Fréttatíminn - 27.01.2012, Síða 60
Plötudómar dr. gunna
astrocat lullaby
Ragga Gröndal
Ævintýrapopp
Ragnheiður er frábær söng-
kona og dugnaðarforkur.
Þetta er þriðja sólóplata
hennar með eigin efni, en
í allt hefur hún gert sjö,
meðal annars djassplötu
og plötur þar sem þjóðlög
fá nýmóðins yfirhalningu.
Helstu hjálparkokkar Röggu
á plötunni eru unnustinn
Guðmundur Pétursson,
sem grípur í ýmislegt auk
gítarins og trommarinn
Birgir Baldursson. Óhefð-
bundnir taktar spila talsvert
stóra rullu auk flúraðra og
leiftrandi sönglína; þetta
er klassa ævintýrapopp
sem vekur óneitanlega upp
hugrenningatengsl við Kate
Bush. Það er þungur en
notalega værukær undir-
tónn á þessari fínu plötu,
lögin koma til þín eins og
mal þegar þú strýkur ketti. Í
ábót eru svo tvö léttleikandi
lög sem Ragga gerði með
The Fancy Toys.
Föstudagurinn langi
Úlfur úlfur
Ungir menn
fóta sig
Þeir Andri Freyr og Helgi
Sæmundur úr Bróðir
Svartúlfs halda hér áfram
uppteknum hætti með takt-
smiðnum Þorbirni Einari
í nýju rapp-poppkombói,
Úlfur úlfur. Á Föstudeg-
inum langa hræra þeir í
tíu missterk lög, allt frá
dúndurstöffi eins og Ég flýt,
Á meðan ég er ungur (með
Emmsjé Gauta) og Út (með
Arnóri Dan úr Agent Fresco)
yfir í kraftminna efni.
Fílingurinn er oft í dökku
litunum sem hæfir góðum
textunum vel. Hér er sungið
um það eilífðar verkefni
ungra manna sem er að fóta
sig í tilverunni, en minna er
um djammþrugl og rassa-
hjal. Úlfur úlfur hefur gert
nokkuð spennandi plötu og
þú gætir gert mjög margt
vitlausara í dag en að ná þér
í hana frítt á ulfurulfur.com.
Áfram Ísland!
Baggalútur
Safnhaugur
Þeir eru frábærir hæfi-
leikamenn í Baggalúti og
heimasíðan er auðvitað
algjör snilld. Þetta veit
fólk og brosir í kampinn
þegar nýjasta lagið heyrist.
Skotheld Memphis-mafíu-
gæði, smellinn texti Braga
Valdimars sunginn af drynj-
andi Karli og/eða hvínandi
Guðmundi er margreynd
uppskrift og engu síðri en
íslenska brauðtertan. Þessi
plata er safnhaugur með 16
tækifærislögum. Hér eru
tvö gullfalleg lög um Vigdísi,
útgáfan af Ást á pöbbnum,
sem Leonice var ekkert
ánægð með, bömmerlag
um kreppuna, glysrokkari,
eurovisionlumma og alls-
konar tilfallandi smáræði.
Eins og gengur er sumt
betra en annað og hitt
slappara en það, en yfir það
heila er þetta glimrandi
skemmtilegt.
Þórey Eva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík Fashion Festival. Ljósmynd/Hari
tÍska reykjavik Fashion Festival
Tískuhátíð í Reykjavík
Tugir gesta úr alþjóðlega tískuheiminum, einkum frá Bandaríkjunum, Skandinavíu og Evrópu, eru
væntanlegir til að taka þátt í viðamikilli tískuhátíð sem haldin verður í lok mars.
t ískan verður allsráðandi í miðborg Reykjavíkur frá fimmtudeginum 29. mars til
og með sunnudagsins 1. apríl þegar
Reykjavík Fashion Festival (RFF)
fer fram. Sýningar verða bæði í
Hörpu og Gamla bíói og efnt verður
til „pop-up-markaðar“ með hönn-
uðum sem taka þátt í RFF. Einn af
hápunktum hátíðarinnar verður
væntanlega sérstakt tískukvöld
sem hefst í miðbænum á laugardeg-
inum og stendur fram á kvöld með
þátttöku verslunareigenda. Sam-
bærilegt kvöld, Fashion Night Out,
hefur verið haldið í Lundúnum und-
anfarin þrjú ár og gert stormandi
lukku. Ef þessar áætlanir ganga
eftir bætist við enn einn litríkur
þemadagurinn í viðburðadagatal
miðborgarinnar en fyrir eru með-
al annars Kjötsúpudagurinn, Gay
Pride og Menningarnótt.
