Fréttatíminn


Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 43

Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 43
Helgin 5.-8. apríl 2012 viðhorf 41 Kemur! Við verðum að strika þennan leik út. Ólafur Stefánsson, landsliðsfyrirliði, var ekkert of hress með jafntefli í vináttulandsleik í handbolta gegn norska landsliðinu. Besti vinur mannsins Þetta eru rosalega góðir hundar. Ásdís Kristjánsdóttir, dóttir skráðs eiganda tíkarinnar Birnu sem drap kött, grípur til sígildrar varnar fyrir hundinn. En það er bannað að horfa á barma Ef bæjarfulltrúar fyrrverandi meiri- hluta telja ámælis- vert að samþykkt bæjarráðs hafi verið virt að vettugi verða þeir að líta í sinn eigin barm. Þetta gerðist á þeirra vakt. Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, kastar funheitri kartöflu yfir til minnihlutans í þrætu um hverjir beri ábyrgð á rekstrarleyfi súlustaðarins Goldfinger. Viltu örugglega vita það? Ég vil vita við hverja Björn talaði við. Mér finnst það skipta máli. Bloggarinn Teitur Atlason er áhugasamur um fjárstyrk alþingis til Evrópuvaktar Björns Bjarnasonar. Ef lífið væri svona einfalt Ef markaðurinn tekur við sér og stækkar – þá er sjálf- sagt nægilegt pláss fyrir alla. Baldur Björnsson hjá Múrbúðinni spáir í plássið fyrir Bauhaus á byggingavörumarkaði. Nú, já. Við bíðum þá bara Við erum ekki þeirrar skoðun- ar að skrifa þurfi nýja stjórnar- skrá frá grunni. Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, upplýsir að sjálfstæðismenn ætli að skrifa stjórnarskrá lýðveldisins. Og ekki síður gaman að lesa Það er mjög gaman að skrifa, ég geri það nánast á hverjum degi. Davíð Oddsson lofar aðdáendum sínum mörgum árum í viðbót á Morgunblaðinu þar sem hann fer oft mikinn í leiðaraskrifum og staksteinakasti. Bloggari fimbulfambar Það er með ólíkindum að fylgjast með skrifum Teits Atlasonar, bloggara DV, um Evrópuvaktina og styrk alþingis til síðunnar. Eftir að hann hafði fimbulfambað um málið í nokkrum pistlum tók Álfheiður Ingadóttir, þing- maður VG, undir með honum og gaf til kynna að Evrópu- vaktin hefði ekki staðið alþingi reikningsskil gerða sinna. Björn Bjarnason Evrópuvaktmaður lætur Teit Atlason, bloggara, og sporgöngufólk hans ekki eiga neitt inni hjá sér.  Vikan sem Var a nsi mikið af íslenskri markaðssetningu er frek-ar bitlaus til lengri tíma litið og ansi oft verið að horfa á skammtímasjónarmið eða ranga hluti. Mörg fyrirtæki hafa lagt mikla áherslu á tilboð og afslætti síðustu misserin, oft á kostnað þjónustu. Tilboðssíður geta verið skynsamur kostur. Þetta á sér- staklega við ný og lítil fyrirtæki sem fá meira út úr því að setja takmarkað fjármagn sitt í væna afslætti til að reyna að brjóta upp vanaföst mynstur neytenda. Það skilar yfirleitt meiri árangri í stað þess að setja pening í auglýsingar sem neytendur reyna ómeðvitað eða meðvitað að taka ekki eftir. Facebook á að vera annar frelsari í íslensk- um markaðsmálum, getur gert góða hluti sé það notað rétt en er stórlega ofmetið eitt og sér. Fyrirtæki eru almennt séð of upptekin við að fá sem flesta „vini“ eða sem flest „like“, láta sem flesta líka við vöruna eða þjónustuna, án þess að vera með einhvers konar módel eða hugsun um það hvernig eigi að breyta þessum „vinum“ á endanum í viðskipti. Markaðssetning gengur út á það að setja saman fyrirtæki og neytendur sem hafa áhuga á vörunni eða að virkja þá sem fyrir eru og láta virði samskiptana vaxa. Í því sambandi er vert að huga að neytendagreind, þeim eiginleikum starfsfólks eða fyrirtækis