Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 4
N J Ó T U M Þ E S S A Ð H R E Y F A O K K U R
50%
afsláttur
Michelsen_255x50_A_1110.indd 1 02.11.10 10:06
Ragna M.
Þorsteins við
sumarhúsið sitt
sem hefur verið
í eigu fjölskyld-
unnar í rúma
sjö áratugi. Nú
þarf hún að rífa
upp ræturnar
og fara með allt
af lóðinni fyrir
árslok. Mynd/Hari
Skipulag Orkuveitan víSar SumarhúSaeigendum burt
Áfall að missa
bústaðinn eftir 73 ár
Rúmlega tuttugu sumarhúsaeigendum í landi Elliðavatns hefur verið tilkynnt að lóðarleigu-
samningar verði ekki endurnýjaðir. Þeim er gert að fjarlægja öll mannvirki fyrir árslok. Sumarbú-
staðirnir hafa staðið þar í tugi ára og gengið milli kynslóða. Orkuveitan ber við vatnsverndar-
sjónarmiðum og að bústaðirnir gangi gegn gildandi deiliskipulagi.
m jög mikið áfall,“ segir Ragna M. Þorsteins sem er meðal þeirra 21 sumarbústaðaeiganda við Elliða-
vatn og Helluvatn sem hefur verið tilkynnt að
samningur um lóðaleigu verður ekki endur-
nýjaður. Foreldrar Rögnu keyptu 92 fermetra
sumarhúsið við Helluvatn þegar hún var á
fyrsta aldursári, árið 1939. Bústaður Rögnu
er tvílyftur. Hann var fluttur inn frá Noregi á
sínum tíma.
„Eftir að pabbi dó tókum við maður minn
við. Við höfum ráðist í endurbætur og kostað
miklu til við lóðina. Systir mín, sem er móðir
Sollu í Grænum kosti og Karls Eiríksbarna,
er þarna með einn fallegasta grænmetisgarð-
inn við borgina,“ segir Ragna. „Það liggur
mikil vinna í kringum þetta allt saman. Og
endalausar minningar,“ segir hún. Þarna á
hún sínar rætur: „Ég fékk nú bréfið í nóvem-
ber og lagði það til hliðar. Nú verður ekki
lengur litið undan, því sumrin eru býsna stutt
og við þurfum fjarlægja hús og girðingar
fyrir næstu áramót.“
Orkuveitan á landið og segir upplýsinga-
fulltrúinn í skriflegu svari að samningarnir
hafi ekki verið endurnýjaðir þar sem það
gangi gegn gildandi aðalskipulagi Reykja-
víkur. „Svæðið er vatnsverndarsvæði í næsta
nágrenni við vatnsból um helmings lands-
manna,“ segir Eiríkur Hjálmarsson upp-
lýsingafulltrúi í tölvupósti við fyrirspurn
Fréttatímans. Hann vísar til vatnsbóla við
Myllulækjartjarnir og Gvendarbrunna.
„Þetta er ekki sumarhúsabyggð, heldur að
verulegu leyti heilsársbyggð, það er íbúða-
byggð. Það fer illa saman við vatnsverndina.“
Ragna hefur litla trú á þeim skýringum.
Allir sumarhúsaeigendurnir hafi verið skikk-
aðir til þess að setja niður stórar rotþrær
fyrir um sjö árum síðan. „Mín kostaði þá á
bilinu sex hundruð þúsund til milljón.“ Því
finnst henni erfitt að sjá að vatnsbólunum
stafi meiri hætta af þessum bústöðum en til
dæmis Vatnsendabyggðinni.
Í bréfi til sumarhúsaeigandanna er þeim
bent á að í leigusamningi standi að við lok
leigutíma geti leigusali „vísað leigutaka burt
af landinu með mannvirki og girðingar, sem
skuli rífa eða fjarlægja, leigusala að kostnað-
arlausu, þegar þess er krafist.“ Eiríkur vildi
ekki ræða til hvaða aðgerða verði gripið verði
sumarhúsaeigendurnir ekki við því.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður á næsta sumarhús
við Rögnu og kannast ekki við að hafa fengið bréf um að leigu-
samningi um lóðina verði ekki endurnýjaður. „Ég hef alla pappíra
upp á það að þetta er erfðafestuland,“ segir hann. Land hans er
listað upp meðal þeirra sem fá ekki endurnýjaðan samning.
Erfðafesta á landi er óuppsegjanleg leiga. Þá hefur einstaklingi
verið veittur réttur til að nýta land og rétturinn erfist eins og
aðrar eignir. Slíkir samningar voru algengir framyfir miðja
20. öld en eru ekki gerðir í dag. „Ef að á að leita um að losa
erfðafestu þurfa þeir að kaupa allt sem er á eigninni á fullu
verði,“ segir Hrafn en foreldrar hans áttu húsið á undan honum.
