Fréttatíminn - 05.04.2012, Síða 70
Magdalena dubik gúggluð í Hollandi
Nemendur á öðru ári í grafískri hönnun við
Listaháskóla Íslands hafa gert sköpunar-
gáfu sína að söluvöru til að safna fé fyrir
útskriftarferð sína haustið 2013. Þeir selja
ýmsar nýstárlegar vörur í Grafíunni við
Þverholt 11 en meðal þess sem þar er í
boði er mynd af Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, sem Arnar Fells
hefur farið höndum um. Hann tilfærir
sígilda setningu Geir í hruninu: „Guð blessi
Ísland“ og bætir svo við eða öllu heldur
múlbindur Geir með „ég meina ða.“ Þeir
sem vilja skreyta sig með þessum snúningi
á fleygum og alræmdum orðum Geirs geta
fengið myndina á bol.
Ég meina’ða
Ég hef alltaf verið mjög hrifin af íslenskri
náttúru þótt ég hafi aldrei komið til landsins.
Magdalena Dubik, ungfrú Reykjavík 2009, bíður spennt eftir ljósmyndatökunni í maí og ekki
spillir fyrir að hún hefur áður unnið með ljósmyndaranum Arnold Björnssyni. „Hann er frábær
ljósmyndari og ég hlakka mikið til.“ Mynd/Hari
Hollenskt skart í
íslenskri náttúru
V ið vildum gera eitthvað mjög sérstakt. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af íslenskri náttúru þótt ég hafi aldrei komið til landsins,“ segir Dana Smit sem hefur í fimm ár hannað skartgripi undir merkjum Deriva. „Þótt ég hafi aldrei komið til Íslands
þá hef ég séð ljósmyndir þaðan og myndir í sjónvarpinu og mér fannst að ég ætti að fara
þangað til að mynda sumarlínuna okkar í íslenskri náttúru,“ segir Dana sem bíður spennt
eftir því að sækja landið heim í maí.
Dana segist hafa talið víst að á Íslandi yrði lítið mál að finna íslenska, ljóshærða fegurðar-
dís til þess að bera skartgripina í ljósmyndatökunni. „Við notum mest ljóshærðar konur
þar sem skartið okkar virðist klæða þær sérlega vel. Eftir stutta leit á google rakst Dana á
myndir af Magdalenu Dubik, sem var valin Ungfrú Reykjavík árið 2009.
„Ég vissi ekkert um hana. Ég gúgglaði bara „miss Iceland“ aðallega vegna þess að við
höfum áður notað Ungfrú Holland í myndatökum. Ég hafði samband við Magdalenu, henni
leist vel á skartið og var strax til í þetta sem gladdi mig mjög vegna þess að mér finnst hún
alveg hafa til að bera útlitið sem hentar okkur.“
Og Magdalena, sem hafði ekki séð skartgripi Dönu áður, lýst mjög vel á: „Þetta verður
spennandi og ég hlakka mikið til. Ég veit að þessir gripir eru útbreiddir í Hollandi og
Þýskalandi og eru að ná vinsældum víðar í Evrópu þannig að það er bara heiður að fá að
vera andlit sumarlínunnar.“
Dana segist koma með tvær nýjar línur á ári og að mikið verði gert með myndirnar af
Magdalenu, ekki síst þar sem þær verða bæði notaðar til að kynna sumarlínuna sem og
fagna fimm ára afmælinu. Myndirnar verði notaðar í auglýsingum auk þess sem þær
muni skreyta veglegt glanstímarit sem verði dreift til viðskiptavina og heildsala.
Magdalena er í námi og sinnir fiðluleiknum af sama kappi og áður en hefur samt nóg
að gera sem fyrirsæta. „Jájá. Það er alltaf eitthvað. Þetta er fínt með skóla og fiðluleikn-
um og það er gaman að fá tækifæri til þess að gera alls konar hluti. Ég veit að hönnuðir,
skó- og undirfataframleiðendur koma að þessu verkefni þannig að ég held að þetta
verði skemmtilegt.“
Dana er yfir sig ánægð með það viðmót sem hún mætir hjá Íslendingum en hún
fékk ljósmyndarann Arnold Björnsson til þess að sjá um myndatökuna á Íslandi og
Iðunn Jónasdóttir farðar.
„Allir þeir Íslendingar sem ég hef verið í sambandi við vegna þessa verkefnis hafa
verið einstaklega almennilegir. Ég hef aldrei mætt svona jákvæðu viðmóti og miklum
samstarfsvilja. Þið eruð hlýtt og þægilegt fólk.“
g læpasögur Svíans Henn-ing Mankell um þunglynda rannsóknarlögreglumann-
inn Kurt Wallander hafa notið mik-
illa vinsælda á Íslandi og líklega
hefur mörgum íslenskum aðdáend-
um Wallanders brugðið í brún við
lestur síðustu bókarinnar um lög-
reglumanninn en þar fá Íslendingar
kaldar kveðjur.
