Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 1

Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 1
BrúðkaupUndirbúningur  Skipulag  Hefðir  Veislan Helgin 6.-8. janúar 2012  bls. 8  Hringar Tákn um ævarandi ást – vandinn við að velja giftingahringa. www.bluelagoon.is www. hreyfing.is www.bluelagoonspa.is Gefðu ávísun á vellíðan og betri heilsu hjá Bláa Lóninu, Hreyfingu og Blue Lagoon Spa AN TO N &B ER G U R E itt sterkasta tákn þeirra tengsla og trúfestu sem brúðarhjón heita hvort öðru á brúðkaupsdaginn er hringurinn. Giftingarhringurinn byggir á sér mörg hundruð ára hefð og er meira að segja vitað til þess að forn-Grikkir hafi skiptst á hringum sem tákn um ævar-andi ást tveggja einstaklinga. Giftingar-hringar þekktust þó ekki hér á landi fyrr en seint á 19. öld. Þegar kaupa skal giftingarhringa er ýmislegt sem hafa þarf í huga. Algengt er að pör sem gifta sig nú til dags velji frekar hefðbundna hringa úr gulli eða hvíta-gulli en auðvitað er það mikilvægast að hver og einn fái hring við sitt hæfi. Helstu breytingar á giftingarhringum undanfarna áratugi eru þær að hringarnir eru farnir að kosta meira en meira er lagt í gæði og útlit að mati margra gullsmiða. Vinsælt hefur einnig verið að hafa hringana breiðari en áður og vilja sumir meina að það fylgi efna-hagsástandinu í þjóðfélaginu hversu breiðir hringarnir eru. Brúðkaup á öllum aldriSamkvæmt nýjustu tölfræði giftir fólk sig seinna ævinnar en áður tíðkaðist, bæði vegna þess að í samfélaginu í dag er ekki eins mikil áhersla lögð á að gifta sig áður en fyrsta barnið kemur og svo verður stöðugt algengara að fólk gifti sig oftar en einu sinni. Margir eru því orðnir ráðsett-ari og oftar en ekki með meiri pening á milli handanna til að eyða í brúðkaupið og kaupin á giftingarhringum. Áhersla er lögð á að fá rétta hringinn sem mun duga út ævina og líta margir til þess að hringurinn sé praktískur og geti virkað við hvers-dagslegar athafnir jafnt sem og til hátíðar-brigða. Það er líka skemmtileg hefð að grafa nafn makans innan í hringana og láta sumir það ekki duga heldur bæta við ástar-orðum eða jafnvel gælunöfnum. Með þessu móti verður hringurinn persónulegur en svo má líka útfæra lögun og útlit hringsins eftir eigin höfði og eru flestir gullsmiðir án efa tilbúnir til að fara eftir óskum verðandi brúðhjóna við gerð hringanna. Steinn ástarinnarDemantar hafa verið að ryðja sér til rúms sem vinsælustu steinarnir og velur barna- fólk oft hringa með einum demanti fyrir hvert barn – séu þau til staðar. Aðrir steinar, eins og rúbín sem er stein ástarinnar, eiga líka vel við í giftingarhring og það eru ekki bara konurnar sem velja að hafa steina í sínum hringum heldur velja brúðgumarnir þá einnig. Oftar en ekki eru þeir svo hafðir í stíl og á það vel við því hringurinn táknar einmitt einingu og ást. Persónulegur skartgripurGaman getur einnig verið að láta breyta gömlum skartgrip, sem hefur til dæmis gengið í erfðir, í giftingarhring. Ef það er hringur þá getur verið nóg að láta minnka eða stækka hann nú eða breyta honum lítillega til að gera hann persónulegan. Með þeim hætti er haldið í gamla skartgripinn sem oftar en ekki hefur tilfinningalegt gildi en að sama skapi er skapaður nýr hringur sem er einstakur. Fegurð hringsins haldið viðGömul hindurvitni segir að ekki megi taka af sér hringinn því það boði ógæfu en ólíklegt er að margir fari eftir því nú til dags. Hendurnar eiga það til að bólgna á nóttunni og því getur verið gott að taka hringinn af yfir nóttina eða þegar farið er í bað, sérstaklega ef hringurinn er með steini í. Að auki þarf reglulega að þrífa hringinn sjálfan en hægt er að kaupa sér-stakan hreinsilög hjá flestum gullsmiðum. 