Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 1
BrúðkaupUndirbúningur Skipulag Hefðir Veislan Helgin 6.-8. janúar 2012 bls. 8
Hringar
Tákn um ævarandi ást – vandinn við að velja giftingahringa.
www.bluelagoon.is www. hreyfing.is www.bluelagoonspa.is
Gefðu ávísun á vellíðan og betri heilsu
hjá Bláa Lóninu, Hreyfingu og Blue Lagoon Spa
AN
TO
N
&B
ER
G
U
R
E itt sterkasta tákn þeirra tengsla og trúfestu sem brúðarhjón heita hvort öðru á brúðkaupsdaginn er hringurinn. Giftingarhringurinn byggir á sér mörg hundruð ára hefð og er meira að segja vitað til þess að forn-Grikkir hafi skiptst á hringum sem tákn um ævar-andi ást tveggja einstaklinga. Giftingar-hringar þekktust þó ekki hér á landi fyrr en seint á 19. öld.
Þegar kaupa skal giftingarhringa er ýmislegt sem hafa þarf í huga. Algengt er að pör sem gifta sig nú til dags velji frekar hefðbundna hringa úr gulli eða hvíta-gulli en auðvitað er það mikilvægast að hver og einn fái hring við sitt hæfi. Helstu breytingar á giftingarhringum undanfarna áratugi eru þær að hringarnir eru farnir að kosta meira en meira er lagt í gæði og útlit að mati margra gullsmiða. Vinsælt hefur einnig verið að hafa hringana breiðari en áður og vilja sumir meina að það fylgi efna-hagsástandinu í þjóðfélaginu hversu breiðir hringarnir eru.
Brúðkaup á öllum aldriSamkvæmt nýjustu tölfræði giftir fólk sig seinna ævinnar en áður tíðkaðist, bæði vegna þess að í samfélaginu í dag er ekki eins mikil áhersla lögð á að gifta sig áður en fyrsta barnið kemur og svo verður stöðugt algengara að fólk gifti sig oftar en einu sinni. Margir eru því orðnir ráðsett-ari og oftar en ekki með meiri pening á milli handanna til að eyða í brúðkaupið og kaupin á giftingarhringum. Áhersla er lögð á að fá rétta hringinn sem mun duga út ævina og líta margir til þess að hringurinn sé praktískur og geti virkað við hvers-dagslegar athafnir jafnt sem og til hátíðar-brigða. Það er líka skemmtileg hefð að grafa nafn makans innan í hringana og láta sumir það ekki duga heldur bæta við ástar-orðum eða jafnvel gælunöfnum. Með þessu móti verður hringurinn persónulegur en svo má líka útfæra lögun og útlit hringsins eftir eigin höfði og eru flestir gullsmiðir án efa tilbúnir til að fara eftir óskum verðandi brúðhjóna við gerð hringanna.
Steinn ástarinnarDemantar hafa verið að ryðja sér til rúms sem vinsælustu steinarnir og velur barna-
fólk oft hringa með einum demanti fyrir hvert barn – séu þau til staðar. Aðrir steinar, eins og rúbín sem er stein ástarinnar, eiga líka vel við í giftingarhring og það eru ekki bara konurnar sem velja að hafa steina í sínum hringum heldur velja brúðgumarnir þá einnig. Oftar en ekki eru þeir svo hafðir í stíl og á það vel við því hringurinn táknar einmitt einingu og ást.
Persónulegur skartgripurGaman getur einnig verið að láta breyta gömlum skartgrip, sem hefur til dæmis gengið í erfðir, í giftingarhring. Ef það er hringur þá getur verið nóg að láta minnka
eða stækka hann nú eða breyta honum lítillega til að gera hann persónulegan. Með þeim hætti er haldið í gamla skartgripinn sem oftar en ekki hefur tilfinningalegt gildi en að sama skapi er skapaður nýr hringur sem er einstakur.
Fegurð hringsins haldið viðGömul hindurvitni segir að ekki megi taka af sér hringinn því það boði ógæfu en ólíklegt er að margir fari eftir því nú til dags. Hendurnar eiga það til að bólgna á nóttunni og því getur verið gott að taka hringinn af yfir nóttina eða þegar farið er í bað, sérstaklega ef hringurinn er með
steini í. Að auki þarf reglulega að þrífa hringinn sjálfan en hægt er að kaupa sér-stakan hreinsilög hjá flestum gullsmiðum.