Á blaðsíðu 238 ræðir Wallander
við dóttur sína um eiginmann henn-
ar, Hans, en tengdasonurinn er önn-
um kafinn í viðskiptum.
„– Það er mikill órói í kauphöllum
heimsins. Hans hefur áhyggjur. Það
er þess vegna sem hann er alltaf að
vinna.
– Með Íslendingum?
Hún beið átekta og horfði á hann.
Ertu að reyna að vera kaldhæð-
inn? Mundu að þú ert að tala um
föður barnsins míns!“
Ekki er annað á dóttur Walland-
ers að heyra en Íslendingar séu
síðasta sort og það stappi nærri
mannsmorði að starfa með þeim í
viðskiptum.
Halldór Guðmundsson bók-
menntafræðingur kannast ekki
við að Mankell beri sérstakan kala
til Íslendinga en einna helst mætti
ætla að Mankell hafi ekki fyrirgefið
mál sem kom upp árið 2004 þegar
hann var vændur um að hafa nýtt
sér atriði úr Grafarþögn Arnaldar
Indriðasonar í bók sinni Atburðir
að hausti. „Ég minnist þess ekki að
þetta hafi haft neinar afleiðingar,“
segir Halldór. Halldór segist ekki
hafa lesið Órólega manninn og
hafi því ekki velt þessu fyrir sér en
bendir á að Mankell hefur sótt land-
ann heim. „Hennig Mankell kom
hér einu sinni á bókmenntahátíð og
þá var hann hinn viðræðubesti og
kynnti hér verk sín. Hann hefði nú
varla komið ef honum væri sérlega
illa við landið. Norðurlandabúar
voru hins vegar alveg sérstaklega
gagnrýnir á okkur á þessum útrás-
artíma. Ég man það bara frá vinum
mínum í útgáfubransanum að menn
höfðu aldrei neina trú á því að þessi
auður Íslendinga væri annað en
svindl og þeir sögðu það bara alveg
beint í opið geðið á manni og ég
hugsa að Mankell sé nú bara á svip-
uðum slóðum og veit ekki til þess að
hann hafi neina sérstaka andúð á Ís-
lendingum. Við skulum ekki koma
okkur upp komplexum yfir því, nóg
er nú samt.“ -þþ
kurt Wallander Hæðist að íslendinguM
Kaldar kveðjur frá Mankell
Hollenski skartgripahönnuðurinn Dana Smit segir gripina sína ekki enn
fáanlega á Íslandi en vonist til þess að það breytist fljótlega. Mynd/Nickolas Schot
1
1
-0
5
6
8
/
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
www.ms.is
...hvert er
þitt eftirlæti?
...endilega fáið ykkur
Friðrik Ómar fjölmiðla-
fulltrúi í Baku
Friðrik Ómar Hjörleifs-
son söngvari verður í eld-
línunni í Eurovision-söngva-
keppninni 2012, sem haldin
verður í Bakú, höfuðborg
Aserbaídsjan, dagana 22. til
24. maí næstkomandi. Frið-
rik Ómar verður þó ekki á
sviðinu heldur utan þess.
Gréta Mjöll Stefánsdóttir,
annar flytjanda og lagahöf-
undur íslenska lagsins í ár,
hefur valið hann sem sér-
legan fjölmiðlafulltrúa sinn
meðan á keppninni stendur.
Friðrik Ómar er eldheitur
Eurovision-áhugamaður
og fyrrum keppandi. Hann
tók þátt í aðalkeppninni
árið 2008, þegar keppnin
var haldin í Serbíu, með
Eurobandinu þegar hann
og Regína Ósk sungu
lagið This Is My Life með
glæsibrag og höfnuðu í 14.
sæti. - gag
Fegurðardrottningin
og fiðluleikarinn
Magdalena Dubik
verður andlit
hollenska skart-
gripaframleiðand-
ans Deriva Jewels.
Skartgripahönn-
uðurinn Dana Smit
vildi gera eitthvað
sérstakt í tilefni af
fimm ára afmæli
fyrirtækisins.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Hennig Mankell lætur íslenska við-
skiptamenn fá það óþvegið í Órólega
manninum, síðustu bók sinni um Kurt
Wallander.
Jónsi á kafi í prófum
Jónsi, Jón Jósep Snæbjörnsson, ligg-
ur ekki á netinu að kynna sér keppinaut-
ana í Eurovision þessa dagana. Hann er
á kafi í prófum í Háskólanum og setur
námið í forgang fram yfir páska. Jónsi,
sem syngur íslenska framlagið með
Grétu Mjöll Stefánsdóttur, fer án
fjölskyldumeðlima á vit ævintýranna
í Bakú í Aserbaídsjan. Enda er dag-
skráin fullbókuð þegar út er komið. Ef
allar áætlanir standast lendir hópurinn
í Bakú einni og hálfri klukkustund eftir
miðnætti og á þá eftir að skríða upp á
hótelherbergi, henda töskum út í horn
og hola sér niður í rúm – ef tími gefst,
því fyrsta æfing íslenska hópsins er
snemma morguns.
58 dægurmál Helgin 5.-8. apríl 2012