Fréttatíminn - 05.04.2012, Page 52
40 heimili Helgin 5.-8. apríl 2012
KRAKKAJÓGA
“Gaman gaman”
15. APRÍL - 27. MAÍ.
Sunnudaga. kl 10-10.50 fyrir 4-6 ára
Sunnudaga. kl. 11-12 fyrir 7-10 ára
Kennt verður á leikskólanum Laufásborg
Kennari: Álfrún Örnólfsdóttir
7 vikna námskeið kostar 9000 kr.
Allur ágóði í krakkajóga rennur til “Sól í Tógó”
Jóga fyrir Tógó
www.jogasetrid.is - sími 846 1970
E nginn vafi leikur á um að ár-legur Hönnunarmars blæs lífi í landsmenn bæði leika og lærða. Bærinn bókstaf-
lega fyllist af lífi og eru allir duglegir
að heimsækja viðburði sem eru út
um allan bæ. En það sem er minna
rætt er viðskiptalegur ávinningur
sem Hönnunarmars veitir. Þar ber að
minnast á nokkra þætti.
Heimsókn áhrifamikilla
einstaklinga
Fyrir það fyrsta þá býður íslenska
hönnunarsamfélagið hingað heim
góðum hópi áhrifaríkra einstaklinga.
Þar ber að nefna formenn sænsku og
norsku hönnunarsamtakanna, for-
mann sænsku Hönnunarmiðstöðvar-
innar, fjölda áhrifaríkra blaðamanna á
þessu sviði víðs vegar að úr heim-
inum og marga aðra. Umfjöllun sem
verður vegna þessara heimsókna er
ómetanleg og sérstaklega ef hún er
jákvæð.
Og sú hefur verið raunin. Margir
þeirra sem komu hingað í ár sem
fyrri ár voru ákaflega hrifnir af fyrir-
bærinu Hönnunarmars og litu það
jákvæðum augum. Formaður Svensk
Form, Ewa Kumlin, ávítaði sjálfa sig
á bloggi sínu fyrir að hafa ekki staðið
fyrir álíka norrænu samstarfi undan-
farin ár.
Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa
kallað til svokallaðs DesignMatch
eða Hönnunarstefnumóts í nánu sam-
starfi við Norræna húsið þar sem
stjórnendur þekktra hönnunarfyrir-
tækja í Skandinavíu mæta til lands-
ins og hitta sérvalda hönnuði. Allir
hönnuðir sem tilheyra fagfélögunum
hérlendis hafa tækifæri til þess að
sækja um þessi stefnumót og sóttu
tugir hönnuða um í ár að komast að.
Enda eftir miklu að slæðast. Þeir
sem eru virkir í hönnunargeiranum
vita hversu erfitt það getur verið að
komast í tæri við þá aðila sem virki-
lega ráða framtíðarvali hönnuða hjá
stóru fyrirtækjunum. Margir í mennt-
unar og hönnnarmiðstöðvunum hafa
mun greiðari aðgang að þessu fólki
en hinn streðandi hönnuður sem lifir
af hönnun sinni getur átt erfitt með
að komast að. Þess vegna er Design-
Match einstakt tækifæri fyrir alla í
bransanum að láta á það reyna hvort
krafta þeirra sé óskað hjá flottu fyrir-
tækjunum. Í ár voru þau ekki af verri
endanum. Aðilar frá Artek, Iittala,
Design House Stockholm, One Col-
lection og fleiri fyrirtækjum heim-
sóttu Ísland og væri hver hönnuður
stoltur af því að landa samningi við
þessi skemmtilegu fyrirtæki.
Framleiðsluferli lokatakmarkið
Óskandi væri að þessi hluti muni
vaxa og dafna með komandi árum.
