Fréttatíminn - 27.01.2012, Qupperneq 35
viðhorf 27Helgin 27.-29. janúar 2012
Ömurlegt að
heyra af ört fall-
andi fólki á götum
borgarinnar. Öm-
urlegt að lesa um
heimsóknir í tuga
tali á slysadeild
Landspítalans til
að gipsa og spelka
brotna fótleggi og
handleggi. Fróð-
legt væri að vita
hversu margir falla
án þess að brotna,
hversu margir
meiða sig við fallið
en brotna ekki,
hversu margir falla
en meiða sig alls
ekki neitt.
Bættu LGG + við daglegan morgunverð
fjölskyldunnar og styrktu ónæmiskerfið.
Nú fylgja 2 frítt með
Þú getur lesið meira um LGG+ á
ms.is/lgg
+ stuðlar að vellíðan
+ styrkir varnir líkamans
+ bætir meltinguna og
kemur jafnvægi á hana
+ eykur mótstöðuafl
+ hentar fólki á öllum aldri
+ er bragðgóð næring
Fyrir fulla virkni
Ein á dag
Eiginleikar LGG+
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/S
ÍA
-
1
2-
00
14
Ólympíufjölskyldan
Samstarfsaðilar
Lífshlaupið Þín heilsa – þín skemmtun
• Vinnustaðakeppni
• Hvatningarleikur í skólum
• Einstaklingskeppni
Skráðu þig
Landskeppni
í hreyfingu
5ÁRA
LÍFSHLAUPIÐ
Skráning og nánari upplýsingar á:
www.lifshlaupid.is
Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ fyrir alla aldurshópa.
Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum
embættis landlæknis um hreyfingu og gera hreyfingu að föstum lið í
lífsstíl sínum, hvort sem er í frítímanum, við heimilisstörfin, í vinnunni,
skólanum eða við val á ferðamáta. Vinnustaðir, skólar og einstaklingar eru
hvattir til að taka þátt og nota tækifærið til að efla líkama og sál með því
að hreyfa sig daglega.
Lífshlaupið
byrjar 1. febrúar!
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kynnir:
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
S
I
57
52
2
12
/1
1
Ö murlegt að heyra af ört fallandi fólki á götum borgarinnar. Ömurlegt
að lesa um heimsóknir í tuga tali
á slysadeild Landspítalans til að
gipsa og spelka brotna fótleggi og
handleggi. Fróðlegt væri að vita
hversu margir falla án þess að
brotna, hversu margir meiða sig
við fallið en brotna ekki, hversu
margir falla en meiða sig alls ekki
neitt. Eina helgina í janúar fóru
100 slasaðir einstaklingar á slysa-
deildina vegna falls í hálkunni. Ef
10 sinnum fleiri féllu þessa helgi,
án þess að leita til slysadeilda, þá
eru það 1.000 einstaklingar, en
kannski voru það 2.000 eða 5.000
einstaklingar? Þá er ég bara að
tala um þessa tvo daga, og bara á
höfuðborgarsvæðinu.
Krafturinn sem verður til við
höggið á kalt og hart svellið er
Fall í hálku
Hvað um þá sem brotna ekki?
töluverður. Krafturinn getur
brotið bein en hvað gerist ef
beinið brotnar ekki? Krafturinn
víbrar þá eftir beininu og í næstu
liðamót. Liðurinn getur tognað
og beinin geta hliðrast. Við fall á
mjöðm geta beinin gengið til, það
er snúist fram á við eða aftur á við.
Vöðvar í kring spennast þá upp
og halda liðnum í rangri stöðu og
álagið á bakið, mjöðmina, hnéð
og ökkla verður rangt. Eftir tvær
til þrjár vikur fara til dæmis að
koma verkir í mjóbakið neðarlega,
öðru megin, og oft ekki fyrr en
viðkomandi fer að reyna meira á
sig. Verkir fara að koma við hina
og þessa hreyfinguna og bólgur
myndast. Oft kemur í kjölfarið
verkur í rasskinnina og niður í lær-
ið. Viðkomandi tengir þetta ekki
við fallið á svellinu, veit ekki af
hverju verkurinn stafar, og lætur
ekki sjúkraþjálfara lagfæra skekkj-
una. Sjúkraþjálfari getur lagfært
stöðuna á liðnum og minnkað
vöðvaspennuna þannig að liðurinn
starfi rétt.
Sama gerist við fall
á útrétta hönd eða
ef viðkomandi ber
olnbogann fyrir sig. Ef
krafturinn við höggið
brýtur ekki beinið
þá víbrar krafturinn
upp í axlarliðinn og
tognun getur orðið
þar. Truflun verður á
starfsemi liðarins og
verkir koma ekki fram
fyrr en mikið seinna. Mikilvægt er
að laga þessa truflun sem fyrst og
fá rétta hreyfingu á
axlarliðinn og styrkja
vöðva sem hafa
slaknað og mýkja upp
þá sem hafa stífnað.
Oft duga eitt til tvö
skipti hjá sjúkra-
þjálfara til að til að
lagfæra skekkjuna en
því lengur sem beðið
er því stærra verður
vandamálið og því
lengri tíma tekur að fá aftur fram
rétta starfsemi liðarins.
Sveinn Sveinsson
sjúkraþjálfari í Gáska.