Fréttatíminn - 05.04.2012, Blaðsíða 48
Ógnir ofurtilboðanna
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
V
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Veturinn er formlega búinn og vorið geng-
ið í garð. Svo segir almanakið að minnsta
kosti en mars mun vera síðasti vetrarmán-
uðurinn hér á landi, að því er veðurfræð-
ingar segja. Ekki er þar með sagt að við
taki stanslaus hlýindi og stuttbuxnaveður.
Íslenskt vor er stundum talsverðan tíma að
koma sér í gírinn. Það þekkja þeir sem far-
ið hafa í skrúðgöngur sumardaginn fyrsta.
Flestir eru þá kappklæddir, að skátum
undanskildum. Þeir marsera ótrauðir þótt
lærin séu blá og talsverð hætta á blöðru-
bólgu. Eflaust munu þeir ekki draga af sér
að þessu sinni, á aldarafmæli skátastarfs
á Íslandi, en hinn fyrsti sumardagur er 19.
þessa mánaðar.
Apríl byrjar á páskum og rétt er að slaka
vel á, ef mögulegt er, alveg frá skírdegi
fram á annan páskadag því þá taka vor- og
sumarverkin við. Ég hef trú að því að þau
verði með meira móti að þessu sinni. Ekki
vegna þess að ég sé framtaksamari en
verið hefur, nema síður sé, heldur hitt að
það stefnir í slag á byggingavörumarkaði.
Byggingavörurisinn Bauhaus auglýsir
þessa dagana að hann opni bráðum stór-
verslun sína á 21 þúsund fermetra gólf-
plássi. Bændur hefðu væntanlega talað um
2,1 hektara ef um ræktartún sömu stærðar
væri að ræða. Keppinautarnir mæta til-
búnir í slaginn, Húsasmiðjan, sem gengin
er til samstarfs við danska verslunarkeðju,
og Byko sem fagnar hálfrar aldar afmæli
um þessar mundir. Múrbúðin er svo á
sínum stað, auk annarra sérverslana.
Aukin samkeppni á þessum markaði
kemur sér væntanlega vel fyrir neytendur,
bæði vegna almennrar verðlækkunar
og einstakra tilboða sem víst má telja að
fyrirtækin bjóði í þeirri baráttu sem fram
undan er, jafnvel ofurtilboða.
Það eru einmitt ofurtilboðin sem ég
óttast. Flestir þeir sem eiga fasteign, garð-
holu eða jafnvel sumarbústaðaland vita að
talsverða vinnu þarf að leggja í viðhald og
umhirðu alla. Lengi má þó humma slíkt
fram af sér, hvað sem líður hvatningarorð-
um eiginkonu, og bera við að allt of dýrt
sé að ráðast í þessa framkvæmdina eða
hina, þótt einföld leti sé hin raunverulega
ástæða. Komi byggingavöruverslanirnar,
í sínum harða slag, aftan að værukærum
mönnum með tilboðum sem ekki er hægt
að hafna getur hins vegar orðið fátt um
varnir.
Ég veit innra með mér að ýmislegt þarf
að mála, bæði úti og inni. Það hefur dregist
óþarflega lengi. Þá þarf að pússa veggi í
garðinum og setja upp hillur í bílskúrnum.
Ég sé það fyrir mér að Bauhaus, Byko og
Húsasmiðjan munu bjóða inni- og útimáln-
ingu á ofurtilboði, sennilega öll fyrirtækin
sömu helgina. Þá má vænta þess að mín
ágæta kona reki augun í þær auglýsingar.
Hún er glögg á slíkt og ekki eins verkfælin
og eiginmaðurinn. „Notum tækifærið og
málum, það er löngu tímabært,“ segir hún
eflaust, full bjartsýni og vorvítamína, um
svipað leyti og ég læt kaffið renna í bollann
þann helgarmorguninn og plana að teygja
úr tánum og kíkja í blöð dagsins.
Það veit ég líka af gamalli reynslu að
ég tipla á eftir frúnni þessa tilboðshelgi í
byggingavöruverslanirnar, kannski ekki
tindilfættur, en fer samt í málningarleið-
angur. Vissulega þarf að skrapa, sparsla og
mála en það getur verið gott að hafa of hátt
verð sem afsökun. Hið sama mun að öllum
líkindum gerast þegar áðurnefndar versl-
anir bjóða múrefni á ofurtilboðum viku
síðar, eða svo. Þá verður ekki undan því
vikist að nota tækifærið, holufylla og pússa
veggina. Ég geri mér grein fyrir því, ekki
síður en konan, að ópússaðir veggirnir í
garðinum eru ekkert augnayndi – en það
kostar talsvert átak að koma sér í verkið.
Efni selt á ofurtilboði mun óhjákvæmilega
ýta undir verklegar framkvæmdir.
Þá er ótalið það sem að garðinum snýr.
Garðholan okkar er kannski ekki merki-
leg, að mestu steinsteypt og grjóti hulin,
en öðru gegnir með skikann í sveitinni.
Þar hefur jarðargróður fengið að athafna
sig lítt áreittur og löngu tímabært að
grisja. Saklausar örplöntur eru furðufljótar
að verða að ófreskjum sem byrgja sýn til
fjalls og fljóts. Smágerðar handklippur
duga lítt á greinar þeirra, svo ekki sé
minnst á stofna. Því brá konan við fljótt
þegar hún sá rafknúnar greinaklippur
auglýstar á tilboði um síðustu helgi, bæði
í Byko og Húsasmiðjunni. Á þeim bæjum
bíða menn ekki báhásir – ef svo má segja.
Heim fórum við með klippurnar og
þeirra bíður ærið verk. Runnar verða vel
snyrtir fyrir sumarið, ef að líkum lætur.
Svo er ofurtilboðunum fyrir að þakka.
Það er því alveg óvíst hvort færi gefst á
að hanga í koju langt fram eftir degi, gera
síðan lítið eða ekki neitt yfir bládaginn og
afreka það helst að kveldi, hvort heldur er
á skírdag, föstudaginn langa, laugardaginn
eða páskdagana báða, að opna bauk.
Ég kemst varla upp með það að snið-
ganga rafklippurnar, svona nýkeyptar á til-
boði. Tækjaskortur er ekki lengur afsökun
og veðurspáin eftir atvikum bærileg. Í
fljótu bragði sýnist mér þetta ástand komið
til með að vera. Í tilkynningu frá Bauhaus
kemur fram að verslunin státar af um það
bil 120 þúsund vörunúmerum. Ég gef mér
að hið sama eigi við um Byko og Húsa-
smiðjuna. Ofurtilboðum, sem sagt þeim
sem ekki er hægt að hafna, mun því fjölga
ógurlega. Hvíldartíminn er liðinn. Ballið
er byrjað.
Gleðilega páska – og vinnusama!
67%
... kvenna á höfuðborgar-
svæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
Þú getur nálgast Fréttatímann frítt á
þjónustustöðvum N1 um land allt
HELGARBLAÐ
36 viðhorf Helgin 5.-8. apríl 2012