Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 60
48 bíó Helgin 5.-8. apríl 2012
Bíó Paradís Indversk kvIkmyndahátíð
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
Bollywood og
indverskur Bond
Þ etta verður í fyrsta sinn sem indversk kvik-myndahátíð er haldin á
Íslandi. Indverska sendiráðið
styður við þetta framtak Vina
Indlands og Bíó Paradís sem
bjóða upp á fimm myndir á há-
tíðinni sem er í senn ætlað að
kynna Indland og indverska
kvikmyndagerð en allur ágóði
af hátíðinni rennur til styrktar
barnaheimila á Indlandi.
Á kvikmyndahátíðinni er reynt
að gera öllum stærstu mál- og
menningarsvæðum Indlands ein-
hver skil, en stærstu kvikmynda-
svæðin hafa fengið gælunafn
eftir því tungumáli sem leikið er
á svæðinu eða svæðinu sjálfu. Helstu fram-
leiðslusvæðin eru; hindi (Bollywood), tamil
(Kollywood), malaylam (Mollywood) og te-
lugu (Tollywood).
Dhoom 2 er gaman- og spennumynd í anda
James Bond. Lögreglumaður eltist við alþjóð-
legan glæpamann sem notar nýjustu tækni
við að fremja afbrot sín. Litið er á leikara sem
stórstjörnur og þeir sem skara framúr gera
margar myndir á hverju ári.
Eitt fremsta leikarapar Indlands, þau Hrit-
hik Roshan og Aishwarya Rai, fara með aðal-
hlutverkin í Dhoom 2 og Aishwarya Rai fer auk
þess með annað aðalhlutverkið í kvikmynd-
inni Robot.
Robot er vísinda-Bollywoodmynd fyrir alla
aldurshópa. Vísindamaður skapar vélmenni í
sinni mynd en málin flækjast þegar vélmennið
fær tilfinningar og hrífst af ástkonu skapara
síns.
Tæknibrellurnar í myndinni þykja sérlega
flottar og myndin er sú aðsóknarmesta í Asíu
og var frumsýnd í 3000 bíóhúsum
samdægurs. Annar aðalleikar-
inn í Robot heitir Rajinikanth og
er svo frægur á Indlandi að leik-
stjórar þora ekki að láta persónu
hans deyja í kvikmyndum af ótta
við borgarastyrjöld. Hann er næst-
launahæsti leikari í Asíu.
Madrasapattinam er ástarsaga
frá Chennai. Myndin var kölluð Tit-
anic Indlands og segir frá ástum
breskrar yfirstéttarstúlku og ind-
verja af lægri stigum. Myndin ger-
ist á þeim tíma þegar Indland var
að berjast fyrir sjálfstæði við Breta
og þar krauma ástin og pólitíkin.
Band Baaja Baara er lýst sem
yndislegri litaglaðri nútíma Bol-
lywoodmynd með mikilli gleði og tónlist. Ungt
par stofnar fyrirtæki sem aðstoðar fólk við að
undirbúa og halda brúðkaup. Þau samþykkja
að halda einkalífinu og vinnunni aðskildu en
það reynist erfiðara en þau héldu.
Bol er dramatísk mynd frá Pakistan og vin-
sælasta myndin þar í landi frá upphafi og hef-
ur verið verðlaunuð í ýmsum heimshornum.
Myndin segir frá ungri konu sem taka á af lífi
fyrir morð á föður sínum. Hinsta ósk hennar
er að fá að útskýra ástæðuna fyrir glæpnum.
Myndin segir frá kvenréttindabaráttu í Pak-
istan og hefur haft gífurleg áhrif.
Litið er á
leikara sem
stórstjörn-
ur og þeir
sem skara
framúr
gera
margar
myndir á
hverju ári.
Dohm 2 býður upp á kostulega James Bond-stemningu.
Gone
Jill Parish verður skelfingu lostin þegar hún
kemst að því að systir hennar hefur
horfið úr herbergi sínu að næturlagi.
Hún er sannfærð um að morðingi
hafi numið systurina á brott og hún
hefur svosem ágæta ástæðu til þess
að ætla það þar sem brjálæðingurinn
sem hún hefur grunaðan hafði rænt
henni tveimur árum áður. Hann kom
henni fyrir ofan í holu í skógi þar sem
henni var ætlað að deyja. Einhvern veginn
tekst Jill þó að sleppa og er þess fullviss
að morðinginn hafi snúið aftur til að ljúka
verki sínu en tekið systurina í misgripum.
Lögreglan trúir Jill ekki og aðhefst ekkert
þannig að hún tekur málin í sínar hendur.
Aðrir miðlar: Imdb: 5.8, Rotten Tomatoes:
11%, Metadritic: 36%
American Reunion
Árið 1999 sló unglingagreddugrínið
American Pie hressilega í
gegn þannig að í kjölfarið
fylgdu framhaldsmyndir
eins og lög gera ráð fyrir.
Og nú er allt gengið úr
fyrstu myndinni mætt
til leiks á ný. Þau eru að
vísu eldri og eitthvað
lífsreyndari en 1999 en samt enn lygilega
vitlaus, kynóð og klaufaleg.
