Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 18

Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 18
Sigurvissir Svíar Hvert sem litið er í Eurovision-veröldinni, þar sem spennan eykst dag frá degi, eru Svíar taldir sigurstranglegir. „Þeir gætu þurft áfallahjálp vinni þeir ekki keppnina í ár, svo sigurvissir eru þeir,“ segir Haukur Johnson áhangandi keppninnar sem býr í Stokkhólmi. Haukur, ásamt Hrafnhildi Halldórsdóttur, Eurovision-kynni, spáir í spilin með Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur. Serbía Željko Joksimovic snýr aftur, fertugur að aldri. Hann varð í öðru sæti árið 2004 með lagið Lane Moje. Samdi lagið um Leylu sem varð í þriðja sæti í keppninni 2006 og einnig lagið Oro sem varð sjötta árið 2008. 670 þúsund Svíar af þeim fjórum milljónum sem kusu í Melodifestivalen völdu lagið Euphoria sem Loreen syngur. Það er met í keppninni þar á bæ. Loreen er 28 ára gömul. Sv íþ jó ð Jú, jú. Það er rétt. Jedward’s bræður mæta aftur til leiks. Írland England Hver kannast ekki við Engelbert Humperdinck? Hann hefur selt yfir 150 millj- ónir platna allt frá sjöunda áratugnum og freistar þess að vinna Eurovision með angurværri ballöðu. Frakkland Anggun hefur þegar selt tvær milljónir platna í Evrópu. Hún var þekkt í austurlöndum áður en hún fluttist til Frakklands í leit að heimsfrægð. Hún hefur verið með franskan ríkisborg- ararétt í fimmtán ár. Kunnug- legt blístur einkennir lagið. Kýpur Kýpurbúar senda sænskuskotið lag með afar einföldum texta, La La Love. Lagið er þegar farið að hljóma á dansstöðum borgarinnar. Hin gullfallega Ivi Adamou flytur lagið fyrir Kýpur. Rússnesku ömmunum hefði hugsanlega gengið betur í keppni án dómnefnda. En hver veit? Ömmurnar koma frá Udmurtia í Rússlandi og hafa verið þekktar frá 2008 í heimalandinu. Lagið heitir Party For Everybody. Þær eru ekkert að grínast og lögðu Dima Bilan, sem vann Eurovision árið 2008, í rússnesku undankeppninniRússland Íslenski hópurinn ferðast lengst allra Flogið út: Að morgni 12. maí Flugið: Keflavík-Frankfurt, Frankfurt-Istan- búl, Istanbúl-Bakú. Lenda: Um klukkan 01.30 að morgni 13. maí. Flogið heim: Baku-Istanbúl, Istanbúl-London, London-Keflavík. Með þeim Grétu og Jónsa fer fólkið sem annast hár, förðun, sviðsfatnað, sviðshreyf- ingar og söngþjálfun, ásamt fjölmiðlafulltrúa flytjenda. Frá RÚV fara sex: Liðsstjóri, aðstoðarliðs- stjóri, myndpródúsent, myndatökumaður, fréttakona og kynnir. Allt í allt: 18. Noregur Flottasta lagið hvað varðar dansatriði í keppninni í ár, segir Eurovision-Haukur. Heldur ekki út lagið, segir útvarps-Hrafnhildur. Þá er bara fyrir áhugasama að lækka í tækinu og njóta ;-) J á, Ísland komst áfram. Ég verð ekki eldri. Vá. Til hamingju.“ Hver gleymir þessum ummælum? Hrafnhildur Halldórsdóttir var kynnir RÚV á Eurovision í fyrra, hún varð eldri og telur að sænska lagið muni gera það gott í ár. „Það hefur allt til að bera,“ segir hún og staðfestir um leið að hún kynni einnig keppnina fyrir hönd Ríkissjónvarpsins í Bakú í Aserba- ídsjan í lok maí í ár. Hrafnhildur er ekki ein um að telja sænska lagið sigurstranglegt í ár. Haukur Johnson, Eurovision- aðdáandi, kolféll fyrir laginu í undankeppni Svía. Hann fagnaði ógurlega þegar ljóst varð að Euphoria yrði fram- lag þeirra í ár, þar sem hann stóð í yfirfullum salnum á úrslitakvöldi Melodifestivalen í Stokkhólmi í ár, en þar býr Haukur. „Þetta lag er algjört „breakthrough“. Allur