íbúa og fyrirtæki. gjaldskrá Ra uð ar ár st íg ur Borgartún Gu ðrú nar tún (Sæ tún ) Þ ór un na rtú n (S kú la tú n) Bríetartún (Skúlagata) Gjaldsvæði 1: 225 kr. klst. miði keyptur á gjaldsvæði 1 gildir á gjaldsvæði 1, 2, 3 og 4. Gjaldsvæði 2: 120 kr. klst. miði keyptur á gjaldsvæði 2 gildir á gjaldsvæði 2, 3 og 4. Gjaldsvæði 3: 80 kr. fyrsta og önnur klst. og 20 kr. hver klst. eftir það. miði keyptur á gjaldsvæði 3 gildir eingöngu á gjaldsvæði 3. mánaðarlegur kostnaður við notkun bílastæðis á gjalds- væði 3 er áætlaður um 4000 krónur á mánuði, allt eftir því hve langan tíma notandinn kaupir í einu. Á gjaldsvæði 3 er dýrast að kaupa einn og einn dag í einu, en ódýrast að kaupa til dæmis 2-3 vikur í senn. Gjaldsvæði 4: 120 kr. klst. miði keypur á gjaldsvæði 4 gildir eingöngu á gjaldsvæði 4 Heimild: Bílastæðasjóður.isÁ bláa svæðinu verður tekin upp gjaldskylda 2 en gjaldskylda 3 á því græna. Bílastæði við guðrúnartún sem áður voru gjaldfrjáls tilheyra brátt gjaldsvæði 3. framkvæmdir við bílastæðin eru þegar hafnar. Lj ós m yn d/ H ar i 4 fréttir Helgin 25.-27. október 2013

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.