Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.01.2012, Side 4

Fréttatíminn - 27.01.2012, Side 4
Skýrari svör, takk Borgarfulltrúar Vinstri grænna og Sjálf- stæðisflokksins eru ósáttir við skýringar meirihlutans sem segir að lóðastækkun við Perluna um átta þúsund fermetra tengist ekki sölu Orkuveitu Reykjavíkur á henni. Rekja megi stækkunina allt aftur til síðla árs 2006 þegar deiliskipulaginu var breytt og vegur að bílastæði austur að götunni Varmahlíð verið skilgreindur innan lóðarmarka. Breytingin hafi verið auglýst í Stjórnartíðindum en lóðaleigusamningi hafi ekki verið breytt. Borgarfulltrúarnir vilja skýrari svör þar sem eignaskipta- yfirlýsing hafi tekið til fasteignarinnar og aðskilnaðar tanka frá öðrum hlutum fasteignarinnar, svo sem veitingastaðar, en ekki lóðarinnar. - gag Sundlaug í Fossvogsdal Það hillir undir sundlaug í Fossvogs- dal. Drög að yfirlýsingu um samvinnu Kópavogs og Reykjavíkurborgar var lögð fyrir síðasta borgarráðsfund þar sem fram kom að bæjarfélögin séu tilbúin að skoða hugmyndina raski hún ekki gildi Fossvogsdals sem útivistarsvæðis og sem náttúruperlu; þau ætla bæði að gera ráð fyrir henni í deiliskipulagi. „Sundlaugin yrði byggð í samvinnu Reykjavíkurborgar og Kópavogsbæjar. Ekki er gert ráð fyrir fjármögnun á byggingu laugarinnar í fyrir- liggjandi áætlunum og hefur hún ekki verið tímasett,“ segir í fundargerð. - gag Vodafone með hæsta og lægsta verðið 7% MunuR á hæSta Og lægSta VERði Þjónusta við þá sem nota GSM mikið Póst- og fjarskiptastofnun Einungis sjö prósenta munur er á hæsta og lægsta verði sím- fyrirtækja fyrir þá sem nota gsm-síma mikið. Vodafone er bæði ódýrast og dýrast og fer það eftir þjónustuleiðum fyrir þann sem hringir 235 símtöl, talar í 367 mínútur, sendir 52 sms og eitt mms; 990 króna risafrelsi Vodafone kostar 6.864 en fyrir 2.990 króna risafrelsið eru 7.354 krónur greiddar. Þetta má lesa út úr reiknivél Pósts- og fjarskiptastofnunar á vefsíðu fyrirtækisins pfs.is. Verðmunurinn er mun meiri fyrir þá sem nota gsm-sím- ann sinn lítið. Sá sem hringir átján símtöl, talar í tuttugu mínútur, sendir fimmtán sms og eitt mms er best settur í frelsi nova og greiðir 588 krónur. hann er hins vegar verst settur í frelsi Vodafone og greiðir þar 773 krónur fyrir sömu notkun. Munurinn er um þrjátíu prósent. Forsendur útreikninganna eru gefnar upp á vef stofnunarinnar sem notast við aðferðafræði evrópska rannsóknarfyrirtækisins teligen. - gag Michelsen_255x50_B_0511.indd 1 05.05.11 14:25 Inniheldurplöntustanólester sem lækkar kólesteról MEÐ PLÖNTUSTANÓLESTER Í NÆRINGU EIN AF 10 STÆ RSTU UPPGÖTVUNUM Kólesteról er áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma 2 fylgja fríttmeð ms.is/benecol veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Veðurvaktin ehf Ráðgjafafyrirtæki í eigu Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Veður- vaktin býður upp á veður- þjónustu fyrir einstaklinga, fyrirtæki og opinbera aðila í ráðgjöf og úrvinnslu flestu því sem viðkemur veðri og veðurfari. Veðurvaktin ehf Eikarási 8, 210 Garðabæ Sími: 857 1799 www.vedurvaktin.is Skil fara yfir landið með hVaSSViðri og Snjókomu, en Síðar Slyddu og rigningu Sunnan- og SuðVeStanlandS. höfuðborgarSVæðið: SnóKOMa uM tíMa FyRiR háDEgi, En Síðan hlánaR MEð SlyDDu Og Rigningu. leySing um land allt, úrkomulítið framan af degi, en Síðan Vaxandi rigning. höfuðborgarSVæðið: lítilSháttaR Rigning uM MORguninn, En Slag- VEðuRSRigning unDiR KVölD. hægari S-átt og hlýtt framan af degi og rigning, en kólnar með éljum VeStantil um miðjan dag. höfuðborgarSVæðið: KólnaR MiKið uM lEið Og SnýSt til SV-áttaR MEð éljuM uM Og FyRiR háDEgi. Skarpur bloti um helgina Enn verða hálfgerð læti og miklar sviptingar í veðrinu um helgina. Skil fara hratt norðaustur yfir landið í dag með hvassviðri og hríðarveðri, en sunnan- og suðvestanlands hlýnar strax í kvöld. annars hlýnar ákveðið í nótt og fyrramálið um land allt. Má gera ráð fyrir að það hláni upp á hæstu fjallvegi. talsverð mikil rigning sunnanlands- og vestan seint á laugardag og aðfararnótt sunnudags. Klárlega asahláka, en hún varir ekki lengi því þá kólnar aftur um miðjan sunnudaginn og él á nýjan leik um landið vestanvert. 