Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 11
Sigurður Óli Hákonarson
• MSc í fjármálum fyrirtækja
frá HR
• Sérfræðingur í Greiningu
Íslandsbanka
„Helsti kostur meistaranáms í
fjármálum fyrirtækja við
Háskólann í Reykjavík eru
kennararnir sem hafa mikla og
haldgóða reynslu á viðkomandi
sviði, bæði af innlendum og
erlendum markaði.
Kennslufyrirkomulagið byggði á
skynsamlegri blöndu fræðilegrar
kennslu og raunhæfra verkefna,
nemendahópurinn var öflugur
og aðstaðan í HR til fyrirmyndar.“
Velkomin í framsækinn
alþjóðlegan háskóla
Opið fyrir umsóknir í meistaranám til 30. apríl
Heimilin svartsýn á
verðlagsþróun
Heimili landsins eru ekki bjartsýn
á að verðbólgan hér á landi hjaðni
næsta árið. Þau væntu þess á fyrsta
ársfjórðungi að verðbólgan á næstu
12 mánuðum yrði 6,5 prósent, en
verðbólgan var að meðaltali 6,4
prósent miðað við vísitölu neysluverðs
á fjórðungnum. Hafa verðbólguvænt-
ingar þeirra jafnframt aukist nokkuð
frá síðasta ársfjórðungi liðins árs en
þá væntu heimilin þess að verðbólgan
yrði 6,0 prósent á næstu 12 mánuðum.
Eru þau jafnframt töluvert svartsýnni
á verðlagsþróunina hér á landi en
þau voru fyrir ári. Þetta sést í niður-
stöðum könnunar Capacent Gallup sem
Seðlabanki Íslands birtir í Hagvísum
bankans fyrir mars. Það að heimilin
séu orðin svartsýnni á verðbólguhorfur
er í takti við sýn stjórnenda stærstu
fyrirtækja landsins. - jh
Íbúðalánasjóður
eignast æ fleiri íbúðir
Íbúðum í eigu Íbúðalánasjóðs heldur
áfram að fjölga og í lok síðasta árs átti
sjóðurinn samtals 1.606 fasteignir og
fjölgaði þeim um 537 á árinu. Fasteign-
um í eigu sjóðsins hefur fjölgað verulega
undanfarin tvö ár en í byrjun árs 2010
átti sjóðurinn 347 íbúðir og hefur þeim
því fjölgað um 1.259 á aðeins tveimur
árum. Þetta kemur fram í ársreikningi
Íbúðalánasjóðs, sem Greining Íslands-
banka vitnar til. Þessi mikla aukning er
tilkomin vegna greiðsluerfiðleika lántak-
enda hjá sjóðnum en á árinu 2010 leysti
Íbúðalánasjóður til sín 854 fasteignir
til fullnustu krafna og á síðasta ári voru
691 fasteignir innleystar. 80 prósent
fasteigna sjóðsins eru á landsbyggðinni.
Flestar íbúðir á sjóðurinn á Suður-
nesjum eða 401 íbúð. Á höfuðborgar-
svæðinu eru 336 í eigu sjóðsins. Í árslok
2011 voru 642 fasteignir í útleigu eða
40,2 prósent af heildarfjölda fasteigna í
umsjón sjóðsins. - jh
Íslensk fyrirtæki mjög
skuldsett
Þrátt fyrir að aukin hreyfing hafi komist
á fjárhagslega endurskipulagningu
fyrirtækja á síðasta ári og fjárhags-
staða íslenskra fyrirtækja fari almennt
batnandi er mikil skuldsetning þeirra
áhyggjuefni. Þetta kemur fram í nýlegri
skýrslu Samkeppniseftirlitsins sem telur
að margvíslegar hættur stafi af mikilli
skuldsetningu atvinnulífsins, að því
er fram kemur hjá Greiningu Íslands-
banka. Skýrslan byggir á könnun meðal
stjórnenda 120 stórra fyrirtækja á
völdum samkeppnismörkuðum en þessi
fyrirtæki standa undir helmingi af veltu
allra íslenskra fyrirtækja. Það er Sam-
keppniseftirlitinu áhyggjuefni hversu
skuldsett íslensk fyrirtæki, sem þó hafa
lokið endurskipulagningu, eru ennþá.
