Fréttatíminn - 30.03.2012, Qupperneq 6
TV OF THE YEAR
PANASONIC TXP42GT30
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT REYKJAVÍKURSVÆÐIÐ: Hagkaup, Smáralind. VESTURLAND: Hljómsýn, Akranesi. Hagkaup, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi.
Hrannarbúðin Grundarfirði. Skipavík, Stykkishólmi. VESTFIRÐIR: Verslunin Ranglátur, Tálknafirði. Fjölval, Patreksfirði. Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Drangsnesi. Snerpa Ísafirði.
NORÐURLAND: KF Steingrímsfjarðar, Hólmavík. KF V-Húnvetninga, Hvammstanga. Smárabær, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. Valberg, Ólafsfirði. SR Byggingavörur,
Siglufirði. Hagkaup, Akureyri. Heimilistæki, Akureyri. Víkurraf, Húsavík. AUSTURLAND: Tölvulistinn, Egilsstöðum, Kauptún, Vopnafirði. Nettó, Höfn Hornafirði. SUÐURLAND:
Mosfell, Hellu. Fossraf, Selfossi. Geisli, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Tölvuþjónusta Benna, Grindavík. Heimilistæki, Reykjanesbæ. Hagkaup, Njarðvík.
STOFNAÐ 1971 RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • www.sm.is
Panasonic TXP42GT30
• Hágæða THX NeoPlasma sjónvarp
• Full HD Active 3D
• Infinite Black Pro skerpa 5.000.000:1
• Svartími 0.001 msek.
• Viera Connect Nettenging
• Innbyggður gervihnattamóttakari
• 3 USB tengi og 4 HDMI tengi
• Eitt með öllu á rugl verði
AVATAR
3D Blu-Ray
FYLGIR MEÐ!
SKERPA
5.000.000:1
600Hz
FULL
HD
1920x1080p
Wi-fi
READY
3D
199.990
Þ að lítur út fyrir að við náum að koma þeim að sem fædd eru að vori 2010,“ segir Guð-rún Sólveig Vignisdóttir, leik-
skólastjóri á Rauðhól; nýtt hús og börn-
unum fjölgar um fimmtíu. Þrátt fyrir
að þau verði 200 í stærsta leikskóla
landsins frá sumrinu næst ekki að
tæma biðlista á leikskóla í Norðlinga-
holti. Engin tveggja ára börn eru þó án
leikskólapláss í hverfinu því þau fá vist í
Árbæ eða öðrum hverfum.
Guðrún ætlar ekki að slá af kröfum
í leikskólastarfinu þrátt fyrir stærð
leikskólans og hlakkar til að takast á
við verkefnið. Hver eining verður sjálf-
stæðari, hver kennari fær meiri ábyrgð
og valdinu verður dreift: „Ég lít svo á
að allir starfsmenn séu lykilstarfsmenn
sem þurfi að takast á við ögrandi verk-
efni og hafa hlutverk.“
Persónuleg tengsl milli leikskólans og
foreldra verða sett á oddinn, því Guðrún
ákveðna hættu á að þau fari milli stafs
og hurðar sé ekki sérstaklega hugað að
þeim í svona stórum skóla.
Hún ásamt aðstoðarleikskólastjór-
anum fóru til Svíþjóðar og kynntu sér
sambærilega leikskóla þar ytra. „Svíum
hefur ekki alltaf gengið vel að stækka
leikskólana sína og hafa jafnvel orðið að snúa til
baka eftir ákveðinn tíma,“ segir hún: „En við búum
svo vel að að stækkunin hér felst ekki í því að steypa
saman tveimur eða fleiri leikskólum, sem hafa
skapa sér sína menningu, heldur bæta við það sem
fyrir er. Þetta verkefni verður krefjandi og spenn-
andi fyrir okkur öll; börn, foreldra og kennara.“
Tvö hundruð
börn á stærsta
leikskóla landsins
Rauðhóll GuðRún SólveiG viGniSdóttiR
Með vorinu fjölgar börnum á leikskólanum Rauðhóli í Norðlinga-
holti um fimmtíu. Hvergi á landinu verða jafnmörg börn á sama
leikskóla. Leikskólastjórinn hlakkar til að takast á við verkefnið og
segir áherslu verða setta á persónuleg tengsl við foreldrana.