Það væri ekki úr vegi að fjalla meira
um þessa viðskiptamöguleika og
þroska þá enda er það draumur hvers
hönnuðar að geta framfleytt sér á
hönnun sinni. Það hlýtur að vera loka-
takmark hönnunar að enda í fram-
leiðsluferli þar sem það býðst á hinum
almenna markaði. Það er að sjálf-
sögðu takmark framleiðenda að finna
hönnuði sem geta skapað nýjar sölu-
vænar vörur. Og þá er ekki vitlaust að
ýta sérstaklega undir þann metnað
hjá ungum hönnuðum hér á landi.
Þar þurfum við að taka okkur á,
og ég hvet skipuleggjendur hátíðar-
innar að gefa framleiðslumöguleikum
meira vægi á komandi árum. Þar eru
skandinavísku þjóðirnar skrefi á und-
an okkur enda er vöruhönnun stór
hluti viðskipta og virtur sem slíkur.
Við höfum nokkur fyrirtæki sem
standa sig ákaflega vel í þessum geira
hérlendis svo sem Össur og Marel
en íslenskir hönnuðir eiga einnig að
vinna með og fyrir erlend fyrirtæki
enda ekki hægt að framleiða allt hér-
lendis
Þetta var fjórða árið af Hönnunar-
mars. Hann hefur vaxað og dafnað
ótrúlega vel á þessum fáu árum og er
ómæld vinna sem liggur á bakvið há-
tíð sem þessa. Eiga skipuleggjendur
hrós skilið en núna væri einnig ágæt-
is tími að hrista upp og breyta eilítið
til; skipta út fagráði með nýju fólki og
huga að næstu árum enda Hönnunar-
mars kominn til að vera og þarf að fá
að vaxa og dafna um komandi ár.
Hönnunarstefna Íslands
Ráðuneyti iðnaðar og mennta á Íslandi tóku höndum
saman og áttu frumkvæði að mótun hönnunarstefnu fyrir
landið. Það var í byrjun árs 2011 og var nefnd sett á lagg-
irnar. Í framhaldinu voru haldnir fundir og álit fólks víða
leitað og hefur nú nefndin unnið úr þeim upplýsingum.
Á vef iðnaðarráðuneytisins er greint frá því í lok janúar
að von sé á lokaúrvinnslu stefnunnar á næstu vikum.
Það verður spennandi að sjá niðurstöðurnar enda um
gríðarlega mikilvægt efni að ræða sem hefur áhrif á alla
þróun hönnunar á Íslandi; allt frá menntun til framleiðslu.
Áhugasamir eru hvattir til að fylgjast með á vef iðnaðar-
ráðuneytisins.
Snagi úr íslensku fjörugrjóti
Þessi snagi úr íslensku grjóti fór í fjöldaframleiðslu í kjölfar
fyrsta Hönnunarmars, sem fór fram árið 2010. Snaginn
er hönnun Helgu I. Sigurbjarnadóttur og framleiddur af
Normann Copenhagen. Útsendarar danska fyrirtækisins
kynntust Helgu, sem er innanhúsarkitekt, þegar þeir komu
til landsins að fylgjast með Hönnunarmars.
Helga tínir steinana sjálf hér heima og er búin að senda
yfir 8.000 steina út til Danmerkur þar sem þeir eru boraðir
og unnir, pakkaðir og svo seldir víðs vegar um heiminn.
Frábært dæmi um þar sem íslensk hönnun og íslenskt
hráefni nýtist sem best! -sh
Hugleiðing um Hönnunarmars
Hönnunarmars setur mikinn svip á mannlífið en hann getur einnig opnað dyr fyrir íslenska hönnuði.
Stjórnendur erlendra hönnunarfyrirtækja fá þar einstaka yfirsýn yfir það sem er í deiglunni á Íslandi.
Dagný Bjarnadóttir formaður
stjórnar Hönnunarmiðstöðvar
Íslands á tali við Jan R. Stavik
framkvæmdastjóra Norsk
Design Council.
Sigga Heimis
sigga@siggaheimis.com
HÖNNUN
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011