0 -1 -2 -4 2 5 5 4 4 6 1 0 3 5 2 einar Sveinbjörnsson vedurvaktin@vedurvaktin.is Þ egar Ásta Dís Óladóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar af Hlyni Sig- urðarsyni ákvað kjararáð að lækka launin um 85.986 krónur á mán- uði. Hún sendi beiðni um úrskurð til kærunefndar jafnréttismála sem óskaði eftir skýringum ráðs- ins. Daginn sem þær áttu að ber- ast ákvað kjararáð að greiða henni sömu laun og Hlynur hafði fengið og endurgreiða Ástu mismuninn aftur í tímann. „Í ráðningarferlinu var mér sagt að ákvörðun launa væri í höndum kjararáðs. Ég væri hins vegar með meiri menntun en forveri minn í starfi og myndi því væntanlega frek- ar hækka en lækka í launum miðað við hans. Ég sá hvað kjararáð hafði úrskurðað honum og ákvað því að taka starfinu. Þá lækkaði kjararáð heildarlaunin,“ segir hún og sér enga skýringu á því. „Ég, ásamt fleiri konum í minni stöðu höfum velt því fyrir okkur þegar við skoð- um úrskurði kjararáðs hvers vegna konur fá nær undantekningalaust færri yfirvinnutíma en karlmenn.“ Hún harmar að kærunefndin hafi látið málið niður falla í stað þess að úrskurða um hvort jafnréttislög hafi verið brotin. „Þeir hefðu mátt taka afstöðu, ekki vísa málinu frá.“ Magnús Guðmundsson, formaður Félags forstöðumanna ríkisstofn- ana, segir félagið hafa áhyggjur af stöðu kvenna innan félagsins. „Við höfum rætt þetta en okkur vantar tölfræðina. Það er erfitt að átta sig á því hvers vegna þær eru launalægri. Það vantar alla mælikvarða til þess. Þegar matið er handahófskennt er hætta á ógegnsæju keri sem við vilj- um sporna gegn.“ Þegar kjararáð úrskurðaði um laun Hlyns fékk hann 25 einingar, sem greiddar eru fyrir yfirvinnu. Rökin voru þau að gæta yrði meðal- hófssjónarmiða til þess að laun hans lækkuðu ekki óhóflega frá því sem var áður en starfið var fært undir kjararáð árið 2010. Samkvæmt skoðun Fréttatímans eru dæmi um að laun annarra forstöðumanna, af þeim fjörutíu sem færðir voru und- ir ráðið, hafi lækkað hlutfallslega meira en hans. Með útreikningum má sjá að grunnlaun kvenna sem stýra fyrir- tækjum og stofnunum í meirihluta- eigu ríksins eru að meðaltali með 654.092 fyrir dagvinnu en 698.355 hjá körlum. Meðalheildarlaun kvenna séu svo 731.936 en karla 878.083 krónur. Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðs- maður skuldara, segir mál nöfnu sinnar umhugsunarefni, „stór- merkilegt og með ólíkindum.“ Sjálf hafi hún beðið kjararáð að úrskurða aftur um laun fyrir starf sitt. „Ég vinn gífurlega yfirvinnu, um 40 til fimmtíu tíma á mánuði. Þetta emb- ætti er mjög ábyrgðarmikið. Ég er með 80 manns í vinnu og risavaxið verkefni,“ segir hún. Dagvinnulaun hennar voru ákveðin 638.033 og tíu einingar í yfirvinnu. Samtals: 688.613. Ástráður Haraldsson, hæstarétt- arlögmaður, skoðar launamál svip- að máli kvennanna vegna úrskurða kjararáðs. Hann vildi ekki þó ekki tjá sig. „Það er á viðkvæmu stigi.“ Fríhöfnin sem Ásta Dís stýrir er dótturfyrirtæki Isavia, rétt eins og Tern Systm. Kjararáð ákvað að framkvæmdastjóri Tern fengi 638.033 á mánuði auk 30 eininga, sem eru sömu dagvinnulaun og Ástu en fimmtíu þúsund krónum hærri föst yfirvinnulaun. Fríhöfnin er þó margfalt stærra fyrirtæki en Tern System, bæði hvað varða veltu og starfsmannafjölda. Ekki náðist í formann kjararáðs. gunnhildur arna gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is Vandséð að karlinn hafi átt að fá meira en konan Vandséð er hvers vegna nýi framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar fékk svo miklu færri einingar til viðbótar grunnlaun- unum en fyrri fram- kvæmdastjóri hafði. Þetta er mat ingibjargar Elíasdóttur, lögmanns jafnréttisstofu, eftir að hafa kynnt sér þær upp- lýsingar sem koma fram í úrskurði kjararáðs. „Einnig er hægt að gera athugasemd við það af hverju menntun var lítið eða jafnvel ekki metin, en menntun er almennt eitt af þeim atriðum sem máli skipta við ákvörðun launa,“ segir hún. „jafnréttislögin eru skýr hvað það varðar að greiða á konum og körlum hjá sama atvinnurekanda jöfn laun og þau skulu njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. hvers vegna fyrri úrskurður kjararáðs, það er um laun fyrri framkvæmdastjórans, gilti aðeins um hann er einnig ekki ljóst.“ - gag  laun MisræMi á úrskurðuM kjararáðs á launuM eFtir kyni Kjararáð vanmat konu Kjararáð ákvað að laun konu sem tók við starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar ættu að vera 85 þúsund krónum lægri en karlsins sem sinnti því áður. Þegar hún kærði til kærunefndar um jafnréttismál hækkaði kjararáð launin og endurgreiddi mismuninn. ásta Dís óladóttir var meðal 150 umsækjenda um starf framkvæmdastjóra Fríhafn- arinnar. hún hefði viljað sjá Kærunefnd jafnréttismála taka afstöðu til launanna. 4 fréttir helgin 27.-29. janúar 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.