Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.04.2012, Qupperneq 52

Fréttatíminn - 27.04.2012, Qupperneq 52
Salmon Fishing in the Yemen Poster Sænski leikstjórinn Lasse Hallström (Chocolat, The Cider House Rules, My Life as a Dog, What’s Eating Gilbert Grape) er á vægast sagt áhugaverðum og sérkenni- legum slóðum í þessari nýjustu mynd sinni en hér segir frá stangveiðisérfræðingi sem fenginn er til þess að hjálpa arabískum sheik við að láta þann draum sinn rætast; að gera fluguveiði að gjaldgengu sporti í eyðimörkinni. Hann tekur þetta að sér og berst eins og spriklandi lax gegn straumnum til þess að gera hið ómögulega mögulegt. Ewan McGregor og Emily Blunt eru í aðalhlutverkum. Aðrir miðlar: Imdb: 7.0, Rotten Tom- atoes: 68%, Metacritic: 58% Jane Eyre Bíó Paradís frum- sýnir nýja breska bíómynd sem gerð er eftir hinni vinsælu örlaga- sögu Charlotte Bronte um Jane Eyre. Einvala lið leikara kemur hér við sögu með Michael Fassbender fremstan í flokki og eru Mia Wasikowska, Jamie Bell og Judi Dench honum til fulltingis við leikinn. Jane Eyre ræður sig sem ráðskonu á hið virðulega herrasetur Thornfield Hall. Þar kynnist hún herra hússins, hinum skapþunga, kaldlynda og hranalega Rochester. Jane verður ástfangin af honum og hamingjan virðist blasa við en leyndar- mál ógnar nýfundinni hamingjunni. Aðrir miðlar: Imdb: 7.4, Rotten Tom- atoes: 85%, Metacritic: 76% 52 bíó Helgin 27.-29. apríl 2012  The Avengers sAmeinuð sTöndum vér! Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is bíó Ofurhetjur sameinast gegn lævísum Loka O furhetjugallerí Marvel-mynda-sögurisans er sérlega glæsilegt en þann fríða flokk fylla til dæmis Spiderman, hinn blindi Daredevil og þau hin stökkbreyttu sem kenna sig við X. Stan Lee er ættfaðir lífseigustu og skemmtileg- ustu Marvel-hetjanna og árið 1963 kynnti hann, ásamt Jack Kirby, The Avengers fyrst til sögunnar. Í fyrstu var hópurinn skipaður Iron Man, Þór, Hulk, Ant-Man og Wasp. Captain America bættist svo við skömmu síðar eftir að ofurhermaðurinn fannst í ís- hellu og var látinn þiðna. Velgengni fyrstu Iron Man-myndarinnar árið 2008 varð til þess að farið var að huga að því að smala saman Marvel-hetjum í risamynd þar sem hetjuhópur deildi sviðinu. Það lá síðan beinast við að skella í Aven- gers-mynd þegar á daginn kom að önnur kvikmyndaver höfðu ekki fest sér réttinn á hetjunum sem skipa þann flokk en auk Iron Man voru The Hulk, Thor, Black Widdow, Hawkeye og Captain America á lausu. Eðlilegast þótti að leyfa öllum aðalhetj- unum að stimpla sig inn með mynd í eigin nafni áður en hópnum væri smalað saman og á undanförnum árum höfum við því feng- ið tvær Iron Man-myndir, nýja mynd um Hulk, hressa mynd um Þór þar sem Loki er kynntur til leiks sem skúrkur og sköpunar- saga Captain America liggur einnig fyrir. Harðjaxlinn Nick Fury, sem Samuel L. Jackson leikur, heldur utan um þennan ósamstæða hóp risavaxinna egóa en sem forstjóri hinnar dularfullu stofnunnar S.H.I.E.L.D. Stendur hann vörð um fram- tíð mannkyns þegar utanaðkomandi ógnir steðja að. Fury hefur dúkkað upp í lok myndanna um Iron Man, Þór, Hulk og Captain America svona rétt til þess að minna áhorfendur og hetjurnar á að þeirra bíði fjörugur fundur í The Avengers. Og nú er loksins komið að því og Fury fær að beita sér af meiri hörku en hingað til og þarf á öllu sínu að taka til þess að þjappa hetju- genginu saman gegn Loka, hinum stór- hættulega hálfbróður Þórs.  