Þannig telur um þriðjungur stjórn-
enda stærri íslenskra fyrirtækja, sem
hafa verið seld eða gengið í gegnum
endurskipulagningu, að fyrirtækið geti
ekki staðið undir núverandi skuldabyrði
eða að óvíst sé að það geti staðið undir
henni. - jh
Gylfi Þór leikmaður
mars í ensku
úrvalsdeildinni
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður
Swansea, var valinn besti leikmaður
marsmánaðar í ensku úrvalsdeildinni en
hann spilaði frábærlega með nýliðunum.
Þetta er mikill heiður fyrir íslenska
landsliðsmanninn sem er fyrsti Ís-
lendingurinn sem hlýtur þessi verðlaun,
sagði í Vísisfrétt í gær. Sérstök nefnd
ensku úrvalsdeildarinnar velur besta
leikmanninn. „Gylfi kemst í flottan hóp
með því að hljóta þessi verðlaun,“ sagði
í fréttinni, „en menn eins og David Silva,
Robin van Persie, Gareth Bale og Scott
Parker hafa allir hlotið þau í vetur.“ - jh
Fjórðungur í skuldavanda
Eitt af hverjum fimm skuldsettra heimila í
landinu var í greiðsluvanda í lok árs 2010.
Eru þetta 21 þúsund heimili. Þá voru 37,5%
skuldsettra húseigenda með neikvætt
eigið fé í húsnæði sínu í lok ársins 2010
eða sem nemur um 27% allra húseigenda.
Hlutfall skuldsettra heimila í greiðsluvanda
nær tvöfaldaðist frá ársbyrjun 2007 og
fram að hruni og fór úr 12,5% í 23,5% á
tímabilinu. Hlutfall heimila í greiðsluvanda
náði svo hámarki í 27,5% haustið 2009 en
lækkaði svo niður í 20% í lok árs 2010 í
kjölfar greiðslujöfnunar, hækkunar launa
og endurútreiknings ólöglegra lána.
Greining Íslandsbanka segir að 25% væru
í greiðsluvanda í stað 20% ef ekki hefði
komið til þessara aðgerða. - jh
Mikil fjölgun hótelgesta
Gistinætur á hótelum í febrúar voru 102.600
samanborið við 79.900 í febrúar 2011. Gisti-
nætur erlendra gesta voru um 78% af heildar-
fjölda gistinátta í febrúar en gistinóttum
þeirra fjölgaði um 33% samanborið við
febrúar 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum
Íslendinga um 13%. Gistinóttum á hótelum
fjölgaði í öllum landshlutum, að því er Hag-
stofa Íslands greinir frá. Á höfuðborgar-
svæðinu voru tæplega 80 þúsund gistinætur
í febrúar og fjölgaði um ríflega 30% frá fyrra
ári. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vest-
fjarða fjölgaði gistinóttum mikið á milli ára,
voru 2.800 samanborið við 1.200 í febrúar
2011. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum
einnig mikið, voru 1.600 samanborið 1.000. Á
Norðurlandi voru 4.900 gistinætur á hótelum
í febrúar sem er um 25% aukning. Á Suður-
nesjum voru gistinætur 4.400 í febrúar sem
er 13% aukning. Á Suðurlandi voru 9.000
gistinætur á hótelum í febrúar sem er 6%
aukning. - jh
Söluskáli ónýtur
Söluskálinn Blái turninn við Háaleitisbraut
í Reykjavík eyðilagðist í bruna í gær, miðviku-
dag. Eldurinn kom upp um klukkan ellefu.
Talið er að kviknað hafi í út frá steikarpotti
og á örskotsstundu varð söluskálinn alelda.
Kona, sem var í skálanum þegar eldurinn
kviknaði, komst út af sjálfsdáðum og sakaði
ekki. Mikill viðbúnaður var vegna brunans.
Loka þurfti Háaleitisbraut fyrir umferð milli
Miklubrautar og Listabrautar. Slökkviliðs-
menn létu rífa þak skálans með aðstoð
vinnuvéla. - jh
fréttir 11 Helgin 5.-8. apríl 2012