Sumarhúsið brann fyrir um tíu árum og byggði Hrafn þá annað.
Hann segir að lóðina hafi Þórður Sveinsson yfirlæknir keypt af
Einari Ben. - gag
Hrafn stikkfrí á erfðafestulandi
Frumvarp um lán til
Vaðlaheiðarganga
Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra
hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga
um heimild til að undirrita lánasamning
við Vaðlaheiðargöng hf. Kostnaður við
gangaframkvæmdina er áætlaður um
8,7 milljarðar króna, án virðisaukaskatts.
Samkvæmt frumvarpinu skulu Vaðla-
heiðargöng hf, eignir þess og tekjustreymi,
vera fullnægjandi tryggingar fyrir láninu.
Vaðlaheiðargöng eru á samgönguáætlun
þeirri sem innanríkisráðherra mælti
nýverið fyrir á Alþingi. Verði frumvarp
þetta ekki að lögum, segir í tilkynningu
fjármálaráðuneytisins, mun ríkissjóður
kosta Vaðlaheiðargöng að fullu þegar að
þeim kemur á samgönguáætlun. - jh
Íslendingum fjölgaði
um 0,4 prósent á síð-
asta ári
Íslendingum fjölgaði um 0,4 prósent á
síðasta ári, eða um 1.123 einstaklinga.
Hinn 1. janúar voru þeir 319.575, að því er
fram kemur í Hagtíðindum sem Hagstofa
Íslands gefur út. Árið 2011 fæddust 4.496
börn, 2.327 drengir og 2.169 stúlkur, en
1.985 manns létust. Fæddir umfram dána
voru því 2.511. Í fyrra fluttust 6.982 utan
en 5.578 til landsins. Brottfluttir umfram
aðflutta voru því 1.404 árið 2011. Drengir
sem fæddust í fyrra geta vænst þess
að ná 79,9 ára aldri en stúlkur eiga hins
vegar von á að ná að meðaltali 83,6 ára
aldri. - jh
Grand Hótel Reykjavík Svansvottað
Stærsta ráðstefnuhótel landsins, Grand
Hótel Reykjavík, hefur hlotið vottun
Norræna umhverfismerkisins samkvæmt
viðmiðunarreglum fyrir hótel, að því
er fram kemur í tilkynningu hótelsins.
Svanurinn er opinbert umhverfismerki
Norðurlandanna. Kristín Linda Árnadóttir,
forstjóri Umhverfisstofnunar, afhenti Ólafi
Torfasyni, stjórnarformanni hótelsins, leyfið
síðastliðinn föstudag. Í umhverfisstefnu hótelsins segir að unnið sé markvisst að því
að draga úr orku- og vatnsnotkun. Ávallt sé leitast við að kaupa umhverfisvottaðar
vörur og þjónustu þegar það er mögulegt og bjóða upp á lífrænt ræktaðar vörur,
meðal annars lífrænt vottaðan morgunverð. Allt sorp er flokkað og sent til endur-
vinnslu. - jh
veður FöStudagur laugardagur Sunnudagur
SuðveStlæG átt, Súld oG ÞokuMóðA
S- oG v-lAndS en bjARtviðRi AnnARS
StAðAR. Milt.
HöfuðboRGARSvæðið: HæG SuðVEStLæG
ÁTT og SúlD eðA ÞokUmÓðA
HæG veStlæG átt oG Súld eðA Þoku-
MóðA en noRðAuStlæG átt noRðAntil
oG SkýjAð.
HöfuðboRGARSvæði : HæG VEStLæG Átt
OG RiGNiNG
HelduR vAxAndi SunnAnátt oG RiGninG
uM Allt lAnd, HlýnAndi veðuR.
HöfuðboRGARSvæðið: SuNNANÁtt OG
RiGNiNG
Suðvestlægar áttir og fremur milt.
Það lítur út fyrir fremur milt veður þessa
páskana. Suðvestlægar áttir og súld
eða þokuloft S- og V-til og eins með
norðurströndinni a.m.k. á skírdag og
föstudaginn langa, en á laugardag snýst í
norðaustlæga og síðar austlæga átt NA-lands.
Hiti verður yfirleitt talsvert yfir frostmarki,
og nær hiti jafnvel 10-12 stigum
sunnanlands, en það kólnar
væntanlega heldur á laugardag. Á
laugardagskvöld og páskadag
gengur í sunnanátt með
rigningu um mest allt land,
og veður vindur á bilinu 8-15
m/s, hvassast á Austfjörðum
7
7 9
9
8 6
5 4 3
7
9
8 8
6
9
elín björk jónasdóttir
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 5.-8. apríl 2012