Fréttatíminn


Fréttatíminn - 01.03.2013, Side 46

Fréttatíminn - 01.03.2013, Side 46
Helgin 1.-3. mars 2013 KRINGLUNNI 2. HÆÐ - HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI | SPÖNGINNI, GRAFARVOGI SÍMI 5 700 900 | WWW.PROOPTIK.IS PROOPTIK afmæli 25 ára 20 ÞÚSUND króna umgjörð á 199 krónur! - Ef þú kaupir glerið hjá okkur Allar aðrar umgjarðir á 50% afslætti inndu okkur á acebook facebook.com/frettatiminn „Það er mikilvægur fundur um miðjan dag og þú getur með engu móti haldið augunum opn- um, svefninn sækir á. En um dimmar nætur liggur þú andvaka í rúminu, starir á vekjara- klukkuna – það stirnir á sjálflýsandi tölustafina og þú nærð ekki að þagga niður í þungmeltum hugrenningum. Hverju sem um er að kenna – álagi á vinnustað eða háværum hrotum ástvinar – hafa allir upplifað þá raun að fá ekki nægan svefn,“ segir í nýútkominni bók, Sofum betur frá Sölku forlagi í þýðingu Sigurðar Hróarssonar. Dæmið er eitt fjöldamargra sem farið er yfir til þess að aðstoða fólk við að festa heilnæman svefn. Uppsetning bókarinnar er samtal milli höfundar og lesanda. Fjöldamörgum spurning- um sem vakna kynnu við lesturinn er þannig svarað jafnóðum. Í bókinni eru kynntar hugmyndir og ráð við hinum ýmsu kvillum auk þess sem farið er yfir helstu orsakir svefnleysis á einfaldan og fræðandi máta. Í bókinni sér kafli um kynlíf og hvernig það að stunda kynlíf getur stuðlað að betri svefni. „Við kynferðislega fullnægingu losar lík- aminn fimmfalt meira magn en venjulega af kyrrðar–hormóninu oxýtósín sem róar okkur niður fyrir svefninn. Samfarablossi hleypir líka af stokkunum endorfínbylgju sem lyftir and- anum.“ Því er haldið fram að fólk sem stundar reglu- legt kynlíf með maka sé áhyggjulausara og létt- ara í lund. Það leiðir síðan að heilbrigðari nætur- svefni þar sem andvökur geta fylgt áhyggjum og depurð. „Ef höfuðverkur veldur þér andvökum gætu kynmök verið heilsubótin,“ segir jafnframt í kynlífskafla bókarinnar. Höfundur bókarinnar lofar því að fari lesandi eftir öllum þeim ráðum sem gefin eru, muni viðkomandi hreinlega springa úr lífskrafti, vera hraustari, hressari og betri í alla staði.  Heilsa Út er komin bókin sofum betur Kynlíf sem svefnlyf Bókin Sofum betur er nú komin út en hún er saman- safn 52 hugmynda sem hjálpa lesanda að bæta svefn og svefnvenjur til þess að öðlast meiri orku svo auð- veldara sé að fást við dagsverkin, hvort sem þau eru inni heimilinu eða utan þess. Til eru margar ástæður fyrir því að fólk þjáist af svefnleysi og leiðir til heil- næmari nætursvefns fjölmargar, meðal annars kynlíf. Bókin Sofum betur er fræðandi og ku vera gagnleg þeim sem þjást vegna svefnleysis og óheilbrigðra svefnhátta. 46 heilsa

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.