Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.01.2012, Blaðsíða 29

Fréttatíminn - 27.01.2012, Blaðsíða 29
Helgin 27.-29. janúar 2012 vetrarfjör 5 B rynjar Jökull Guðmundsson er án efa einn af sterkustu skíðamönnum landsins. Hann hefur æft skíðaíþróttina síðan hann var 9 ára, var í unglinga- landsliði SKÍ frá 17-19 ára og hefur undanfarin ár verið að skipa sér sess meðal þeirra bestu. Í janúar 2010 vann hann sitt fyrsta bikar- mót á Akureyri og sama ár var hann valinn í karlalandslið Íslands í alpagreinum. Brynjar Jökull fékk einnig viðurkenningu frá Reykja- víkurborg og ÍBR fyrir árangur á skíðum 2010 og var valinn íþrótta- maður ársins hjá Víkingi, en það er í fyrsta sinn sem skíðaíþróttamaður fær þann titil í sögu Víkings. „Þegar ég var yngri var ég ekk- ert sérstakur skíðamaður en ég hélt alltaf áfram því að ég hafði svo gaman af þessu,“ segir Brynjar Jökull. „Þegar ég varð 15 þurfti ég að ákveða mig hvort ég ætlaði að leggja þetta fyrir mig eða hætta því að þetta er ekki ódýrt sport. Ég ákvað að halda áfram og fór úr því að vera einn af þeim slökustu í að vera einn af þeim bestu. Þetta gerði ég með þrotlausum æfingum. Þegar hinir æfðu í einn klukkutíma þá æfði ég í tvo og það skilaði árangri. Þetta er æðislegt sport og lang besta fjölskyldu- sportið. Það er svo mikið félags- starf á bak við skíðaíþróttina og foreldrarnir eru alltaf með krökk- unum uppi í fjalli. Maður kynnist líka fullt af fólki og fær að ferðast mikið. Hér á landi er mjög þéttur hópur sem er að æfa.“ Brynjar Jökull hefur æft og keppt mikið erlendis að undan- förnu og þá helst í Svíþjóð þar sem honum bauðst að æfa með háskóla í Östersund. Skólinn er einn besti skíðaháskólinn í Skandinavíu, að sögn Brynjars Jökuls, og hefur honum boðist námsdvöl þar eftir að hann lýkur stúdentsprófi frá Fjöl- braut í Ármúla. Framundan eru viðburðarík ár hjá Brynjari Jökli því hann stefnir bæði á Heimsmeistaramótið í Austurríki og á Ólympíuleikana í Rússlandi árið 2014. Stefnir á toppinn Brynjar Jökull Guðmundsson, landsliðsmaður í alpagreinum FLUGFELAG.IS ÍS LE N SK A /S IA .IS /F LU 5 31 16 1 2/ 11 SKEMMTUM OKKUR INNANLANDS Með rjóðar kinnar og rjúkandi kakó bíða þín fannhvítar hæðir og fjöll. Taktu flugið í næstu skíðabrekku og lyftu þér upp milli þess sem þú rennir þér niður. Hringdu í 570 3030 og skelltu þér á skíði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.