8077 Til að hafa í huga þegar kaupa skal hringa:  Passið upp á að hringurinn sé réttrar stærðar  Verið búin að ákveða hversu mikið hringarnir mega kosta  Leitið hugmynda úr brúð- kaupsblöðum og á netinu  Gefið ykkur tíma í að velja hring – hann er ævieign Brúðkaupið skipulagt í þaula Helgin 5.-8. apríl 2012 5.-8. apríl 2012 14. tölublað 3. árgangur 14 Konsúll og ljósmóðir í Hong Kong viðtal Hulda Þórey Brúðkaup í miðju FrÉttatímanans Brynjólfur Bjarnason hlýtur að spyrja sjálfan sig hver sé mun-urinn á honum og Þórólfi Árnasyni sem þurfti að hætta sem borgarstjóri vegna þátttöku í máli sem nú er verið að leiða til lykta. Hann hlýtur að skoða sína stöðu,“ segir Mörður Árnason alþingismaður um stöðu Brynjólfs Bjarnasonar, framkvæmdastjóra Framtakssjóðs Íslands, vegna ítrekaðra samkeppnislagabrota Sím- ans og Skipta undir stjórn hans. Nýjasta sekt Símans vegna mis- notkunar á markaðsráðandi stöðu hljóðar upp á 440 milljónir króna og átti sér stað á sex ára tímabili þar sem Brynjólfur var forstjóri síðustu fimm árin, frá 2002 til 2007. Þórólfur hætti sem borgar- stjóri í nóvember 2004 vegna starfa sinna hjá Olíufélaginu á þeim tíma sem ólöglegt verðsamráð olíufélaganna þriggja var talið hafa staðið yfir. Mörður bætir þó við að Íslendingar séu í svipaðri stöðu og þjóðir Austur-Evrópu eftir fall kommúnismans. „Forystumenn í stjórnmál- um og atvinnulífi eru markaðir af andrúmslofti liðinna tíma. Það hefur hins vegar reynst erfitt að skipta um. Það er ekki hægt að fara út í búð og kaupa varahluti eða kaupa nýja þingmenn og forstjóra. Við erum að reyna að hefja nýtt líf upp úr skelfingum sem leiddu til hrunsins og það tekur tíma,“ segir Mörður. Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðsins, sem er í eigu Landsbankans og fimmtán lífeyrissjóða auk Vátryggingafélags Íslands, ber fyllsta traust til Brynjólfs og sömuleiðis bera stærstu hluthafar sjóðsins, Landsbankinn, Lífeyrissjóður verzlunar- manna og Gildi lífeyrissjóður fyllsta traust til stjórnarinnar. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Úr fjármálaráðu- neytinu, sem fer með hlut ríkisins í Landsbankanum, feng- ust þau svör að vísað væri á stjórn Framtakssjóðsins. Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is viðHorf 32 Segir Brynjólf hljóta að skoða sína stöðu Þingmaður segir að Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs, hljóti að skoða stöðu sína í ljósi nýjustu hálfs milljarðs króna sektar Samkeppniseftirlitsins á Símann sem Brynjólfur stýrði. Fyrirtæki sem voru undir stjórn Brynjólfs hafa ítrekað gerst sek um brot á samkeppnislögum. Verður and- lit hollensks skart- gripafram- leiðanda Magdalena Dubik síða 28  VIÐTAL sAmeInAÐAr efTIr AÐskILnAÐ í háLfA öLd 58 Þegar Margrét Pálmadóttir var tveggja ára var hún aðskilin frá móður sinni, Ólöfu Emmu Kristjánsdóttur. Rúmlega hálfri öld eftir að þeim var stíað í sundur lágu leiðir þeirra saman aftur. Ljósmynd/Hari DægurMál 22úttEKt Hungur­ leikarnir hel­ taka heiminn Drungi og háski með hryllingsívafi 20 úttEKt lykilmenn á EM Leikmennirnir sem verða í aðalhlut- verkinu Sjá nánar síðu 8 Verðtrygging er vissulega til annars staðar, en hvergi er hún jafn útbreidd og á Íslandi. Ástæðan er sú að krónan sjálf er ónýt. 26viðtöl Nýdönsk í 25 ár Hefur eignast ofuraðdá- endur glEðilEga PáSKa Gleðilega páska www.lyfja.is Hjá okkur er opið alla páskana, einnig föstudaginn langa og páskadag. Lyfja Lágmúla kl. 8–01 Lyfja Smáratorgi kl. 8 –24

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.