sem heild, að þekkja og læra á þarfir og langanir neytenda. Fyrir- tæki eða starfsfólk sem skorar hátt á kvörðum neytendagreindar er meðvitað um bæði yrtar og óyrtar þarfir neytenda og getur þannig skapað framúrskarandi þjónustu. Hér er yfir- leitt um að ræða vel skipulögð neytendakerfi sem byggja á þekkingu á neytendum og gera þannig starfsmönnum kleift að veita persónu- lega þjónustu sem lætur neytendur spyrja sig „hvernig gerði hún þetta“ eða „hvernig vissi hann þetta“? Dæmi um þetta eru þegar bestu við- skiptavinir veitingastaðar mæta og uppáhaldsvínflaskan bíður á borðinu merkt viðkomandi. Eða þegar herra kemur með nýja dömu inn á veitingahús og þjónn- inn fagnar herranum og ræðir við hann eins og ef um sjálfan forsetann væri að ræða. Allt sem sagt vel skipulagt og virðissköp- unin langt umfram matinn eða grunnþjónustuna. Fyrirtæki sem þessi þurfa ekki auglýsa mikið, allavega ekki til að fá kúnna. Þau þurfa ekki að stunda ókeypis lottó á Facebook eða notfæra sér tilboðssíður. Þó geta flott fyr- irtæki vissulega fengið ýmislegt út úr kynn- ingarstarfsemi, svo sem eins og enn meiri aðgreiningu eða virði með svokölluðum um- myndunarauglýsingum þar sem unnið er í því að virkja ákveðnar tilfinningar og merkingar með kynningarstarfseminni sem svo umbyltir reynslu neytenda af vörunni/þjónustunni. Ég spyr nemendur mína oft að því hver sé besta reynsla sem þau hafa átt sem neytendur og það er nær undantekningarlaust sem við- komandi þarf að hugsa sig vel um. Svo eftir langa íhugun kemur einn nemandinn með jákvæða reynslu. Það sorglega er að þessi reynsla er yfirleitt af viðskiptum erlendis. Við erum stöðugt að kaupa og neyta og því er und- arlegt að fyrirtæki hér heima hafi ekki nýtt sér tækifærið og náð að skapa sér viðvarandi samkeppnisforskot og aðgreiningu með því að greina hegðun neytenda og móta umhverfið þannig að það fari vel fram úr væntingum kúnnans. Slík fyrirtæki gera verðlagninguna hálf ómerkilega. Við hérna heima erum hins vegar óttalega föst í verðum. Íslensk markaðssetning Neytendagreind og þjónusta Dr. Valdimar Sigurðsson, dósent í markaðsfræði við viðskiptadeild HR Arður í orku framtíðar ÁRSFUNDUR LANDSVIRKJUNAR Silfurbergi, Hörpu Fimmtudagur 12. apríl 2012 kl. 14-16 Aukin eftirspurn eftir raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum skapar margvísleg tækifæri sem Landsvirkjun hefur að undanförnu unnið við að greina. Niðurstöðurnar gefa til kynna áhugaverð tækifæri með aukinni orkuvinnslu innan núverandi kerfis, uppbyggingu fjölbreytts iðnaðar og útflutningi um sæstreng. > Hver er sérstaða Íslands á alþjóðlegum raforkumörkuðum? > Hver yrðu áhrif sæstrengs á íslenskt samfélag? > Hverjir eru fjármögnunarmöguleikar Landsvirkjunar við breyttar markaðsaðstæður? Landsvirkjun býður öllum til kynningar og opinnar umræðu um þau tækifæri sem fyrirtækið stendur frammi fyrir og árangur ársins 2011. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra Ávarp Bryndís Hlöðversdóttir stjórnarformaður Ábyrgir stjórnarhættir Hörður Arnarson forstjóri Árangur og áskoranir Rafnar Lárusson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Rekstrarniðurstöður 2011 Spurningar og umræður Fundarstjóri er Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar. Allir velkomnir Skráning: landsvirkjun.is/skraning Markmið opinna funda Lands virkjunar er að stuðla að gagnsærri og faglegri umræðu um málefni tengd starfsemi fyrirtækisins, sem er í eigu íslensku þjóðarinnar.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.