Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 30
Verslað í Brussel
Mikið hefur verið rætt, ritað og þrasað um
styrk sem Alþingi veitti Evrópuvakt þeirra
Björns Bjarnasonar og Styrmis Gunnars-
sonar. Þeir hafa nú gert grein fyrir ráðstöfun
peninganna en Björn er þó ekki sloppinn úr skot-
línu gárunganna á Facebook.
Sigurjón Egilsson
Duga fínu eftirlaunin ekki?
Bergsteinn Sigurðsson
„Yfirvigt í flugi 30.132 kr.“ Björn hefur bara sleppt
sér í búðunum.
Þráinn Bertelsson
Til allrar hamingju virðist BB ekki hafa skaðast
neitt verulega í þessum viðskiptum sínum við
Evrópusambandið.
Sigurður G. Tómasson
Það er ekki nema von að menn verði firrtir, þegar
þeir geta fengið sérstaka styrki til utanferða
og skrifa á bloggsíður auk tvöfaldra eftirlauna
með réttindum sem verða til á margfalt styttri
tíma en hjá almenningi. Við hin verðum að kosta
utanferðir okkar sjálf og fáum ekki borgað fyrir
bloggskrif. Við eigum líka bara einföld lífeyris-
réttindi og er refsað sérstaklega ef við vinnum
fyrir tekjum.
Björn Birgisson
Alþingi borgaði yfirvigt Evrópuvaktarinnar hans
Björns Bjarnasonar!
Ætli karlinn hafi nokkuð verið að smygla ein-
hverju góðgæti frá Brussel?
Þóra stígur í hringinn
Þóra Arnórsdóttir lýsti yfir framboði sínu til
embættis forseta Íslands á fimmtudag og var
eðlilega áberandi á Facebook þar sem fjölmargir
beindu kastljósinu að henni. Almenn ánægja er
með framboðið en einhverjir óttast að stelpu-
slagur muni gagnast sitjandi forseta best.
Gunnar Larus Hjalmarsson
Ég lýsi hér með yfir á STUÐningi við Þóru Arnórs-
dóttur. Þóru á Bessastaði 2012!!!
Líf Magneudóttir
Já sveimér þá - ef eitthvað má marka fb
þá verður Þóra Arnórsdóttir næsti forseti
lýðveldisins.
Valur Grettisson
Ef læk við fréttir eru einhver vísbending um
niðurstöðu kosninganna, þá er Þóra að fara rústa
Herdísi.
Sölvi Tryggvason
Ólafur Ragnar fagnar því sennilega Þóra Arnórs-
dóttir bjóði sig fram til forseta eftir að Herdís
tilkynnti um sitt framboð. Nú munu þær skipta á
milli sín atkvæðum andstæðinga hans.
Árni Snævarr
Nokkuð til í því, en Herdís gæti aldrei unnið ÓRG,
en það getur hins vegar Þóra.
Svanborg Sigmarsdóttir
Þóra og Herdís þurfa ekki endilega að vera keppi-
nautar um eitthvað fast fylgi sem Ólafur „fær
ekki“ . Ég sé t.d. fyrir mér að sumir kjósendur
Ólafs gætu hugsað sér að kjósa Herdísi.
Hallgrímur Helgason
Er síðdegisútvarp Rásar Tvö að lognast út af?
Fyrsta alvöru forsetaframboðið gegn sitjandi
forseta í sögu landsins er að koma fram as we
speak... og þau kjósa að fjalla um eikarbáta,
Öskjuvatn og páskaeggjagerð...
Egill Helgason
Er ekki meira og minna allt Rúv vanhæft til að
fjalla um þessar kosningar?
Ævar Örn Jósepsson
Hm. Eini frambjóðandinn sem komið hefur fram
og á raunverulega möguleika á að sigra Ólaf
tryggir honum embættið áfram? Það þykir mér
merkileg túlkun.
mar Gudmundsson
Þetta snýst að sjálfsögðu um jafnræði og reglur
Rúv. Það er ekki hægt að gera Þóru hærra undir
höfði en öðrum frambjóðendum í þáttum Rúv,
en hún er sú sjötta sem býður sig fram. Gildir
einu hvort menn túlka framboðin sem “alvöru”
framboð eða ekki.