Guðrún Sólveig með börnum sínum á Rauðhól í Norðlingaholti. Ljósmynd/Hari
Regnbogar,
ævintýri og
skógarlundur
Yngstu börnin verða á regnboga-
deildum, sem einkennd eru með
litum, en þau eldri á deildum
sem tengjast ævintýrum.
Björnslundur verður sameigin-
legur vettvangur allra.
„Hugmyndafræði okkar byggir
í grunninn á kenningum John
Dewy en við höfum einnig lagt
áherslu á að láta skólastarfið
ekki snúast í kringum klukkuna.
Heldur reynum að fara á hugar-
flug með börnunum. Við litum
þegar það á við en ærslumst
þegar stemningin er þannig.
Það má því segja að við lesum
börnin,“ segir Guðrún Sólveig
Vignisdóttir leikskólastjóri.
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is
Gjaldþrotum fækkar
Alls voru 106 fyrirtæki tekin til gjald-
þrotaskipta í febrúar. Þeim fækkar um
tæplega fimmtung frá sama mánuði fyrra
árs þegar þau voru 131, að því er Hagstofa
Íslands greinir frá. Fyrstu tvo mánuði ársins
hafa samtals 195 fyrirtæki verið tekin til
gjaldþrotaskipta og eru það fækkun um 14%
frá sama tímabili fyrra árs. Það sem af er ári
hafa gjaldþrot verið algengust í fyrirtækjum
í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð,
en fyrirtæki í þeim geira hafa verið hvað
viðkvæmust fyrir kreppunni og hafa 940
fyrirtæki í byggingariðnaði lagt upp laupana
frá því í október 2008. Þetta er tæpur fjórð-
ungur allra gjaldþrota á tímabilinu. Það sem
af er ári hafa gjaldþrot verið næst algengust
meðal fyrirtækja í fasteignaviðskiptum. - jh
Rúmlega 2,1 milljarðs tilboð í vega-
lagningu vestra
Ingileifur Jónsson ehf. átti
lægsta tilboð, tæplega 2.154
milljónir króna, í vega-
lagningu á Vestfjarðavegi,
kaflann frá Eiði að Þverá á
mótum Austur- og Vestur-
Barðastrandarsýslu, að því
er fram kemur í tilkynningu
Vegagerðarinnar. Suðurverk
hf. átti næstlægsta tilboðið,
tæplega 2.487 milljónir króna. Ístak hf. kom þar á eftir með
tæplega 3.187 milljónir króna. ÍAV hf. bauð ríflega 3.191 milljón
og Jáverk hf./Hagtak hf. bauð nærri 3.716 milljónir króna. Um
er að ræða endur- og nýlögn á 15,88 km kafla og smíði tveggja
brúa á þeim kafla; 160 metra brú á Mjóafirði og 117 metra brú á
Kjálkafirði. -jh/Ljósmynd Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
Gengi krónunnar
lækkar enn
Töluverð lækkun varð á gengi
krónunnar í vikubyrjun en hjá Greiningu
Íslandsbanka kemur fram að um sé að
ræða framhald þeirrar þróunar sem
var í síðustu viku, þótt gengislækkunin
hafi verið meiri en raunin var að jafnaði
í vikunni á undan. Á vikutímabilinu
nemur lækkunin 1,1%. Gengi krónunnar
hefur ekki verið svo lágt miðað við
gengisvísitölu í tæp tvö ár, eða síðan
seint í apríl árið 2010. „Þessa veikingu
krónunnar,“ segir Greiningin, „má í
raun ekki rekja til neinnar ákveðinnar
myntar, sé tekið mið af helstu viðskipta-
myntum hennar, þar sem krónan var að
veikjast gagnvart þeim öllum.“ -jh
Aukin svartsýni
Íslendingar voru heldur þungir á
brún í mars og mun svartsýnni
en verið hefur undanfarna
mánuði varðandi aðstæður í
efnahags- og atvinnumálum í
nútíð og framtíð. Þetta má ráða
af væntingavísitölu Capacent
Gallup sem birt var á þriðjudag
en hún lækkaði um 11 stig frá
fyrri mánuði og mælist nú 65,7
stig. Þessi þróun stingur töluvert
í stúf við þróun síðustu mánaða
en vísitalan hefur hækkað sam-
fellt síðan í nóvember síðast-
liðnum. Þegar væntingavísitalan
er undir 100 stigum eru fleiri
neikvæðir en hún hefur verið
það allt frá því í febrúar 2008. -jh
Fyrstu dauðaslysin
í umferðinni í ár
Tveir menn létust, sinn í hvoru
umferðarslysinu síðustu daga.