fókusinn er á söngkonunni. Mér finnst líka eins og hún sé að syngja um eitthvað magn- að; eins og hún sé að uppgötva eldinn eða eitthvað álíka. En svo er lagið víst bara um ástina! Með hárið fyrir augunum, svo tætt, já bara eins og hellisbúi,“ segir hann. Íslendingar fara lengst Íslensku flytjendurnir gætu ekki farið lengra til að taka þátt í Euro- vision. Reyndar er það svo, samkvæmt vefnum bigthink. com að engin þjóð þarf að fara lengra. Íslenska sendi- nefndin; sex frá RÚV og 12 frá flytjendunum sjálfum, eftir því sem Frétta- tíminn kemst næst, flýg- ur 4.827 kíló- metra leið, sé loftlínan mæld. Lagið tekur þátt í fyrri undan- keppninni 22. maí. Flytjendurnir Gréta Mjöll og Jónsi eru önnur á svið og með fimmtíu prósent líkur á því að komast í aðalkeppnina. Báðum, Hrafnhildi og Hauki, finnst lagið líklegt til að ná ár- angri. „Ég spái því góðu gengi,“ segir Hrafn- hildur. „Já,“ samsinnir Haukur. „Lagið gæti gert hvað sem er. Það er nógu kraftmikið og öðruvísi, íslenskt og flott. Það gæti unnið. Við erum í það minnsta örugg upp í aðalkeppnina,“ segir hann og slær á væntingarnar um sigur, hann sé frátekinn fyrir Svía, og þeir þurfi líkast til áfallahjálp ef sigurinn verður ekki þeirra. Rétt eins og þau tali daglega saman í síma eða sitji hlið við hlið á miðju trúnó nefna þau sigurstranglegustu lögin einni röddu – svo sammála eru þau: Hrafnhildur í Fossvogi og Haukur í Svíþjóð og þekkjast líklegast bara ekki neitt. Sammála um topplögin Hrafnhildur: „Svíþjóð: Flott. Ítalska lagið: Flott, en ég er þó óánægð með að þeir skyldu ekki syngja það á ítölsku. Það var flottara þannig. Kýpur er flott og þar er dóttir mín tvítug sammála enda lagið komið að hennar sögn á fullt í spilun á skemmtistaðnum Austur. Þá finnst mér Engelbert Humperdinck, sem flytur breska lagið, flottur. Þýska lagið venst. Það er lag sem mér fannst ekkert til koma fyrst en heyri nú að það er húkkur í því.“ Haukur: „Svíþjóð, og vonandi er ég ekki bara með- virkur þar sem ég bý hér úti. Margir nefna Rússland og ömmurnar þeirra, en ég held að dómnefndirnar komi í veg fyrir það. Ég held að bæði Ítalía og Bretland eigi eftir að koma á óvart. Í báðum tilvikum eru flottir flytjendur og þessi breski er víst eitthvað þekktur, þótt ég hafi ekki þekkt hann. Það virðist engum líka illa við þetta lag og ég þykist viss um að dómnefndirnar eigi eftir að gefa því lagið mörg stig. Ef að áhorfendur fíla hann, tel ég að hann eigi hreinlega möguleika á að koma öllum á óvart og vinna.“ En hvernig er keppnin í ár í samanburði við fyrri ár? „Í fyrra fannst mér fólk ekki hópast í kringum einn keppanda eins og þann sænska nú,“ segir Haukur. Hrafnhildur telur gæðin síðri en í fyrra: „Já, ég er á því að lögin séu slakari.“ Um það geta Eurovision-nördar nú rifist en þó mest um það hvort til sé eitthvað sem kallist Eurovision- formúla. „Já, hún er til,“ segir Haukur. „Það er í raun sænska formúlan. Í keppninni í ár eru fimm lög samin af Svíum, þeir fylgja þessari formúlu, en það er ekki til formúla að sigri. Það verður að heilla fólk með því að koma því á óvart og alls ekki víst hvernig það er gert. Það þýðir ekki að koma með Carolu einu sinni enn með upphækkun í lokin til að tryggja sigur. Það er bara ekki nóg.“ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@frettatiminn.is 4.287 km loftlína til Bakú 18 eurovision Helgin 5.-8. apríl 2012

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.