Jónas Kristjánsson
Þótt þær séu jafnar að kostum og báðar meira
en hæfar, verð ég að styðja þá, sem höfðar betur
til fólks.
Þórkatla Snæbjörnsdóttir
Jónas, hún Herdís er svo sannarleg vel að þessu
verki komin, þó svo að hún hafi ekki alltaf verið
brosandi fyrir framan fólk í heimahúsum síðustu
10 árin eða svo. Þóra vel menntuð kona en Herdís
frábær. Ég vil nefnilega engin Hannibalstengsl á
Bessastöðum. Ég vil konu sem að hefur þurft að
koma sér áfram í lífinu sjálf eins og Herdís hefur
þurft að gera. Vona svo nú að ég hafi hvorki verið
ósvífin né frekja.
40 fréttir vikunnar Helgin 5.-8. apríl 2012
103
mörk hafa tveir bestu
fótboltamenn heims, Lionel
Messi og Cristiano Ronaldo,
skorað á þessu keppnis-
tímabili. Messi hefur skorað
56 mörk en Ronaldo 47.
Góð Vika
fyrir Kolbein Sigþórsson
fótboltamann
Slæm Vika
fyrir Brynjólf Bjarnason,
framkvæmdastjóra Framtakssjóðs Íslands
1606
fasteignir voru í eigu Íbúða-
lánasjóðs um síðustu áramót.
Þeim hefur fjölgað um 1259
á síðustu tveimur árum
samkvæmt Morgunkorni
greiningardeildar Íslands-
banka.
Syndir úr fortíð
Samkeppniseftirlitið lagði í vikunni metsekt á Símann. Annars vegar
skal fyrirtækið greiða 390 milljónir króna vegna misnotkunar á
markaðsráðandi stöðu og hins vegar 50 milljónir vegna rangra og
misvísandi upplýsingagjafar við rannsókn eftirlitsins. Brot Símans
áttu sér stað á árunum 2001 til ársloka 2007 og eru mjög alvarleg að
mati Samkeppniseftirlitsins. Forstjóri Símans frá 2002 til 2007 var
Brynjólfur Bjarnason sem síðar sat í stól forstjóra Skipta, móðurfélags
Símans, til ársloka 2010. Samkeppniseftirlitið hefur ítrekað sektað
Símann og Skipti vegna brota á því tímabili sem Brynjólfur var yfir
starfsemi félaganna. Nú starfar Brynjólfur sem
framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands,
sem hefur fjárfest meðal annars í Voda-
fone, Icelandair og N1, svo nefnd
séu stór fyrirtæki á viðkvæmum
samkeppnismörkuðum. Helstu
eigendur Framtakssjóðsins eru
stærstu lífeyrissjóðir landsins.
Forráðamenn sjóðanna
hljóta að vera hugsi yfir
því hvort Brynjólfur sé
á réttum stað.
2
Vikan í tölum
HeituStu kolin á
prósent er fylgi Evu Joly í könnunum
þar sem fylgi framforsetaframbjóðanda
í Frakklandi er kannað.
Fagnaði endurkomu með marki
Þetta var gleðileg vika í lífi fótboltamannsins Kolbeins
Sigþórssonar. Hann steig í fyrsta skipti í fimm mánuði á
fótboltavöll í leik á sunnudaginn þegar hann kom inn á sem
varamaður hjá liði sínu Ajax á 75. mínútu. Kolbeinn gekk til
liðs við stórliðið frá Amsterdam síðasta sumar og byrjaði leik-
tímabilið frábærlega. Hann skoraði fimm mörk í fyrstu átta
leikjum liðsins og var kominn
í hóp heitustu framherja
Evrópu þegar hann
meiddist í byrjun októ-
ber. Meiðslin reyndust
alvarleg, álagsbrot á ökkla
og ekkert annað að gera en
að hvíla. Kolbeinn var óvænt
á bekknum hjá Ajax um helgina í
leik liðsins gegn Heracles og kórón-
aði endurkomuna með marki í 6-0
stórsigri. Kolbeinn og félagar eru
í efsta sæti deildarinnar og eiga
því góða möguleika á að fagna
hollenska titlinum í vor.