Tilefni endurfundanna er tíu ára út-
skriftarafmæli hópsins en fólk virðist hafa
einhverja undarlega löngun til þess að
hitta aftur lið sem það eyddi tíma með
á menntaskólaárunum með reglulegu
millibili. Hér lætur enginn sig vanta þannig
að allir lúðarnir; Jim, Kevin, Oz, Steve og
Finch sem og gellurnar; Michelle, Heather,
Vicky og Nadia, koma saman á ný.
Frumsýndar
Leikstjórinn og mikil-
mennskubrjálæðingurinn
James Cameron setti heims-
byggðina á hliðina fyrir
fimmtán árum með stórmynd
sinni um fyrstu og síðustu ferð
risafleysins Titanic. Myndin
sló öll aðsóknarmet, sópaði
til sín Óskarsverðlaunum og
ástaróðurinn My Heart Will Go
On, sem Celine Dion kyrjaði í
myndinni, var ofspilaður svo
svakalega á útvarpsstöðvum
um víða veröld að margir mega
enn ekki heyra fyrstu tónana án
þess að kasta upp.
Cameron tókst að gera siglingu
sem allir vissu hvernig endar að spennandi og magnaðri bíómynd með því að
flétta saman við hana fallega ástarsögu þar sem Leonardo DiCaprio og Kate
Winslet bræddu hjörtu áhorfenda og með því að sleppa þeim undurfagra
leikara Billy Zane lausum um borð í hlutverki hættulegs skúrks.
Cameron leiðist þrívídd ekkert sérstaklega, eins og Avatar ber skýrt vitni, og
nú hefur hann fínpússað Titanic og skellt henni í þrívídd þannig að gamlir og
nýir áhorfendur fá tækifæri til þess að upplifa Titanic aftur í bíó og fylgjast með
þessu mannskæða sjóslysi í þrívídd.
Aðrir miðlar. Imdb: 7.5, Rotten Tomatoes: 83%, Metacritic: 74%.
Titanic sekkur aftur
a mma Lo-fi er ný íslensk tón-listarheimildarmynd sem Bíó Paradís frumsýndi um
síðustu helgi og verður til sýninga í
kvikmyndahúsinu næstu vikurnar.
Myndin hefur nú þegar verið sýnd
á kvikmyndahátíðum víða og hlot-
ið nokkur verðlaun. Amma Lo-fi
kemur næst við á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Buenos Aires í
Argentínu sem er haldin dagana
11.-22. apríl.
Amma Lo-fi er frumraun þriggja
tónlistarmanna á kvikmyndasvið-
inu. Kvikmyndin er portrett af Sig-
ríði Níelsdóttur sem fór að taka upp
og gefa út sína eigin tónlist á áttræð-
isaldri. Á 7 árum urðu geislaplötur
hennar 59 talsins.
Á CPH:DOX heimildarmynda-
hátíðinni í Kaupmannahöfn hlaut
Amma Lo-f i Sound & Vision-
verðlaunin og á alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni í Rotterdam var
hún valin á topp 10 lista áhorfenda
hátíðarinnar.
Á South by Southwest kvik-
myndahátíðinni í Austin var Amma
Lo-fi valin í flokkinn 24 beats per
Second sem beinir sjónum sínum
að tónlistartengdum myndum og
fjallaði bandaríska tónlistartíma-
ritið Rolling Stone fjallaði þá um
Ömmu Lo-fi í yfirliti sínu um helstu
tónlistarkvikmyndir hátíðarinnar.
Kvikmyndavefurinn Cine-Vue fer
einnig mjög lofsamlegum orðum
um myndina í gagnrýni sinni á hana
í kjölfar sýningar á Flatpack hátíð-
inni í Birmingham.
Amma Lo-fi var í lok febrúar sýnd á
kvikmyndahátíð MOMA í New York þar
sem hún gekk fyrir fullum sal í Nitehawk
Cinema í Williamsburg.
amma Lo-FI Fer víða
Á Hverfisgötu og í Argentínu
Kate Winslet og Leonardo DiCaprio fundu ástina í
feigðarflani um borð í Titanic.
Þótt indverskar bíómyndir séu vægast sagt sjaldséðar í íslenskum kvikmyndahúsum eru Indverjar
öflugir þegar kemur að kvikmyndagerð. Vinir Indlands og Bíó Paradís hafa nú sameinast um að
kynna indverska kvikmyndahefð fyrir íslenskum bíógestum og blása til kvikmyndahátíðar dagana
11. - 20. apríl í Bíó Paradís við Hverfisgötu.
Rajinikanth er svo vin-
sæll að ekki þykir óhætt
að láta persónur hans
deyja af ótta við að út
brjótist borgarastyrjöld.
Jim
Carrey og
Jeff Dani-
els fóru á
kostum í
Dumb &
Dumber.
Carrey til í meira
Peter Farrelly lýsti því yfir nýlega á
Twitter að tökur muni hefjast á nýrri
mynd um vitleysingana og vinina Lloyd
Christmas og Harry Dunne í september.
Jim Carrey og Jeff Daniels fóru á kostum
í hlutverkum bjánanna í mynd Farrelly-
bræðra Dumb and Dumber árið 1994.
Nú virðist draumurinn um framhald
vera að rætast þar sem Carrey og Dani-
els ætla báðir að vera með.