Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 22
S
jö bóka flokkurinn um Harry Potter fór
frekar rólega af stað og þrátt fyrir yfir-
þyrmandi ógnina sem fylgdi þeim sem
ekki mátti nefna var áhyggjulaus ævin-
týraandi bernskunnar ríkjandi en eftir því
sem Harry varð eldri stigmagnaðist ógnin og myrkr-
ið færðist yfir. Það má því vel ímynda sér að Harry
hafi kennt ungum lesendum að meta skrímsli, hroll
og lífsháska á prentuðum síðum og að þeir unglingar
sem tæta þessi misserin í sig Ljósaskiptabækurnar
og Hungurleikana hafi vaxið úr grasi með Harry.
Allt eru þetta fantasíur, þótt ólíkar séu, og Hungur-
leikarnir eru í raun jarðtengdastir og eiga sér stað
einhvers staðar í nálægri framtíð. Harry Potter lifir
í tveimur ólíkum heimum, þeim sem við þekkjum
og töfraveröldinni og kærustuparið Edward og Bella
eiga sitt ást-
arævin-
týri á
okk-
ar
tímum í heiminum eins og við þekkjum hann fyrir
utan auðvitað að þangað hafa leitað vampírur og
varúlfar. Fyrirbæri sem eru sjálfsögð í galdraheimi
Potters.
Ófögur framtíðarsýn
The Hunger Games kom fyrst út árið 2008 og er
fyrsta bókin í þriggja bóka flokki en í kjölfarið komu
Catching Fire (2009) og Mockingjay (2010). Höfund-
urinn Suzanne Collins skrifar fyrir stálpaða unglinga
en þó þannig að fólk á öllum aldri getur notið bókana,
hafi það yfirleitt áhuga á þvi að stíga inn í drungalega
framtíðarsýn hennar.
Frá því The Hunger Games kom út hefur hún verið
þýdd á 26 tungumál og útgáfurétturinn verið seldur
til 38 landa. Vinsældir bókanna tóku síðan hressi-
legan kipp þegar bíómyndin kom út en rétt eins og
bókunum hefur myndinni verið gríðarlega vel tekið,
bæði af áhorfendum og gagnrýnendum, og aðsókn-
armetin féllu eins og unglingar í Hungurleikum.
Söguheimur Collins er nokkuð dæmigerð dy-
stópía, eða and-útópía þar sem 1984 Orwells er önd-
vegisrit; þar sem ranglæti, fátækt, einræði og skoð-
anakúgun ríkja. Bandaríkin heyra sögunni til eftir
langvarandi borgarastríð og aðrar hörmungar en upp
úr rústum þeirra reis ríkið Panem.
Landinu er skipt í tólf svæði sem hverfast
um höfuðborgina Capitol. Þeir sem
byggja borgina lifa í vellysting-
um í hátæknivæddu samfé-
lagi og kúga bláfátækan
lítilmagnann á svæð-
unum tólf. Hungur-
leikarnir eru gamalt
kúgunartæki sem
eru notaðir til
þess að
bæla allar uppreisnarhugmyndir hinna undirokuðu.
Leikarnir festust í sessi eftir að löngu borgarastríð-
inu lauk og eru bæði refsing og áminning til þegn-
anna um að þeim sé hollast að halda sig á mottunni.
Hverju svæði gert að senda eina stelpu og einn
strák, á aldrinum tólf til átján ára, á Hungurleikana
ár hvert. Þar berst unga fólkið upp á líf og dauða þar
til aðeins einn stendur eftir sem sigurvegari sem fær
að njóta lífsins í frægðarljóma við alsnægtir það sem
eftir er.
Þetta er ef til vill ekki ýkja frumlegt og Collins
hefur verið legið á hálsi að taka ótæpilega hugmynd-
ir frá japönsku kvikmyndinni Battle Royale auk þess
sem greina má bergmál frá þekktum dystópíum á
borð við 1984 áðurnefnda, THX 1138, The Running
Man og svo mætti lengi telja.
Í beinni frá Colosseum
Bækur Collins virðast höfða mest til unglings-
stúlkna sem lesa þær af ákafa og flykkjast þessa
dagana í bíó til að sjá myndina sem byggir á fyrstu
bókinni. Líklega ræður krafturinn í aðalsögupersón-
unni Katniss Everdeen miklu um áhuga stelpna á
The Hunger Games en hún er hörkutól með bein í
nefinu sem lætur sér fátt fyrir brjósti brenna; huguð
og sjálfstæð sem hefur til að bera tilfinningagreind
í betra lagi og lætur hjartað ráða för. Og þar skilur á
milli feigs og ófeigs þegar á vígvöllinn er komið.
Faðir Katniss fórst í námuslysi nokkrum árum
áður en sagan hefst og síðan þá hefur hún haldið
móður sinni og systur gangandi en mamman er hálf-
gert flak eftir að hafa misst eiginmann sinn. Katniss
stundar meðal annars ólöglegar veiðar til þess að
fæða fjölskylduna og er þekkt á svæðinu fyrir ótrú-
lega bogfimi, sem vitaskuld kemur sér einnig vel
þegar á hólminn er komið.