Barnafjölskyldur í
greiðsluvanda
Þeir sem eru í mestum greiðsluvanda
eru annars vegar barnafjölskyldur með
miðlungstekjur, og margar hverjar með
gengistryggð lán, og hins vegar tekjulágir
einhleypingar.
Solveig Lára býður sig fram til
vígslubiskups
Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur
á Möðruvöllum í Hörgárdal, hefur tilkynnt
um framboð sitt til vígslubiskups á Hólum.
28 prósent styðja ríkisstjórnina
Í Gallupkönnun kemur fram að 28 prósent
kjósenda styðja ríkisstjórnina. Einu sinni
áður hefur stuðningur við ríkisstjórn mælst
minni. Það var í byrjun árs 2009 þegar
stuðningur við ríkisstjórn Geirs H. Haarde
mældist 26 prósent.
Íbúðalánasjóður þarf 10
milljarða
Ríkissjóður þarf að leggja Íbúðalánasjóði til
10 milljarða króna til að sjóðurinn uppfylli
markmiðið um 5 prósenta eiginfjárhlutfall.
Það er nú 2,3 prósent.
Tekist á um fermetra og
rúmmetra
Tekist var á um fermetra og rúmmetra
í hörðum umræðum í borgarstjórn á
þriðjudaginn um deiliskipulag nýs Lands-
spítala við Hringbraut.
Hættir viðskiptum við Ísland
Dótturfyrirtæki Samherja, DFFU í Þýska-
landi, hefur ákveðið að hætta öllum við-
skiptum við Ísland, tímabundið.
Síbrotamanni stungið inn
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi á
þriðjudag karlmann í rúmlega tveggja ára
fangelsi fyrir að brjóta skilorð ítrekað. Er
hann dæmdur fyrir þjófnað, vörslu fíkniefna
og fyrir að aka undir áhrifum vímuefna.
Aukin Visa-kortanotkun
Heildarvelta íslenskra Visa-kreditkorta-
viðskipta í mars jókst í mars um 3 prósent
frá sama mánuði í fyrra. Innanlands jókst
notkunin um 2,6 prósent og erlendis um
tæplega 5,4 prósent.
Líkfundur rannsakaður
Mannslík fannst í sjónum úti fyrir Tromsö
í Noregi fyrir helgi. Ekki hefur verið borið
kennsl á það og rannsakar lögreglan hvort
það geti verið af skipverja af íslenska togar-
anum Hallgrími sem fórst við strönd Noregs
25. janúar.
10
prósentustig er lækkun
brottfluttra frá Íslandi
milli áranna 2010 og 2011
samkvæmt Hagtíðindum
um mannfjöldaþróun frá
Hagstofu Íslands.
87
prósent er hlutfall þeirra
leikmanna U-21 árs lands-
liðsins í fótbolta, sem tók
þátt í EM í Danmörku síðasta
sumar, sem eru komnir í
atvinnumennsku. Aðeins
þrír af 23 eru enn að spila á
Íslandi. Það eru þeir Finnur
Orri Margeirsson Breiðabliki,
Þórarinn Ingi Valdimarsson
ÍBV og Almarr Ormarsson
Fram.
Þóra Arnórsdóttir fréttamaður býður
sig fram til embættis forseta Íslands.
Það tilkynnti hún á blaðamannafundi í
Hafnarborg í gær. Þóra er sjötti fram-
bjóðandinn. Aðrir eru: Ólafur Ragnar
Grímsson forseti, Ástþór Magnússon
athafnamaður, Jón Lárusson lögreglu-
maður, Hannes Bjarnason, búsettur
í Noregi og Herdís Þorgeirsdóttir
prófessor. Þóra er með BA-próf í heim-
speki og framhaldspróf í alþjóðastjór-
nmálum og þróunarhagfræði frá John
Hopkins-háskólanum í Washington og
Bologna. Hún hefur starfað við fjölmiðla
í 15 ár, lengst af á Ríkisútvarpinu. Sam-
býlismaður Þóru er Svavar Halldórsson,
fréttamaður á Ríkisútvarpinu. Hann
hefur tekið sér leyfi frá störfum. Ljós-
mynd/Hari
67%
... kvenna á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011