8077
Til að hafa í huga þegar
kaupa skal hringa:
Passið upp á að hringurinn
sé réttrar stærðar
Verið búin að ákveða hversu
mikið hringarnir mega kosta
Leitið hugmynda úr brúð-
kaupsblöðum og á netinu
Gefið ykkur tíma í að velja
hring – hann er ævieign
Brúðkaupið
skipulagt í þaula
Helgin 5.-8. apríl 2012
5.-8. apríl 2012
14. tölublað 3. árgangur
14
Konsúll og ljósmóðir í
Hong Kong
viðtal
Hulda Þórey
Brúðkaup
í miðju FrÉttatímanans
Brynjólfur Bjarnason hlýtur að spyrja sjálfan sig hver sé mun-urinn á honum og Þórólfi Árnasyni sem þurfti að hætta sem borgarstjóri vegna þátttöku í máli sem nú er verið að leiða
til lykta. Hann hlýtur að skoða sína stöðu,“ segir Mörður Árnason
alþingismaður um stöðu Brynjólfs Bjarnasonar, framkvæmdastjóra
Framtakssjóðs Íslands, vegna ítrekaðra samkeppnislagabrota Sím-
ans og Skipta undir stjórn hans. Nýjasta sekt Símans vegna mis-
notkunar á markaðsráðandi stöðu hljóðar upp á 440 milljónir króna
og átti sér stað á sex ára tímabili þar sem Brynjólfur var forstjóri
síðustu fimm árin, frá 2002 til 2007. Þórólfur hætti sem borgar-
stjóri í nóvember 2004 vegna starfa sinna hjá Olíufélaginu á þeim
tíma sem ólöglegt verðsamráð olíufélaganna þriggja var talið hafa
staðið yfir.
Mörður bætir þó við að Íslendingar séu í svipaðri stöðu og þjóðir
Austur-Evrópu eftir fall kommúnismans. „Forystumenn í stjórnmál-
um og atvinnulífi eru markaðir af andrúmslofti liðinna tíma. Það hefur
hins vegar reynst erfitt að skipta um. Það er ekki hægt að fara út í búð
og kaupa varahluti eða kaupa nýja þingmenn og forstjóra. Við erum
að reyna að hefja nýtt líf upp úr skelfingum sem leiddu til hrunsins og
það tekur tíma,“ segir Mörður.
Þorkell Sigurlaugsson, stjórnarformaður Framtakssjóðsins, sem er
í eigu Landsbankans og fimmtán lífeyrissjóða auk Vátryggingafélags
Íslands, ber fyllsta traust til Brynjólfs og sömuleiðis bera stærstu
hluthafar sjóðsins, Landsbankinn, Lífeyrissjóður verzlunar-
manna og Gildi lífeyrissjóður fyllsta traust til stjórnarinnar.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vildi ekki tjá
sig um málið þegar eftir því var leitað. Úr fjármálaráðu-
neytinu, sem fer með hlut ríkisins í Landsbankanum, feng-
ust þau svör að vísað væri á stjórn Framtakssjóðsins.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
viðHorf 32
Segir Brynjólf hljóta
að skoða sína stöðu
Þingmaður segir að Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs, hljóti að skoða stöðu sína í ljósi nýjustu hálfs
milljarðs króna sektar Samkeppniseftirlitsins á Símann sem Brynjólfur stýrði. Fyrirtæki sem voru undir stjórn Brynjólfs
hafa ítrekað gerst sek um brot á samkeppnislögum.
Verður and-
lit hollensks
skart-
gripafram-
leiðanda
Magdalena
Dubik
síða 28
VIÐTAL sAmeInAÐAr efTIr AÐskILnAÐ í háLfA öLd
58
Þegar Margrét Pálmadóttir var tveggja ára var hún aðskilin frá móður sinni, Ólöfu Emmu Kristjánsdóttur. Rúmlega hálfri öld eftir að þeim var stíað í sundur
lágu leiðir þeirra saman aftur. Ljósmynd/Hari
DægurMál
22úttEKt
Hungur
leikarnir hel
taka heiminn
Drungi og
háski með
hryllingsívafi
20 úttEKt
lykilmenn
á EM
Leikmennirnir
sem verða í
aðalhlut-
verkinu
Sjá nánar síðu 8
Verðtrygging
er vissulega til
annars staðar,
en hvergi er hún jafn
útbreidd og á Íslandi.
Ástæðan er sú að
krónan sjálf er ónýt.
26viðtöl
Nýdönsk
í 25 ár
Hefur eignast
ofuraðdá-
endur
glEðilEga PáSKa
Gleðilega páska
www.lyfja.is
Hjá okkur er opið alla páskana,
einnig föstudaginn langa og páskadag.
Lyfja Lágmúla kl. 8–01
Lyfja Smáratorgi kl. 8 –24