Fréttatíminn - 25.10.2013, Side 48
fyrirtækjagjafir Helgin 11.-13. október 201348
GJAFAKORT
Gjafakort Kringlunnar er gjöf af öllu hjarta.
Þú færð kortið á þjónustuborðinu á 1. hæð
við Hagkaup eða á gjafakort.kringlan.is
M S hefur ávallt lagt áherslu á að bjóða upp á sem besta þjónustu í kringum jóla-
körfurnar. Einn þátturinn í því er að
bjóða upp á þá þjónustu að sérvelja í
körfurnar. Starfsfólk söludeildar MS
aðstoðar kaupendur við að sérvelja í
körfuna og reikna út verðið. Margir
velja sér eina af þessum stöðluðu
körfum sem hægt er að velja um og
þá með óskir um að breyta örlítið,
taka einn ost úr og bæta öðrum í og
slíkt.
Hvaða ostar eru vinsælastir í
körfurnar hjá ykkur fyrir jólin?
„Það er alltaf vinsælt að hafa jólaost-
ana í körfunum sem framleiddir eru
fyrir jólin á ári hverju en það eru jóla-
yrja, jólabrie og Hátíðarostur. Einnig
vilja margir hafa þessa klassísku eins
og Camembert, Gullost, Stóra-Dímon
og Höfðingja. Nýjustu ostarnir í flór-
unni Ljótur og Dala Auður hafa selst
gríðarlega vel það sem af er ári og má
því gera ráð fyrir að margir vilji hafa
þá með í körfunum,“ segir Aðalsteinn
Magnússon, sölustjóri hjá MS.
Upplýsingar um verð og innihald
Allar upplýsingar um stærð, verð og
innihald karfanna má finna á vefsíðu
Mjólkursamsölunnar, ms.is. „Stærð
og verð karfanna miðast við það að
bjóða upp á allt frá ódýrum körfum
og upp í aðeins veglegri og dýrari
körfur fyrir þá sem það kjósa. Hægt
Áhersla á góða þjónustu
er að velja um sex stærðir af körfum
og svo einn kassa sem hentar vel vilji
viðkomandi senda gjöfina út á land.
Stærð og verð karfanna miðast við að
bjóða upp á sex verðflokka þannig að
allir ættu að geta fundið körfu við sitt
hæfi, sem dæmi kostar ódýrasta karf-
an í ár í kringum 3000 krónur sem er
afar hagstætt verð,“ segir Aðalsteinn.
Einfalt fljótlegt og þægi-
legt
Viðskiptavinir geta
pantað ostakörfurnar
í gegnum netið á
www.ms.is sem
er afar einfalt og
fljótlegt, í boði er
að setja inn texta
fyrir kort sem á að
fylgja með körfunni.
„Þessi valmöguleiki
hefur verið í boði síð-
ustu þrjú árin og tökum
við eftir að Íslendingar
búsettir erlendis hafa
mikið verið að nýta sér það
að panta körfuna í gegnum
netið til að senda á ættingja sem
búsettir eru hér á landi,“ segir Aðal-
steinn.
KYNNING