Að sögn Þóreyjar Evu Einarsdótt-
ur, framkvæmdastjóra RFF, er gert
ráð fyrir um tvö þúsund gestum á
aðra skipulagða viðburði hátíðar-
innar, sem er tvöfalt fleiri en komust
að í fyrra.
Umfangsmikil sýning verður í
Hörpu föstudaginn 30. mars þeg-
ar þeir sex íslensku hönnuðir, sem
fagráð RFF hefur valið sýna verk
sín, láta ljós sitt skína – en greint
verður frá hverjir það eru nú á laug-
ardag. Laugardaginn 31. mars fær-
ist fjörið svo yfir í Gamla bíó með
fyrirlestrum, sýningum og opnum
pallborðsumræðum um viðskipta-
hlið tískuiðnaðarins með þátttöku
gesta í salnum. Þar munu tíu inn-
lendir hönnuður til viðbótar fá tæki-
færi til að koma á framfæri sinni
hönnun.
Von er á stórum hópi erlendra
gesta og segir Þórey að fulltrúar frá
ítalska og þýska Vouge hafi þegar
staðfest komu sína.
„Við bjóðum, í samstarfi við Ice-
landair, allt að 40 fagaðilum
úr tískuiðnaðinum til lands-
ins frá Skandinavíu, Evrópu
og Bandaríkjunum. Þetta eru
kaupendur, stílistar, búðar-
eigendur, ritstjórar og blaða-
menn. Auk þess er þetta
árið lögð sérstök áhersla á
skilgreina þarfir og stöðu ís-
lenskra hönnuða og iðnaðar-
ins í heild, sem þýðir að við
bjóðum einnig einstaklingum
með alhliða reynslu í smásölu,
markaðssetningu, ráðgjöf og
fjármögnun,“ segir Þórey og
bætir við að reglulega berist
fyrirspurnir frá útlendingum
sem eru að skipuleggja ferð
á eigin vegum á RFF og vilji
tryggja sér miða.
Prufur fyrir sýningastúlkur
– reyndar og upprennandi
Elite Model á Íslandi heldur prufur fyrir
stúlkur sem hafa áhuga á að sýna föt íslenskra
hönnuða á Reykjavík Fashion Festival. Óskað
er eftir stúlkum sem eru að minnsta kosti 174
cm eða hærri og í góðu líkamlegu formi með
áhuga á tísku og fyrirsætuheiminum, eins
og það er orðað í fréttatilkynningu. Önnur
skilyrði eru að vera á skrá hjá Elite Model á
Íslandi eða hafa áhuga á að fá tækifæri til
að komast þar á skrá og að treysta sér til
að ganga á sýningarpöllum, en sérstakar
gönguæfingar verða í febrúar og mars áður
en RFF hefst. Prufurnar fara fram í dag
(föstudag) í höfuðstöðvum Eltie Model við
Ármúla 21 milli klukkan 17 og 19.
ÚTHLUTUN ÚR HÖNNUNAR SJÓÐI
AURORU Í APRÍL 2012
���������������
FRESTUR TIL AÐ SKILA INN
UMSÓKNUM RENNUR ÚT 21. FEBRÚAR
HÖNNUNARSJÓÐUR Auroru hefur að mark miði að skjóta styrkum stoðum undir íslenska hönnun með því að veita
hönnuðum og arkitektum fjárhags
lega aðstoð� Nánari upplýsingar
um út hlutaða styrki og leið beiningar
vegna um sókna er að finna á www.
honnunarsjodur.is� Umsóknir og fyrir
spurnir sendist á info@honnunarsjodur.
is�Hönnunarsjóður Auroru
Demeter vottunin er ein
strangasta lífræna vottun sem
um getur og tryggir gæði og
hreinleika vörunnar
Fæst í öllum helstu
matvöruverslunum
Beutelsbacher eplaedikið
inniheldur hið mikilvæga móðuredik
sem hefur að geyma fjölda góðgerla
sem bæði styður við og efl ir meltingar-
fl óruna. Það er jafnframt ósíað og
óunnið og því öfl ugt til heilsuefl ingar.
Uppskrift að hollum drykk:
1-2 msk af Eplaediki blandað
í volgt vatn eða eplasafa með
1 tsk af hunangi hrært út í.
Kynntu þér kosti Beutelsbacher
eplaediksins í næstu verslun
Inniheldur
engar erfðabreyttar
afurðir, kemísk
rotvarnar-, litar-
eða sætuefni.
Þú færð miða á Salurinn.is og Midi.is
Söngfuglarnir Jana María og vinir ytja
að þessu sinni lög sem urðu vinsæl í utningi
Ragga Bjarna og Sigrúnar Jónsdóttur.
52 dægurmál Helgin 27.-29. janúar 2012