Hungurleikarnir eru ekki einungis grimmileg að-
ferð til þess að ógna og kúga fjöldann þar sem þeir
eru einnig helsta afþreying landsmanna ár hvert og
er sjónvarpað beint um allt Panem þannig að leik-
arnir sverja sig í ætt við hringleikhús Rómverja til
forna þar sem skylmingaþrælar söxuðu hver ann-
an niður og ljón gæddu sér á kristnum múgnum
til ánægju og yndisauka.
Sjálf segir Collins að hún hafi fengið hug-
myndina að sögunni þegar hún var á sjón-
varpsstöðvaflakki með fjarstýringuna á
lofti. Á einni rásinni sá hún fólk keppa í
raunveruleikasjónvarpsþætti og á annarri
voru fréttamyndir frá innrásinni í Írak.
Þetta tvennt rann saman í huga hennar á
„ónotalegan hátt“ og hugmyndin að The
Hunger Games varð til.
Þegar drápsæðið grípur unglinglinginn
Þegar fyrsta bókin um Harry Potter kom út árið 1997 greip magnað lestraræði börn og unglinga um allan heim.
Töfrar Potters voru svo magnaðir að tölvuleikir og sjónvarpsgláp mátti víkja fyrir bókunum. Á þeim fimmtán árum
sem liðin eru frá því fyrsta bókin um Harry Potter kom út hafa tveir aðrir bókaflokkar helst heillað unga fólkið:
Twilight-serían, sem fjallar um ástir dauðlegrar stúlku og vampíru og hefur gert það gott og svo nýjasta æðið sem
snýst um Hungurleikana. Allir eiga þessir bókaflokkar það sameiginlegt að yfir þeim hvílir ákveðinn drungi og háski
með hryllingsívafi.
Bækur Coll-
ins virðast
höfða mest
til unglings-
stúlkna sem
lesa þær af
ákafa.
Persónutöfrar, kjarkur og uppreisnarandi Catniss gerir
hana að helstu stjörnu Hungurleikanna og hún vinnur
áhorfendur á sitt band en með hjálp styrktaraðila má
komast langt á blóðvellinum.
Raunverulegar limlestingar og dauði eru engin
nýjung þegar kemur að afþreyingu og hringleikarnir
í Róm eru sjálfsagt þekktasta dæmið um samruna
ofbeldis og afþreyingar. Eitthvað á mannkynið víst að
hafa þroskast siðferðislega í gegnum aldirnar og „allt
í plati“ ofbeldi leysti hringleika og opinberar aftökur
af en í kjölfar raunveruleikasjónvarpsbyltingarinnar
þar sem fólk er látið éta pöddur, stofna sér í alls kyns
hættu og svíkja og ljúga sig áfram í keppni um milljón
dollara hefur sú spurning vaknað hvort ekki styttist í
að hringnum verði lokað með því að flytja rómverskt
hringleikahús heim í stofu.
Slíkur er veruleiki Catniss Everdeen í The Hunger
Games en hugmyndin um raunveruleikasjónvarp
upp á líf og dauða er síður en svo ný af nálinni. Löngu
áður en raunveruleikasjónvarpsfroðan skall á heims-
byggðinni skrifaði hrollvekjuhöfundurinn Stephen
King-söguna The Running Man árið 1982.
Þar segir frá samnefndum sjónvarpsþætti sem
gengur út á það að þátttakendur, aðallega fangar, eða
einhverjir sem eru komnir á útjaðra samfélagsins,
eiga að reyna að komast lífs af hundeltir af þraut-
þjálfuðum morðingjum. Myndavélar eru út um allar
trissur þannig að ekkert fer fram hjá blóðþyrstum
áhorfendum og áhorfið eykst jafnt og þétt eftir því
sem hringurinn þrengist utan um dauðadæmdan
flóttamanninn.
Árið 1987, þegar Arnold Schwarzenegger var
á hraðri og öruggri uppleið á
stjörnuhiminn harðhausanna, var
gerð bíómynd eftir sögu Kings.
Þar lék Arnold mann sem endar
sem bráð þjálfaðra morðingja
fyrir framan sjónvarpsvélarnar.
Enginn keppandi hafði vitaskuld
komist lifandi í gegnum þáttinn en
Arnold er enginn venjulegur maður og skyndilega
urðu veiðimennirnir bráðin.
Þótt The Running Man sé komin til ára sinna minn-
ir umgjörð sjónvarpsþáttarins í myndinni um margt á
sambærilegan þátt í The Hunger Games þar sem mik-
ið er gert út á glamúr, glens og skrautlega búninga.
Banvænt raunveruleikasjónvarp
Arnold hitar upp
fyrir The Running
Man þar sem
honum er ætlað
að deyja í beinni
útsendingu.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Catniss er sýnd
veiði en ekki
gefin og býður
unglingunum frá
hinum svæðunum
ellefu birginn í
Hungurleikunum
og heillar um
leið lesendur
bókanna og
ekki síður
bíógesti.
22 ævintýri Helgin 5.-8. apríl 2012