FrumsýndAr Sýningar eru hafnar á heimildarmyndinni Bully, sem fengið hefur íslenska titilinn Grimmd: Sögur af einelti. Myndin hefur vakið mikla athygli og deilur í Bandaríkj- unum, bæði vegna þess að í henni er einelti í sinni ömurlegustu mynd fest á filmu og slengt framan í áhorfendur sem margir hverjir vita ekki sitt rjúkandi ráð og einnig vegna þess hversu orðbragðið í myndinni er ljótt en eineltispúkar ytra eru víst lítið fyrir að gæta tungu sinnar. Framleiðandi myndarinnar, Harvey Weinstein, hefur verið alveg ófáanlegur til þess að klippa myndina til og milda munn- söfnuðinn þannig að myndin er bönnuð innan sextán ára í Bandaríkjunum og sum kvikmyndahús hafa brugðið á það ráð að sleppa því að sýna myndina. Þrátt fyrir óhugnaðinn og beinskeytta nálgun á ömurlegt samfélagsmeinið sem einelti er þykir myndin eiga brýnt erindi og þeir sem mæla með henni telja hana eiga erindi við gerendur og fórnarlömb eineltis og ekki síður en þá sem standa aðgerðarlausir hjá og leyfa ofbeldinu að grassera. Bully þykir nefnilega hugvekjandi í ömurleika sínum og er líkleg til þess að vekja fólk til meðvitundar um hversu djúpt einelti ristir. Aðrir miðlar: Imdb: 6.8, Rotten Tom- atoes: 88%, Metacritic: 74% Ógeðslegt einelti Klækjarefurinn Loki ætti að vera flestum Íslendingum sem hlunkast hafa í gegnum skyldunám vel kunnur en þessi vandræðagemlingur í Ásgarði átti með vélum sínum drjúgan þátt í ógæfunni sem dundi yfir goðin í Ragnarökum. Í ofurhetjuveislunni The Avengers herjar Loki með hyski sínu á mannheima og þá dugir ekkert minna en að þjappa saman nokkrum helstu hetjum Marvel- heimsins til þess að hrinda áhlaupi hins illa. Tony Stark/ Iron Man (Robert Downey Jr.) Hátæknisnillingurinn, auðmaðurinn og alkó- hólíseraði glaumgosinn Tony Stark heldur hjarta sínu gangandi með einhvers konar kjarnakljúfi sem stungið er í brjóstkassa hans. Græjan knýr einnig Iron Man-búninginn hans sem hann upp- færir reglulega með hátæknivopnum en öflug brynvörnin gerir hann nánast ósigrandi. Í góðum gír er hann stórhættulegur óvinum sínum en þegar hann dettur í́ ða er hann hættulegri sjálfum sér og umhverfi sínu. Steve Rogers/ Captain America (Chris Evans) Fyrsti „avengerinn“ varð til þegar Steve Rogers, væskilsleg- um óbreyttum her- manni, var breytt í óttalaust vöðva- búnt með lyfjagjöf og tæknikukli. Hann fór vopn- aður skildi sínum og skotvopnum gegn nasistum en hefur legið í frosti frá því fyrir stríðslok. S.H.I.E.L.D. Er búið að ná honum úr klakanum og poppa hann upp fyrir átök í breyttum heimi sem hann áttar sig ekki alveg á? Dr. Bruce Banner/The Hulk (Mark Ruffalo) Stórsnjall vísinda- maður sem varð fyrir gammageislum með þeim varanlegu aukaverkunum að þegar hann verður reiður eða æsist um of tútnar hann út og breytist í vitstola, grænan berserk. Í jötunmóð er hann hömlulaus og rústar öllu sem á vegi hans verður og því betra að hafa hann með sér í liði en á móti. Þór (Chris Hemsworth) Þrumuguð okkar norrænna manna er nánast óstöðvandi þegar hann spókar sig í mannheimum í fullum herklæðum. Og á meðan hann er með hamarinn góða Mjölni í hendi er hann stórvara- samur