Það eru fyrstu dauðaslysin í
umferðinni í ár. Knútur Trausti
Hjálmarsson, fæddur 1988, lést
er bifreið sem hann ók valt á
Hrútafjarðarhálsi síðastliðinn
föstudag. Hann var ókvæntur
og barnlaus. Þá lést Hans Ágúst
Guðmundsson, 25 ára og búsettur
á Akureyri, er árekstur varð á
Ólafsfjarðarvegi við Krossá milli
sendiferðabifreiðar sem hann ók
og vöruflutningabifreiðar. Hans
Ágúst lætur eftir sig eiginkonu og
tvö börn. -jh
Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 12. tbl. 18. árg. nr. 544 14. júní 2010
Ritstjórn
og umsjón útgáfu:
Viktor Arnar
Ingólfsson
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Gunnarsson
Prentun: Oddi
Ósk um áskrift sendist til:
Vegagerðin
Framkvæmdafréttir
Borgartúni 7
105 Reykjavík
eða með tölvupósti til:
vai@vegagerdin.is
Vegagerðin gefur út Framkvæmdafréttir til að kynna útboðs-
framkvæmdir fyrir verktökum. Fyrirhuguð útboð eru kynnt,
útboðsauglýsingar eru birtar og greint er frá niðurstöðum og
samningum. Auk þess er í blaðinu annað það fréttaefni sem
verður til hjá stofnuninni og talið er að eigi erindi til verktaka .
Útgáfa er óregluleg og nokkrar vikur geta liðið milli tölublaða.
Áskrifendur eru m.a. verktakar, verkfræðistofur, fjölmiðlar.
og áhugafólk. Áskrift er endurgjaldslaus.
12. tbl. /10
Vestfjarðavegur (60) í Mjóafirði. Nú er unnið að mati á umhverfisáhrifum vegna endurbóta á þessum vegi.
Þann 24. maí auglýsti Vegagerðin drög að tillögu að matsáætlun
vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Vestfjarðavegi (60) milli
Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði í sveitarfélögunum
Reykhólahreppi og Vesturbyggð.
Drög að tillögu að matsáætlun voru kynnt á vegagerdin.is,
samkvæmt reglugerð 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Almenningur gat gert athugasemdir við áætlunina og var
athugasemdafrestur í tvær vikur eða til 7. júní 2010.
Hér eru birt efni úr drögunum en höfundar eru Helga Aðal
geirsdóttir og Kristján Kristjánsson. Kaflarnir eru mikið
styttir, fyrirsögnum breytt og efnið lagað að þessari birtingu.
Framkvæmd
Fyrirhuguð er framkvæmd á Vestfjarðavegi milli Eiðis í Vatt
arfirði og Þverár í Kjálkafirði við norðanverðan Breiðafjörð.
Framkvæmdin er í tveimur sveitarfélögum, Reykhólahreppi
í AusturBarðastrandarsýslu og Vesturbyggð í VesturBarða
Vestfjarðavegur (60) milli Eiðis í Vattarfirði og Þverár í Kjálkafirði,
drög að tillögu að matsáætlun
strandarsýslu. Um er að ræða nýjan og endurbyggðan veg frá
Eiði í Vattarfirði, um Kerlingarfjörð og Mjóafjörð að Þverá í
Kjálkafirði. Núverandi vegur er 24,2 km langur en nýr vegur
verður 19,1 eða 16,1 km langur, háð leiðarvali í Mjóafirði.
Skoðaðar hafa verið tvær leiðir, veglína A og veglína B í
Mjóafirði. Nýlagning vegna veglínu A er 8,8 km en nýlagning
vegna veglínu B er 8 km.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á Vest
fjörðum. Óvíst er hvenær ráðist verð r í framkvæmdina þar
sem óvissa ríkir um fjárveitingar til vegamála en gera má ráð
fyrir að hún taki tvö ár.
Vegagerðin kannaði matsskyldu framkvæmdarinnar í janúar
2009. Niðurstaða Skipulagsstofnunar sem barst 27. mars
2009 var að fyrirhuguð framkvæmd kunni að hafa í för
með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því háð mati á
umhverfisáhrifum. Niðurstaða Skipulagsstofnunar var kærð
6 fréttir Helgin 30. mars-1. apríl 2012