eins og fjöldi lemstraðra jötna getur vottað. Natasha Romanoff/Black Widow (Scarlett Johansson) Black Widow er njósnari og þraut- þjálfaður leigu- morðingi sem sinnir verkefnum fyrir S.H.I.E.L.D. og þótt hún búi ekki yfir neinum ofurkröftum er hún mikilvægur meðlimur í Aven- gers-liðinu og gefur körlunum í hópnum ekkert eftir. Hún sýndi og sannaði hæfileika sína síðast í Iron Man 2 þegar hún stimplaði sig inn í persónugallerí The Avengers. Clint Barton/ Hawkeye (Jeremy Renner) Hawkeye er einfari og eina raunveru- lega tenging hans við hópinn er Blac Widow en þau eiga það sameiginlegt að búa ekki yfir neinum ofurkröftum og þurfa aðeins að treysta á hæfileika sína og þjálfun. Hawkeye er út- sendari S.H.I.E.L.D. Mikill meistari þegar kemur að bogfimi og í myndasögunum er honum lýst sem hittnasta manni í heimi. HEtJurnar Captain amer- ica er kominn úr frosti í slaginn á 21. öldinni og fer hér yfir málin með uppfinn- ingamanninum og fyllibyttunni Tony Stark sem skellir sér í Iron Man-búninginn þegar mikið liggur við. Aðrir miðlar: Imdb: 8.9, Rotten Tomatoes: 97%, Metacritic: 69% ... sátu við gluggana tæknilúðar tveir og sendu ógeðslega uppvakninga og aðra óværu á kannabisreyktan lúða, ljóshærða lauslætisdrós, gáfumenni, stæðilegan íþróttamann og góða stúlku sem kemst eins nálægt því að vera hrein mey og mögulegt er á vorum síðustu, verstu og klámvæddu tímum. Söguþráður hryllingsmyndarinnar The Cabin in the Woods er eitthvað á þessa leið og óneitanlega hljómar þetta kunnuglega en handritshöfund- arnir, Joss Whedon og Drew Godd- ard, bregða hressilega á leik og flippa ærlega út innan staðlaðs ramma ung- lingahrollvekjunnar. Unga fólkið fer saman í óbyggða- ferð og heldur til í frekar óhugnan- legum kofa en allt umhverfi hans bendir til þess að þau séu snarfeig. Þau brjóta síðan öll boðorð hryllings- myndanna og gerast réttdræp fyrir kynlíf, drykkju og fíkniefnaneyslu. Ljóskan er þannig rétt búin að bera brjóst sín þegar morðóðar zombíur rísa upp úr jörðinni og saga af henni hausinn. Síðan ganga illfyglin á lín- una, einörð og einbeitt í viðleitni sinni við að koma unga fólkinu í snatri til heljar. Þegar krakkarnir fara að týna töl- unni hafa þau ekki hugmynd um að um leið og þau stigu inn í kofaskrifl- ið gengu þau inn í dauðagildru. Heill her tæknifólks heldur til neðanjarðar undir kofanum og sigar á þau upp- vakningunum og hefur það verkefni að sjá til þess að þau drepist í réttri röð. Blóð þeirra sem drepast bunar síðan niður í iður jarðar til þess að friða þar forna og brjálaða guði sem munu rísa upp og rústa heiminum fái þeir ekki sín ungu fórnardýr reglu- lega. Sagan er alveg snarklikkuð en í raun samt ekkert bilaðri en gengur gerist í unglingahryllingi. Styrkur The Cabin in the Woods liggur ekki síst í því að hún tekur sig ekki alvar- lega sem felur samt í sér ákveðna þversögn þar sem sú hryllingsmynd sem tekur sig alvarlega hlýtur alltaf að verða hallærislegri og hlægilegri en sú sem er meðvituð um eigin hall- ærisgang. Skiptir ekki máli. Þetta er fyndin mynd og ógeðslega skemmti- leg – með sérstakri áherslu á orðið ógeðslega. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is  Bíódómur The CABin in The WOOds  Í skóginum stóð kofi einn ...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.